Ráðherrar heimsækja Seyðisfjörð á þriðjudag Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra stefnir að því að fara til Seyðisfjarðar ásamt öðrum ráðherrum á þriðjudag til að meta aðstæður. Áður þurfa ráðherrar og fylgdarlið að fara í skimun fyrir kórónuveirunni. 20.12.2020 14:55
Rýmingu aflétt að hluta á Seyðisfirði og bærinn kominn á hættustig Ofanflóðasérfræðingar Veðurstofu Íslands og samstarfsaðilar hafa metið hættu á frekari skriðuföllum á Seyðisfirði. Þeir íbúar sem búa utan áhættusvæða mega snúa aftur til Seyðisfjarðar í dag. Viðbúnaðarstig á Seyðisfirði hefur verið fært af neyðarstigi niður á hættustig. 20.12.2020 14:36
Fauci bólusetti jólasveininn Anthony Fauci, helsti sóttvarnasérfræðingur Bandaríkjanna í kórónuveirufaraldrinum, sló á áhyggjur barna um að kórónuveirufaraldurinn gæti sett strik í reikninginn hvað varðar komu jólasveinsins. Sagðist hann hafa farið til Norðurpólsins og bólusett jólasveininn sjálfur. 20.12.2020 14:17
Banna flug frá Bretlandi vegna nýja afbrigðisins Nokkur Evrópulönd hafa gripið til þeirra ráða að banna samgöngur frá Bretlandi og hefur flugi til að mynda verið aflýst. Er þetta gert vegna þess nýja afbrigðis kórónuveirunnar sem hefur fundist í Bretlandi og er talið vera sjötíu prósent meira smitandi en önnur afbrigði. 20.12.2020 13:30
Navajo-stromparnir jafnaðir við jörðu Umhverfisverndarsinnar hrósuðu sigri á föstudag þegar strompar kolaverksmiðjunnar í Navajo voru jafnaðir við jörðu. Verksmiðjunni var endanlega lokað í nóvember á síðasta ári þegar síðustu birgðir kláruðust. 20.12.2020 13:07
Áfram neyðarstig á Seyðisfirði Neyðarstig verður áfram í gildi á Seyðisfirði og hættustig á Eskifirði. Þetta var ákveðið í dag eftir fund almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra og lögreglu með ofanflóðasérfræðingum Veðurstofu Íslands, aðgerðarstjórn, vettvangsstjórn og fulltrúum mikilvægra innviða og stofnana á Austurlandi nú fyrir hádegi. 20.12.2020 12:33
Skoða hvort hægt sé að aflétta hluta rýmingar Vonast er til að hægt verði að aflétta hluta rýmingar á Seyðisfirði í dag. Aðgerðastjórn og Veðurstofan fundaði í morgun klukkan tíu í samhæfingarstöð almannavarna varðandi næstu skref en endanleg ákvörðun hefur ekki verið tekin. 20.12.2020 11:55
Þrettán greindust innanlands í gær Þrettán greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og voru átta í sóttkví við greiningu. Fimm voru utan sóttkvíar. Öll greindust í einkennasýnatöku. 20.12.2020 11:01
Funda um næstu skref klukkan tíu: Varðskipið Týr sótti þrennt sem varð innlyksa Nú klukkan tíu er að hefjast fundur í samhæfingarstöð almannavarna með aðgerðastjórn og Veðurstofunni um hver næstu skref verða á Seyðisfirði þar sem enn er neyðarstig í gangi og Eskifirði þar sem er hættustig. 20.12.2020 09:40
Stefna nú að samkomulagi fyrir jól Bretar segja nauðsynlegt að Evrópusambandið breyti um stefnu í viðræðunum ef samningar eiga að nást. Samningsaðilar munu funda næstu daga og stefna að því ákveða fyrir jól hvort mögulegt sé að komast að samkomulagi. 20.12.2020 09:30