Dana Björg ekki tapað síðan hún kom til baka af EM Íslenski landsliðshornamaðurinn Dana Björg Guðmundsdóttir hefur fagnað sigri í öllum leikjum sínum síðan hún kom heim af Evrópumótinu þar sem hún tók þátt í sínu fyrsta stórmóti með íslenska landsliðinu. Handbolti 8. janúar 2025 18:06
Tapaði fyrir Þóri í úrslitaleik EM og er líka hættur Jesper Jensen hefur ákveðið að hætta sem þjálfari danska kvennalandsliðsins í handbolta. Danska handboltasambandið segist vera mjög vonsvikið með ákvörðun þjálfarans. Handbolti 8. janúar 2025 17:31
Reynir að halda fókus á meðan Snorri gasar Bjarki Már Elísson var nokkuð hress þrátt fyrir örlitla þreytu fyrir landsliðsæfingu handboltalandsliðsins í gærmorgun. Hann er klár í slaginn fyrir komandi heimsmeistaramót. Handbolti 8. janúar 2025 14:31
Mikið áfall fyrir Eyjakonur Sennilegt þykir að markvörðurinn frábæri Marta Wawrzynkowska hafi þegar spilað sinn síðasta leik fyrir ÍBV á þessari leiktíð, í Olís-deild kvenna í handbolta. Handbolti 8. janúar 2025 12:31
Gamli landsliðsmarkvörðurinn í íslenska teymið Roland Valur Eradze verður markvarðaþjálfari íslenska karlalandsliðsins á komandi heimsmeistaramóti í handbolta. Hann snýr aftur í stöðuna eftir að hafa gegnt henni í þjálfaratíð Geirs Sveinssonar. Handbolti 8. janúar 2025 11:15
„Á örugglega eftir að sjá eftir því á einhverjum tímapunkti“ Hvernig fer maður að því að vinna til 17 verðlauna á stórmótum á 15 árum? Fáir þekkja slíka velgengni en Þórir Hergeirsson gerir það svo sannarlega. Nokkrir þættir þurfa að vera til staðar. Handbolti 8. janúar 2025 07:30
Meiðslin sett strik í undirbúning Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari karla í handbolta, kveðst bjartsýnn fyrir komandi verkefni. Ísland leikur tvo æfingaleiki við Svía í vikunni áður en keppni hefst á HM í næstu viku. Handbolti 7. janúar 2025 19:01
Slagsmál í æfingaleik hjá mótherjum Íslands á HM Slóvenar eru með okkur Íslendingum í riðli á HM í handbolta í þessum mánuði og þeir undirbúa sig meðal annars með leikjum við Katarbúa. Allt varð hins vegar vitlaust í æfingaleik þjóðanna í dag. Handbolti 7. janúar 2025 18:52
Frábærar fréttir fyrir Frakka Frakkar hafa endurheimt hægri skyttuna Dika Mem fyrir komandi átök á HM karla í handbolta sem hefst í næstu viku. Þónokkuð meiðslavesen hefur verið á franska hópnum. Handbolti 7. janúar 2025 12:02
Aron spilar ekki fyrr en í milliriðli Aron Pálmarsson, landsliðsmaður Íslands í handbolta, mun ekki spila með liðinu í riðlakeppninni á komandi heimsmeistaramóti vegna kálfameiðsla. Búist er við því að hann mæti til leiks í milliriðli. Handbolti 7. janúar 2025 11:07
Júlíus Þórir sannaði sig í starfinu Júlíus Þórir Stefánsson hefur verið fastráðinn sem þjálfari Gróttu í Olís deild kvenna. Handbolti 6. janúar 2025 22:28
„Get skilið að þetta komi mörgum spánskt fyrir sjónir“ Viggó Kristjánsson verður í burðarhlutverki í íslenska landsliðinu á komandi heimsmeistaramóti í ljósi fjarveru Ómars Inga Magnússonar og í aðdraganda mótsins hefur mikið gengið á. Handbolti 6. janúar 2025 08:33
ÍR byrjar nýja árið með besta hætti ÍR byrjar árið 2025 af krafti í Olís-deild kvenna í handbolta og tvöfaldaði sigurfjölda sinn með góðum sigri á ÍBV í Vestmannaeyjum í dag. Handbolti 5. janúar 2025 15:30
Alfreð Gísla: „Hljómar kannski hrokafullt en svona er þetta“ Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfari Þýskalands í handbolta, vill sjá lið sitt sýna á HM í þessum mánuði að verðlaunin á Ólympíuleikunum í París voru engin tilviljun. Hann segir Þýskaland með sterkasta liðið í sínum riðli. Handbolti 5. janúar 2025 13:48
Mun aldrei hitta neinn sem byggir upp lið eins og Þórir Þórir Hergeirsson var heiðraður samtímis á tveimur verðlaunahófum í gærkvöld, á Íslandi og í Noregi. Ein af stjörnunum sem hann þjálfaði svo lengi í norska handboltalandsliðinu, Stine Oftedal Dahmke, þakkaði Þóri fyrir allt í verðlaunaræðu. Handbolti 5. janúar 2025 12:08
Tognun í rassi en Elvar telur HM ekki í hættu Elvar Örn Jónsson, einn af burðarásum íslenska handboltalandsliðsins, vonast til þess að geta brátt tekið fullan þátt í lokaundirbúningnum fyrir HM. Hann er á toppi þýsku 1. deildarinnar með liði sínu Melsungen. Handbolti 5. janúar 2025 10:45
