Kristín Vala til Coca-Cola Kristín Vala Matthíasdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri vörustjórnunarsviðs Coca-Cola á Íslandi. Kristín kemur til Coca-Cola frá Bluebird Nordic þar sem hún starfaði sem framkvæmdastjóri rekstrarsviðs. 10.10.2022 16:52
Óvissustig í Grímsvötnum: Von á litlu hlaupi á morgun Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Suðurlandi, hefur lýst yfir óvissustigi almannavarna vegna mögulegs jökulshlaups úr Grímsvötnum. 10.10.2022 16:29
Hjartnæmir endurfundir Doc og Marty á Comic Con Myndband af endurfundum leikaranna Christopher Lloyd og Michael J. Fox hefur vakið mikla athygli á Twitter og öðrum samfélagsmiðlum. Leikararnir léku saman í Back to the Future-kvikmyndunum á árunum 1985 til 1990. Lloyd lék brjálaða vísindamanninn Emmett „Doc“ Brown og Fox unglinginn Marty McFly. 10.10.2022 16:15
Harpa og Ingólfur til ON Harpa Pétursdóttir og Ingólfur Örn Guðmundsson hafa verið ráðin til Orku náttúrunnar. Ingólfur hefur verið ráðinn í starf forstöðumanns sölu- og viðskiptaþróunar og Harpa í starf aðstoðarkonu framkvæmdastýru. 10.10.2022 14:56
Hópur fólks hvatt listafólk til að spila ekki á Airwaves Hópur fólks sem berst gegn stefnu íslenskra stjórvalda varðandi hælisleitendur hefur hvatt listafólks til að spila ekki á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves. Forsvarsmenn Airwaves segjast ekki skilja hvaða hagsmunum það þjónar að knésetja hátíðina. 10.10.2022 14:46
Tuttugu hádegisverðir, rándýr kvöldmatur og ýmsar jólagjafir Á tæpu ári sátu fulltrúar Bankasýslu ríkisins tuttugu hádegisverðarfundi með fulltrúum ýmissa fjármálafyrirtækja. Tvisvar fögnuðu starfsmenn Bankasýslunnar frumútboði á hlutum í Íslandsbanka með kvöldverði. Kvöldverðirnir kostuðu 34 þúsund og 48 þúsund krónur á mann. 10.10.2022 13:06
Brennuvargar beðnir um að finna sér annað áhugamál IKEA-geitin er upprisin líkt og ár hvert þegar líða fer að jólum. Allir eru hvattir til að berja geitina augum en þeir sem vilja hana feiga mega helst finna sér annað að gera að sögn fjölmiðlafulltrúa IKEA á Íslandi. 10.10.2022 12:14
Óvissu- og hættustigum aflýst Ríkislögreglustjóri í samráði við lögregluembætti um land allt hefur aflýst óvissu- og hættustigum almannavarna vegna veðurs sem fór yfir umdæmin í gær og í morgun. 10.10.2022 11:50
Shopify kemur í veg fyrir brot á réttindum neytenda Shopify hefur samþykkt að gera ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir brot á réttindum neytenda. Með samþykktinni er verið að reyna að koma í veg fyrir svokölluð „drop shipping-svindl“ sem varð gífurlega algengt í Covid-19 heimsfaraldrinum. 10.10.2022 10:26
Komu í veg fyrir tjón á Djúpavogi Lögreglan á Austurlandi og björgunarsveitir fóru í útkall á Djúpavogi í gær þar sem stefndi í skemmdir á íbúðarhúsnæði sökum foks. Málið var afgreitt hratt og vel og náðist að koma í veg fyrir tjón. 10.10.2022 09:59