Pólverjar ganga til kosninga
Afar spennandi önnur umferð forsetakosninga í Póllandi er í vændum þegar Pólverjar ganga til kosninga á morgun. Kannanir benda til þess að mjótt gæti orðið á munum milli frambjóðendanna Rafał Trzaskowski, frjálslynds borgarstjóra Varsjár, og Karol Nawrocki, sagnfræðings sem er vinsæll meðal stuðningsmanna þjóðernisíhaldsflokksins Laga og réttlætis.