Díana Dögg öflug í sigri Díana Dögg Magnúsdóttir átti góðan leik þegar Blomberg-Lippe vann átta marka sigur á Göppingen í efstu deild kvenna í þýska handboltanum, lokatölur 34-22. Þá skoraði Sandra Erlingsdóttir eitt mark í tíu marka útisigri Metzingen á Bensheim-Auerbach. Handbolti 4. janúar 2025 18:45
Uppgjörið: Stjarnan - Haukar 29-32 | Hafnfirðingar byrja árið af krafti Haukakonur lönduðu sínum sjöunda sigri í Olís-deild kvenna þegar liðið sigraði Stjörnuna, 32-29, í Garðabæ í dag.Stjörnukonur voru staðráðnar að koma sterkari til leiks eftir að hafa fengið stóran skell þegar liðin mættust í september. Það var mikil barátta í heimakonum í upphafi leiks og héldu þær Haukum í skefjum. Handbolti 4. janúar 2025 16:00
Nýtt ár en áfram vinna Valskonur Valskonur unnu alla sína leiki árið 2024 og byrja nýja árið með sama hætti en þær unnu 34-20 stórsigur á Selfossi í dag, í Olís-deildinni í handbolta. Fram er næst á eftir Val, eftir 31-22 sigur gegn Gróttu á sama tíma. Handbolti 4. janúar 2025 15:51
„Þetta eru gríðarlegar framfarir“ Stjarnan beið lægri hlut á móti Haukum í Olís-deild kvenna í dag. Deildin fór af stað að nýju eftir tæplega tveggja mánaða hlé og sigruðu Haukar leikinn með þremur mörkum, 32-29. Handbolti 4. janúar 2025 15:30
„Við eigum okkur allir drauma“ Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari karla í handbolta, fór yfir stöðuna nú þegar lokaundirbúningur er hafinn af fullum krafti fyrir HM. Fyrsti leikur Íslands er við Grænhöfðaeyjar 16. janúar í Zagreb. Handbolti 4. janúar 2025 11:02
Sagt að deyja eftir að Ísland komst ekki í undanúrslit Nikolaj Jacobsen, landsliðsþjálfari Danmerkur í handbolta, segist hafa fengið viðurstyggileg skilaboð í símann sinn eftir tapið gegn Frakklandi árið 2022, sem leiddi til þess að Ísland komst ekki í undanúrslit á EM. Leikmenn hans fengu einnig hryllileg skilaboð. Handbolti 4. janúar 2025 09:40
Árásin í Magdeburg: „Snertir djúpt hvað þetta var nálægt manni“ Hryðjuverkin á jólamarkað í Magdeburg, þar sem að fimm manns létu lífið og um tvö hundruð særðust, snertu íslenska landsliðsmanninn Gísla Þorgeir Kristjánsson sem leikur með handboltaliði bæjarins djúpt. Gísli Þorgeir er nú mættur til móts við íslenska landsliðið sem undirbýr sig af krafti fyrir komandi heimsmeistaramót. Handbolti 4. janúar 2025 08:00
„Svakalega leiðinlegt fyrir bæði hann og okkur“ „Við dílum við þetta,“ segir Gísli Þorgeir Kristjánsson, liðsfélagi Ómars Inga Magnússonar í landsliðinu og hjá Magdeburg. Gísli er á leið á HM en nú án þess að hafa Ómar við hlið sér því sá síðarnefndi glímir við ökklameiðsli. Handbolti 3. janúar 2025 13:00
„Eiginlega bara þið sem hafið pumpað þetta upp“ „Það er alltaf allt jákvætt svona í byrjun og svo þurfum við að halda því þannig,“ segir Aron Pálmarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins, ánægður með byrjunina á undirbúningi fyrir HM í handbolta. Hann hefur einnig notið þess í botn að snúa á ný í atvinnumennsku í vetur, með Veszprém, og fékk blíðar viðtökur hjá sínu gamla félagi þrátt fyrir viðskilnaðinn árið 2017. Handbolti 3. janúar 2025 11:54
Elvar og Aron taka ekki fullan þátt Elvar Örn Jónsson og Aron Pálmarsson gátu ekki beitt sér að fullu á æfingu íslenska handboltalandsliðsins í dag, annan daginn í röð. Báðir ættu hins vegar að vera klárir í slaginn þegar HM hefst en fyrsti leikur Íslands þar er eftir þrettán daga. Handbolti 3. janúar 2025 10:59
Sigurjón fær að læra af titlaóðum Palicka Norska handknattleiksfélagið Kolstad, sem er með fimm Íslendinga innanborðs, kynnti í dag sænska landsliðsmarkvörðinn Andreas Palicka sem sinn nýjasta leikmann. Handbolti 2. janúar 2025 15:45
Tvöfalt sjokk fyrir Alfreð Alfreð Gíslason þarf að spjara sig á HM án tveggja leikmanna sem voru í þýska landsliðshópnum hans og unnu silfur á Ólympíuleikunum í París síðasta sumar. Handbolti 2. janúar 2025 14:00
Ballið byrjar hjá strákunum okkar Íslenska karlalandsliðið í handbolta er byrjað að æfa fyrir heimsmeistaramótið sem brátt hefst í Króatíu, Danmörku og Noregi. Handbolti 2. janúar 2025 13:32
Fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi Fjórtán Íslendingar – sjö karlar og sjö konur – voru sæmd heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu á Bessastöðum í dag. Innlent 1. janúar 2025 14:42