
Telur viðurlög við árásum á lögreglumenn allt of væg
Formaður Landssambands lögreglumanna segir að ofbeldi í garð lögreglumanna sé allt of algengt og gagnrýnir hann dómstólana fyrir að nýta ekki refsiramma laganna.
Fréttir af verkefnum lögreglunnar á Íslandi.
Formaður Landssambands lögreglumanna segir að ofbeldi í garð lögreglumanna sé allt of algengt og gagnrýnir hann dómstólana fyrir að nýta ekki refsiramma laganna.
Að undanförnu hefur borið á því að brotist hafi verið inn í bílaleigubíla á Suðurnesjum og verðmætum stolið. Ljósabúnaður bílanna hefur einnig verið fjarlægður.
Pétur M. Urbancic, íbúi í miðbæ Reykjavíkur, birti á dögunum Twitter-þráð þar sem hann sagði frá raunum sínum í samskiptum við ökumenn sem ætluðu sér að keyra Laugaveginn. Í gegn um tíðina hefur þótt lítið tiltökumál að taka Laugavegsrúnt eða tvo, en nú er staðan sú að Laugavegurinn er göngugata í allt sumar.
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um mann í annarlegu ástandi sem ráðist hafði á starfsmann rakarastofu á Laugavegi síðdegis í gær.
Eldri karlmaður sem lést í sundlauginni á Selfoss í gær hafði verið á botni laugarinnar í sjö mínútur þegar hann fannst. Slysið gerðist á vaktaskiptatíma sundlaugarvarða.
Fjölskylda slapp heil þegar eldur kom upp í tvílyftu einbýlishúsi í Lundareykjardal í Borgarfirði snemma í morgun. Efri hæð hússins var gott sem alelda þegar slökkvilið kom á vettvang.
Lögreglan á Akureyri hefur nánast útilokað að bruninn sem varð í frystihúsi Hríseyjar Seafood í Hrísey á fimmtudagsmorgun hafi komið til vegna rafmagnsbilunar. Nú er unnið með tvær kenningar. Bruninn hafi verið af mannavöldum, en óljóst er hvort um slys eða íkveikju hafi verið að ræða.
Ökumaður sem valdið hafði umferðaróhappi í Árbæ var handtekinn þegar hann reyndi að koma sér af vettvangi.
Tvítugur karlmaður var í dag úrskurðaður í gæsluvarðhald til 26. júní eftir að hafa ráðist á nátengdan aðila. Maðurinn var á skilorði eftir að hafa hlotið 12 mánaða dóm fyrir hrottalega líkamsárás á sautján ára unnustu sína.
Anthony Lee Bellere var á föstudag sakfelldur fyrir Landsrétti fyrir ítrekuð kynferðisbrot, tilraun til kynferðisbrots, hótun, áfengislagabrot, brot gegn barnverndarlögum og umferðalagabrot.
Styttur opnunartími skemmtistaða virðist ekki skila tilætluðum árangri.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti í gær eftir tuttugu og fimm ára gamalli konu en hún er nú fundin heil á húfi.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu reyndi í gærkvöldi að hafa afskipti af ökumanni sem sinnti ekki stöðvunarmerkjum.
Maður fannst látinn í Laxá í Aðaldal um klukkan 3 í nótt, en hans hafði verið saknað síðan í gærkvöldi eftir að hann skilaði sér ekki til baka úr veiði.
Tveir árekstrar urðu í Reykjavík á ellefta tímanum í kvöld, í Grafarvogi var Strætó viðriðinn en í Safamýri lauk eftirför lögreglu.
Tveir lögreglumenn voru sviptir frelsi og ráðist á þá þegar þeir fóru í útkall vegna hávaða í heimahúsi á Völlunum í Hafnarfirði um síðustu helgi. Annar þeirra rotaðist og þurftu þeir að leita á slysadeild.
Rúmlega hundrað mál voru skráð í dagbók lögreglunnar frá fimm í gær til fimm í morgun og ellefu aðilar voru vistaðir í fangageymslu.
Húsráðandi gaf lögreglumanni hnefahögg í andlitið þegar lögregla sinnti útkalli vegna gruns um heimilisofbeldi.
Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði í fyrradag kannabisræktun í íbúðarhúsnæði en búið var að koma upp tveimur tjöldum í svefnherbergjum þar sem plönturnar voru ræktaðar.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leysti nýverið tvö keimlík en erfið mál á einum degi í Hafnarfirði.
Rúmlega hundrað mál voru skráð hjá lögreglunni frá klukkan fimm í gær til fimm í morgun og þó þau hafi verið að ýmsum toga sneru flest þeirra að fólki undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna.
Tveir voru handteknir í aðgerðum lögreglu.
Ökumaðurinn var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða og gert að greiða 420 þúsund krónur í sekt fyrir brot sín.
Neyðarlínan hefur ekki verið sett á sakabekk af mér né borginni. Aðeins hefur verið óskað eftir svörum og skýrum merkjum um að atvikið sé tekið alvarlega og staðfestingu á að ekki sé um kerfisbundið vandamál að ræða heldur einstaka atvik,“ segir borgarfulltrúinn Dóra Björt Guðjónsdóttir um kröfu Neyðarlínunnar um afsökunarbeiðni
Neyðarlínan krefur Dóru Björt Guðjónsdóttur, borgarfulltrúa Pírata, um afsökunarbeiðni vegna ummæla hennar sem hún lét falla í morgunþætti Rásar 2 í morgun. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Neyðarlínunni.
Sautján ára piltur, sem grunaður er um alvarlega líkamsárás, mun þurfa að sæta gæsluvarðhaldi til 25. júní næstkomandi.
Þrír einstaklingar hafa verið sektaðir vegna brota á sóttvarnalögum og reglum settum samkvæmt þeim vegna útbreiðslu kórónuveirunnar
Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði umfangsmikla kannabisræktun eftir húsleit í umdæminu fyrr í vikunni.
Lögreglan segist hafa handtekið fjóra karlmenn á byggingasvæði í Garðabæ í gær vegna gruns um að vegabréf þeirra væru fölsuð. Nýr landamæraeftirlitsbíll er sagður hafa komið að góðum notum.
Maðurinn hafði hringt í Neyðarlínuna og tilkynnt að hann hefði fallið í Ölfusá, en reyndist svo fylgjast með björgunaraðgerðum úr felum.