

Atvinnulíf
Atvinnulíf fjallar á fjölbreyttan hátt um stjórnun, mannauðsmál, fyrirtækjamenningu, jafnvægi heimilis og vinnu og fleira.

„Ég sæki kraft, hugmyndir og gleði“
Gestir Heimsþings kvenleiðtoga segja þingið afar mikilvægt fyrir stjórnendur í atvinnulífinu og alla umræðu um jafnréttismálin. Þangað sækja stjórnendur sér fræðslu, þekkingu, dæmisögur, niðurstöður rannsókna auk innblásturs, kraft og gleði.

Ungt fólk sækir í störf hjá fyrirtækjum sem hlúa að jafnrétti og sjálfbærni
Bjarney Harðardóttir, einn eigenda 66°Norður segir reynslu fyrirtækisins vera að ungt fólk sækist í störf hjá fyrirtækjum sem vinna að því að vera fyrirmyndir í jafnréttis- og sjálfbærnimálum. Bjarney segist þeirrar skoðunar að fyrirtæki sem ekki huga að þessum málum muni tilheyra fortíðinni.

Jafnréttismálin í útrás til Evrópu og Bandaríkjanna
Þórey Vilhjálmsdóttir segir fyrirtækið Empower stefna á útrás með jafnréttismálin. Sérstaklega er horft til Evrópu og Bandaríkjanna. Í viðtali nefnir Þórey nokkur dæmi um algengar birtingarmyndir á kynbundnum fordómum á vinnustöðum.

„Eigum samt enn langt í land“
Hanna Birna Kristjánsdóttir stjórnarformaður Heimsþings kvenleiðtoga segist afar stolt af þeim árangri sem Ísland hefur náð í jafnréttismálum. Staðan sé þó enn ekki nógu góð og hindranir meðal annars þær að enn hvíla heimilisstörf og barnauppeldi mun þyngra á konum en körlum.

„Ekki vera eitthvað fyrir alla, vertu allt fyrir einhverja“
Samkvæmt öllum fræðum er mikilvægt að sinna auglýsinga- og markaðsmálum á krepputímum. Fyrir mörg fyrirtæki, sérstaklega þau smærri, er þetta hægara sagt en gert. Við leituðum til Unnar Maríu Pálmadóttur hjá KVARTZ og báðum um nokkur góð ráð.

Eins og að fleygja sér út úr flugvél og smíða fallhlíf á leiðinni
Tveir læknar réðust í nýsköpun fljótlega eftir bankahrun og stofnuðu fyrirtækið Sidekick. Í dag starfa þar fjörtíu starfsmenn og markmiðið er að þrefalda þann fjölda á næstu misserum.

„Ég skil eiginlega ekki mamma hvernig þú gast þetta allt“
Það hefur ansi margt breyst í verslunarrekstri frá því að Bryndís Brynjólfsdóttir stofnaði Lindina á Selfossi árið 1974. Verðlagseftirlit, háir tollar, gengisfellingar og gjaldeyrishöft. Í dag rekur Kristín Hafsteinsdóttir, dóttir Bryndísar, verslunina. Og þriðja kynslóðin hefur bæst við því sonur Kristínar, Bjarki Már Magnússon, hjálpar nú mömmu sinni með netverslunina tiskuverslun.is.

Í fimm ár hefur fjölskyldan vaknað fyrr og krakkarnir lesa fyrir foreldrana
Thelma Kristín Kvaran er gestur kaffispjallsins þessa helgina. Hún segist vera mikil hundakona, viðurkennir að skipulagið hjá sér er skipulagt chaos og brennur fyrir jafnréttismálum.

Fatnaður í fjarvinnu: Kósý eða „casual“?
Í fjarvinnunni hafa margir farið þá leið að vera betur til hafðir að „ofan“ en „neðan“ eða hreinlega vinna í joggingbuxum eða náttfötum alla daga. En hverju er mælt með?

Vísbendingar um heimilisofbeldi sem þú sem vinnufélagi ættir að vita af og hafa í huga
Vinnustaðurinn er oft einu tengslin sem þolendur heimilisofbeldis hafa við samfélagið og þeir skipta miklu máli til að sporna við ofbeldinu segir Sigþrúður Guðmundsdóttir framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins meðal annars í viðtaliÞá getur samstarfsfól. k verið vakandi yfir vísbendingum um ofbeldi.

Fyrsti vinnustaðurinn til að sporna við heimilisofbeldi í Covid
ISAL hefur nú innleitt aðgerðaráætlun til að sporna við heimilisofbeldi. Aðgerðaráætlunin byggir á nokkrum leiðum til að aðstoða starfsfólk sem gætu verið þolendur heimilisofbeldis til að stíga út úr þeim aðstæðum.

Covidþreytan í vinnunni og góð ráð
Fjögur einkenni Covidþreytu sem þú mögulega upplifir að sé að hafa áhrif á þig í vinnunni og nokkur góð ráð.

Keypti fyrirtækið þremur vikum fyrir bankahrun
Rödd lítilla fyrirtækja er of veik segir Hildur Guðnadóttir meðal annars í viðtali en hún keypti fyrirtækið Satúrnus þremur vikum fyrir bankahrun. Árið 2010 stofnaði hún síðan Ömmu Mús - handavinnuhús.


