Gamlir Fóstbræður sungu fyrir Njál á Bergþórshvoli
Það var líf og fjör á Bergþórshvoli í Vestur Landeyjum á slóðum Brennu Njálssögu þegar hópur karla, sem eru í Gömlu Fóstbræðrum mættu á staðinn til að syngja fyrir Njál og hans fólk á bænum. Fóstbræður er elsti karlakór landsins stofnaður 1916.