Íslandsbanki lokaði skortstöðu sinni á Kviku Íslandsbanki hefur lokað skortstöðu í Kviku sem hann tók síðastliðna viku, samkvæmt upplýsingum Innherja. Athygli vekur að Íslandsbanki er með viðskiptavakt á hlutabréf Kviku og lánar að auki fjárfestum meðal annars til að kaup hlutabréf. Frá áramótum hefur gengi Kviku lækkað um ellefu prósent. Það er nokkru lægra en gengi Íslandsbanka sem hefur lækkað um 16 prósent, rétt eins og gengi Arion banka. 10.6.2024 14:21
Skortsalar fá ekki að kaupa í Íslandsbanka í útboði ríkisins Fjárfestar sem skortselja Íslandsbanka á þrjátíu daga tímabili fyrir almennt útboð ríkisins á hlut sínum í bankanum munu ekki fá að kaupa í útboðinu. Almennt má gera ráð fyrir því að hlutabréfaverð lækki í aðdraganda almenns útboðs. 7.6.2024 16:44
Kvika stendur vel að vígi samanborið við hina bankana þegar kreppir að Kvika mun standa vel að vígi eftir sölu á TM samanborið við viðskiptabankana þegar kreppir að í efnahagslífinu og peningamagn í umferð dregst frekar saman. Þótt útlit sé fyrir að róðurinn í efnahagsmálum muni þyngjast í vetur þá hefur spá um hreinar vaxtatekjur Kviku verið endurskoðaðar til örlítillar hækkunar, segir í hlutabréfagreiningu. 7.6.2024 11:58
Hótelrekendur vonast til að sala hrökkvi í gang eftir afbókanir Allir hótelrekendur finna fyrir því að hægst hefur á bókunum og sala á hótelherbergjum verður eitthvað minni í sumar en í fyrra. Salan gengur betur í Reykjavík og á Suðurlandi en annars staðar úti á landi þar sem hótel hafa brugðið á það ráð að bjóða lægri verð til að ná upp sölunni. Spár um fjölda ferðamanna við upphaf árs munu ekki ganga eftir, segja viðmælendur Innherja. 6.6.2024 14:31
Þétt vaxtaaðhald hefur ekki enn ógnað fjármálastöðugleika Hátt raunvaxtastig hefur „enn sem komið er“ ekki ógnað fjármálastöðugleika en það má sumpart rekja til aðgerða sem gripið var til þegar allt lék í lyndi. Jafnvel þótt vanskil hafi ekki aukist væri það barnaskapur að halda að það muni ekki gerast, að sögn seðlabankastjóra, núna þegar tekið er að hægja nokkuð á hjólum efnahagslífsins. 5.6.2024 11:57
Nýtt verðmat Marels nokkru lægra en yfirtökutilboð JBT Yfirtökutilboð John Bean Technologies er átta prósentum hærra en nýtt verðmat á Marel hljóðar upp á. Jakobsson Capital lækkaði verðmat sitt um níu prósent frá síðasta uppgjöri en fyrsti ársfjórðungur var þungur að mati greinanda; „það mun þurfa að ausa vatni upp úr bátnum til að ná upp í spá“ greiningarfyrirtækisins en gert er ráð fyrir í verðmatinu að rekstur Marel batni hratt á næstu árum. 3.6.2024 12:22
Hagtölur sýna „Gullbrár“-mælingu sem er gott í mjúkri lendingu hagkerfisins Hagtölur fyrir fyrsta ársfjórðung, þar sem landsframleiðsla dróst saman um fjögur prósent að raunvirði milli ára, voru „hálfgert Rorschach-próf“ að því leytinu til að það er hægt að lesa bæði jákvæð og neikvæð teikn úr þeim, segir aðalhagfræðingur Kviku banka. Fá merki eru í nýjum þjóðhagsreikningum að hagkerfið sé að fara fram af hengiflugi og mælingin núna kemur á góðum tíma þegar Seðlabankinn er að reyna að stýra efnahagslífinu í mjúka lendingu. 1.6.2024 08:38
Teygist aðeins á að yfirtökutilboð JBT í Marel berist Gengið hefur verið út frá því að John Bean Technologies (JBT) leggi fram yfirtökutilboð í Marel í lok maí. Það er að teygjast á þeim tímaramma, síðasti dagur maímánaðar er runninn upp, en áfram er miðað við að viðskiptin verði um garð gengin fyrir árslok, samkvæmt uppfærðri fjárfestakynningu frá bandaríska tæknifyrirtækinu. Nú er gert ráð fyrir því að yfirtökutilboð berist hluthöfum Marels í júní. 31.5.2024 16:01
Gæti hallað undan fæti hjá Arion á næsta ári því viðvörunarljós blikka Greinandi gerir ráð fyrir „hraustlegri“ virðisrýrnun útlána hjá Arion banka á næsta ári og spáir því að hún verði meiri en í síðasta verðmati. Það blikka viðvörunarljós sem munu grafa undan gengis- og verðstöðugleika hér á landi. Verðmatsgengi Arion lækkaði um nærri fimm prósent frá síðasta mati en er engu að síður 44 prósentum yfir markaðsgengi. 31.5.2024 13:58
„Sláandi“ verðbólgu má líklega tengja við kjarasamninga Verðbólgan mældist langt yfir væntingum greinenda í maí en skuldabréfamarkaðurinn tók tíðindunum af stóískri ró. Sjóðstjóri segir að verðbólgan hafi verið á nokkuð breiðum grunni sem líklega megi rekja til kostnaðarhækkana í tengslum við kjarasamninga. Ekki er ólíklegt að verðbólguspár verði í kjölfarið hækkaðar. 31.5.2024 07:00
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu:„Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent