Sólríkt og fremur hlýtt í dag Víða má gera ráð fyrir sólríku veðri og hægum vindi á landinu í dag. Yfirleitt fremur hlýtt að deginum og hiti á bilinu níu til fjórtán stig. Svalara austast á landinu og suðaustantil verður skýjað og lítilsháttar væta á stöku stað. 3.5.2025 08:40
Sögulegur sigur Umbótaflokks og skipbrot stóru flokkanna tveggja Umbótaflokkurinn (Reform UK), undir stjórn Nigel Farage, vann stórsigur í nýafstöðnum sveitastjórnarkosningum í Bretlandi. Verkamannaflokkurinn og Íhaldsflokkurinn biðu báðir skipbrot og náðu samanlagt aðeins 35 prósent atkvæða, sem er sögulega lágt. 3.5.2025 08:18
Nágrannaerjur, grjótkast og „víðáttuölvuðum“ veitt eftirför Lögreglan veitti ökumanni eftirför eftir að hann ók yfir hámarkshraða og hlýddi ekki stöðvunarskiltum. Eftir stutta eftirför reyndist viðkomandi „víðáttuölvaður“ og gat ekki gert grein fyrir sér. Hann var því handtekinn og vistaður í fangaklefa. 3.5.2025 07:39
Dóttir De Niro kemur út sem trans Airyn DeNiro, dóttir leikarans Roberts De Niro, kom út úr skápnum sem trans kona í vikunni. Leikarinn segist elska og styðja dóttur sína rétt eins og hann gerði áður en hún kom út sem trans. 1.5.2025 15:03
Birgir Guðjónsson er látinn Birgir Guðjónsson, stærðfræðikennari við Menntaskólann í Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi að morgni sumardagsins fyrsta, 24. apríl síðastliðinn, 68 ára að aldri. 1.5.2025 13:41
Segist hafa gert merka uppgötvun nú þegar hann „nálgast endalok lífs“ síns Náttúrufræðingurinn David Attenborough beinir sjónum sínum að höfum jarðar í nýjustu heimildamynd sinni en lítur líka um öxl yfir ævistarf sitt nú þegar hann nálgast „endalok lífs“ síns. Hann segir hafið spila lykilrullu í baráttunni við hamfarahlýnun. 1.5.2025 11:57
Hiti gæti náð fimmtán stigum Lægð suðaustur af Hornafirði stjórnar veðri landsins í dag með vestlægum áttum. Skýjað og dálítil væta og hiti á bilinu fimm til tíu stig. Bjartviðri á Suðausturlandi og Austfjörðum og gæti hiti þar náð 15 stigum. 1.5.2025 10:14
Tilkynnt um mann vopnaðan skotvopni og einn handtekinn Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um mann vopnaðan skotvopni á Hverfisgötu og var því sérsveitin kölluð út. Einn hefur verið handtekinn og er málið enn í rannsókn. 1.5.2025 08:39
Landsbankinn hagnaðist um 7,9 milljarða á fyrsta ársfjórðungi Hagnaður Landsbankans á fyrsta ársfjórðungi 2025 nam 7,9 milljörðum króna, sem er ellefu prósent aukning frá sama tímabili í fyrra. Þetta er fyrsta ársfjórðungsuppgjörið eftir kaup Landsbankans á tryggingarfyrirtækinu TM. 1.5.2025 08:00
Líkamsárás á veitingastað Lögreglu barst tilkynning um líkamsárás á veitingastað í miðborginni í nótt og er málið nú til rannsóknar. 1.5.2025 07:25