Umdeilt hversu handlaginn forstjórinn er heima fyrir
Árni Stefánsson forstjóri Húsasmiðjunnar er gestur kaffispjallsins þessa helgina. Hann segir umdeilanlegt hversu handlaginn hann er heima fyrir en viðurkennir að vera mikill tækjakarl sem reddar sér með gúggli.

Góð ráð fyrir þá sem eru ekki „uppáhalds“ hjá yfirmanninum
Rannsóknir hafa sýnt að stjórnendur halda oft upp á sumt starfsfólk meira en annað þótt fæstir myndu viðurkenna það ef málin væru rædd. Það getur verið sárt að upplifa annað fólk sem „uppáhalds" hjá yfirmanni.

Dæmi um þrjár leiðir til að eyða kynjahalla í stjórnendastöðum
Ásta Dís Óladóttir dósent í Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands segir kynjakvóta á forstjórastöður nokkuð erfiða leið. Fleiri leiðir sé hægt að skoða til að eyða kynjahalla í æðstu stjórnendastöðum.

Mikil vonbrigði, dapurlegt, hryggilegt og hundfúlt
Dapurlegar, hryggilegar og hundfúlar niðurstöður segja viðmælendur Atvinnulífsins á Vísi um 13% hlutfall kvenna sem framkvæmdastjórar í Framúrskarandi fyrirtækjum. Fjármagns- og fyrirtækjaeigendur þurfa að taka ákvörðun um breytingar.

Konur taka við af konum sem framkvæmdastjórar
Konur eru líklegri til að taka við konum sem framkvæmdastjórar en þróunin er hæg segir Brynja Baldursdóttir meðal annars í viðtali um greiningu Creditinfo á kynjahlutföllum stjórnenda í Framúrskarandi fyrirtækjum.

Hægt að spara 13 milljarða á ári með nýjum lausnum
Alvican er eitt þeirra fyrirtækja sem hafa orðið til eftir bankahrun og þróað hefur nýjar lausnir í velferðatækni fyrir eldri borgara.

„Hef unnið fyrir fjóra forseta og drukkið kaffi með þeim öllum“
Fjölskyldufyrirtækið Þvegillinn er 51 árs gamalt en saga þess hefst þó nokkrum árum fyrr. Fyrirtækið var formlega stofnað sem ehf. árið 1969 þegar kennitölurnar urðu til.

„Maður er nú bara að reyna að komast í gegnum þetta Covid“
Í fyrra veiddust hvorki fleiri né færri en átta Maríulaxar í einni kvennaferð segir Lilja Bjarnadóttir kaupmaður í Levi's á Íslandi og formaður kvennanefndar SVFR. Þessar vikurnar fara helst í að koma rekstrinum í gegnum Covid.

Gantast á Teams og nýir ráðningasamningar með fjarvinnu
Það er ekki mögulegt fyrir allt starfsfólk að vinna í fjarvinnu en þar sem hún er möguleg hefur tæknin skipt sköpum. Þannig hefur félagslegi hlutinn þurft að færa sig yfir á Teams og Facebook þar sem reynt er að skapa jákvæða stemningu í stað þess félagsskapar sem fólk er vant að sækja á vinnustaði sína.

Gallup: Fleiri árekstrar einkalífs og vinnu í fjarvinnu
Nýjar tölur um fjarvinnu gefa vísbendingar um að mögulega séu auknar áskoranir í fjarvinnunni núna í október í samanburði við í sumar. Í dag birtir Atvinnulífið október tölur Gallup um fjarvinnu.

Stjórnendur ekki að gera sér grein fyrir hæfileikum starfsfólks
Lárétt starfsþróun er eitthvað sem Martha Árnadóttir framkvæmdastjóri Dokkunnar hvetur stjórnendur til að skoða því það að príla upp skipurit fyrirtækja er ekkert endilega sú leið sem á lengur við.

Hringdu í fjárfesta í níu ár og velta nú milljarði
Benedikt Skúlason framkvæmdastjóri Lauf Forks segir umhverfi fjármögnunar nokkuð vanþróað á Íslandi fyrir nýsköpun. Fyrirtækið veltir nú tæpum milljarði og gerir ráð fyrir miklum vexti næstu árin.

83 ára í nýsköpun
Han van Doorn er 83 ára gamall Hollendingur sem fékk hugmynd að nýrri lausn fyrir eldri borgara eftir að eiginkona hans lést.

Ótæpilegt magn af kaffi og fólk á gangi með ryksugur
Kristján Hjálmarsson framkvæmdastjóri H:N Markaðssamkskipta er gestur kaffispjallsins þessa helgina. Hann viðurkennir að hann snúsar eins lengi og hann getur á morgnana.

Snýst ekki um hlátursköst og „hæfæv“ á göngunum
Ánægt starfsfólk eru bestu meðmælendur vinnustaða og aðferðarfræði jákvæðrar sálfræði hefur sýnt sig að gagnist vel til að byggja upp vellíðan og ánægju starfsfólks.

„Leyndarmál Rauðhólsgleðinnar“ virkar
Rauðhóll er einn stærsti leikskóli landsins en þar hafa verið innleiddar aðferðir sem styðjast við jákvæða sálfræði. Guðrún Sólveig segir sem dæmi að á leikskólanum vinnur fólk saman í teymum og þar breyta þau teymunum óhrædd til að tryggja að fólk sem vinnur vel saman raðist sem best saman í teymi.