Ef við hefðum ekki átt nál værum við öll nakin út í móa „Margt verður til í kvenna höndum“ er yfirskrift á sýningu, sem konur í Kvenfélaginu Einingu í Hvolhreppi eru með í félagsheimilinu Goðalandi í Fljótshlíð. Saumnálin spilar þar stærsta hlutverkið. 26.9.2022 20:05
Íslenski hesturinn á forsíðu New York Times Hesturinn Stormur, sem er blesóttur, níu vetra verður heimsfrægur á morgun, því hann prýðir forsíðu New York Times Magazine blaðsins, sem kemur þá út. 150 milljónir manna eru áskrifendur af blaðinu á netinu, og blaðið verður líka gefið út í milljónum prentaðra eintaka. 25.9.2022 20:35
Fyrstu íbúarnir eru að fara að flytja inn í nýtt hjúkrunarheimili á Selfossi Mikil ánægja og tilhlökkun er á Selfossi með opnun nýs hjúkrunarheimilis á staðnum en þar verða sextíu íbúar, 40 af höfuðborgarsvæðinu og tuttugu af Suðurlandi. Fyrstu íbúarnir flytja inn í heimilið 10. október. 25.9.2022 13:06
Um 300 hross í Laufskálarétt í dag Um þrjú þúsund manns eru nú í Laufskálarétt í Hjaltadal í Skagafirði en hrossin í réttinni eru þó ekki nema um þrjú hundruð. Dagurinn endar á réttarballi í kvöld. 24.9.2022 12:05
Kúabændur eru brattir með sig og kýrnar sínar Kúabændur landsins hafa náð að auka meðalframleiðslu á hverja kú um 50% á síðustu 30 árum. Á sama tíma hefur mjólkurkúm fækkað um 20% á meðan framleiðslan hefur aukist um 43%. Færri kýr þarf því til að framleiða meiri mjólk og þannig hefur bæði orðið gríðarleg hagræðing og minni losun kolefnis í greininni. 24.9.2022 09:07
Góð kartöfluuppskera í Krakkaborg í Flóahreppi Börnin í leikskólanum Krakkaborg í Flóahreppi og starfsfólk hoppa hæð sína af gleði þessa dagana því leikskólinn hefur fengið splunkunýtt gróðurhús og þá er kartöfluuppskeran með besta móti í útigarði skólans. 18.9.2022 20:05
Ullarvika á Suðurlandi fyrstu vikuna í október Tröllabandaprjón, handlitun í potti, ullarútsaumur, peysuprjón, sokkaprjón og spuni á rokk verður meðal þess, sem verður í boði á Ullarviku Suðurlands, sem stendur yfir fyrstu vikuna í október. 18.9.2022 13:06
Flottur harmoníkuleikari úr Skagafirði Einn efnilegasti og flottasti harmoníkuleikari landsins, Jón Þorsteinn Reynisson, sem er úr Skagafirði en býr á Akureyri hefur nú lokið framhaldsnámi við Konunglega danska tónlistarháskólann í Kaupmannahöfn í harmonikuleik. Hann spilar á takkaharmonikku. 17.9.2022 21:35
Fimmtíu til hundrað ný störf í Rangárþingi ytra Um fimmtíu til hundrað ný störf gætu orðið til með nýjum Grænum iðngarði í Rangárþingi ytra, en nú er unnið að kortlagningu á heppilegri atvinnustarfsemi og viðskiptatækifærum sem gætu átt heima innan iðngarðsins. 17.9.2022 14:06
Sérsveitin varar við sprengjufikti: „Það hafa orðið banaslys“ Sérsveitarmaður sem var á vettvangi á Selfossi í morgun ítrekar varnaðarorð lögreglu um alvarleika þess að meðhöndla sprengiefni. „Það hafa orðið banaslys á Íslandi við sprengjufikt, útlimamissir einnig og fólk hefur misst sjón. Þannig þetta er alveg stranglega bannað,“ segir sérsveitarmaður sem var kallaður á vettvang þegar tilkynnt var um torkennilegan hlut nærri Fjölbrautarskóla Suðurlands og Vallaskóla. 15.9.2022 15:14