„Ég held að jólin séu bara eins og hver annar þriðjudagur hjá þeim“ Ófærð og fannfergi er víða um land en lægð gengur nú yfir landið. Samgöngur hafa raskast og er ekki búist við að lægðin gangi yfir fyrr en í kvöld. 27.12.2022 12:25
Fimmtán hross dauð eftir snjóflóð nærri Hofsósi Snjóflóð féll í Skagafirði milli bæjanna Stekkjarbóls og Hólkots í Unadal vestur af Hofsósi fyrir klukkan eitt í dag. Björgunarsveitin Grettir var kölluð út en fimmtán hross voru á svæðinu þar sem snjóflóðið féll. 26.12.2022 15:06
„Verkefnið hefur stækkað gríðarlega“ Snjómokstur í borginni verður sífellt umfangsmeiri samhliða stækkun borgarinnar. Fimmtíu snjómoksturstæki hafa verið notuð til að ryðja göturnar síðustu daga og hafa þau nú rutt samtals um þúsund kílómetra leið. 21.12.2022 20:58
„Við hefðum ekki getað farið að hleypa mörg hundruð manns á Reykjanesbrautina“ Vegagerðin telur það hafa verið rétta ákvörðun að loka Reykjanesbrautinni í rúman sólarhring út af óveðrinu líkt og gert var. Sérstakur samráðshópur hefur verið stofnaður til að fara yfir lokunina. 21.12.2022 13:27
„Það er allt hægt og bítandi að komast í eðlilegt horf á vellinum“ Flugumferð um Keflavíkurflugvöll er að komast aftur í rétt horf eftir umtalsverðar raskanir síðustu daga. Forstjóri Icelandair segir stefnt að því að koma öllum á áfangastað fyrir jól en félagið hefur meðal annars tekið tvær breiðþotur á leigu til þess að það gangi upp. 21.12.2022 12:26
Tekur tíma að hita sundlaugarnar upp Starfsfólk Laugardalslaugarinnar hefur staðið í sannkallaðri jólahreingerningu frá því að sundlaugum borgarinnar var lokað í gær. Stefnt er að því að taka aftur á móti gestum strax í fyrramáli en það getur þó tekið tíma að hita laugina á ný. 20.12.2022 20:02
„Það verður frábært að koma í jólabaðið til okkar“ Sundlaugar Reykjavíkur verða áfram lokaðar í dag. Metið verður síðar í dag hvort hægt verði að opna á ný á morgun. Starfsfólkið mætti hins vegar til vinnu og nýtti tímann vel. 20.12.2022 13:00
„Mikill fjöldi er að taka smálán“ Töluvert fleiri hafa sótt um jólaaðstoð hjá Hjálparstarfi kirkjunnar nú fyrir jólin en undanfarin ár. Félagsráðgjafi segir neyðina mikla og erfiða stöðu á húsnæðismarkaði hafa mikið að segja. Þá leiti nú fjölmargir skjólstæðingar hjálparstarfsins í smálán til að reyna að bjarga sér. 14.12.2022 18:40
Nístingskuldi í kortunum: Skoða aftur á morgun hvort ástæða sé til að loka sundlaugum Notkun á heitu vatni á höfuðborgarsvæðinu náði sögulegu hámarki í gær. Í nótt mældist átján gráðu frost í Húsafelli og ekki er útlit fyrir að kuldakast síðustu daga nái hámarki fyrr en á föstudaginn. Staðan verður metin á morgun varðandi hvort einstaka sundlaugum verði lokað tímabundið til að spara heita vatnið. 14.12.2022 14:46
„Ég reikna ekki með því að samningurinn verði felldur“ Formaður VR segist hvorki geta mælt með né á móti nýgerðum kjarasamningum en telur þó að þeir verði samþykktir af félagsmönnum. Verkalýðshreyfingin þurfi nú að líta inn á við og þétta raðirnar svo hægt sé að ná fram raunverulegum breytingum. 13.12.2022 19:23