Geta lagt hald á eigur fólks sem gagnrýnir innrásina Vladimír Pútín, forseti Rússlands, skrifaði í morgun undir ný lög sem snúa að refsingu fólks sem dæmt er fyrir að segja „ósatt“ um rússneska herinn, vanvirða hann eða fyrir mótmæli eða aðgerðir sem sagðar eru ógna öryggi ríkisins. Auk þess að sekta fólk og dæma í fangelsi, getur ríkið nú lagt hald á eignir fólks. 14.2.2024 12:07
Demókrati nældi í þingsæti Santos Demókratinn Tom Suozzi bar sigur úr býtum í baráttu um þingsæti í New York og minnkaði þar með meirihluti Repúblikana í fulltrúadeildinni enn meira. Áður hafði George Santos setið í þingsætinu en honum var vikið af þingi í byrjun desember. 14.2.2024 11:08
Sökktu enn einu herskipinu með drónum Leyniþjónusta úkraínska hersins (GUR) birti í morgun myndband af sjálfsprengidrónaárás á rússneska herskipið Sesar Kúnikov. Skipið virðist hafa sokkið eftir árásina en þetta er fjórða skipið af þessari gerð sem Úkraínumenn hafa sökkt eða grandað. 14.2.2024 09:56
Hvetja fólk til að svara ekki óþekktum erlendum númerum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir fjölmarga Íslendinga hafa á undanförnum dögum fengið símtöl úr númerum sem skráð eru í Sri Lanka eða Lúxemborg. Þau hefjast því á +352 og +94. 13.2.2024 16:55
Trump vill frest fram yfir kosningar Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og væntanlegur forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, hefur beðið Hæstarétt Bandaríkjanna um að fresta úrskurði um hvort hann njóti friðhelgi gegn lögsókn þar til fram yfir forsetakosningarnar í nóvember. Verði dómarar við þeirri kröfu verður líklega ekki hægt að rétta yfir honum vegna árásarinnar á þinghús Bandaríkjanna þann 6. janúar 2021 og tilrauna hans til snúa úrslitum forsetakosninganna 2020. 13.2.2024 15:42
Gera aðra tilraun með hernaðaraðstoð Bandarískir öldungadeildarþingmenn samþykktu í dag frumvarp um 95,3 milljarða dala hernaðaraðstoð til Úkraínu, Ísraels og Taívan auk mannúðaraðstoðar til Palestínumanna. Frumvarpið var samþykkt eftir næturlangt málþóf nokkurra þingmanna Repúblikanaflokksins. 13.2.2024 13:34
Jon Stewart snýr aftur: „Hvað erum við að gera?“ Sjónvarpsmaðurinn Jon Stewart sneri aftur í sett The Daily Show í gærkvöldi, í fyrsta sinn frá því hann hætti árið 2015. Fyrir það hafði hann og rithöfundar hans á sextán árum gert þáttinn að ákveðnu stórveldi á sviði pólitískrar satíru. 13.2.2024 11:25
Eftirlýst í Rússlandi vegna sovéskra minnisvarða Yfirvöld í Rússlandi hafa gefið út handtökuskipun á Kaja Kallas, forsætisráðherra Eistlands. Taimar Peterkop, nokkurskonar ráðuneytisstjóri ríkisstjórnar Eistlands er einnig eftirlýstur í Rússlandi en talskona utanríkisráðuneytis Rússlands segir þau eftirlýst vegna niðurrifs á sovéskum minnisvörðum. 13.2.2024 10:55
Allir spila með GameTíví Það verður stuð og fjör hjá strákunum í GameTíví í kvöld þar sem þeir verða með opið hús. Áhorfendur munu geta tekið leik með þeim í Warzone. 12.2.2024 19:30
Sagður kalla Netanjahú drullusokk Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, er sagður pirraður út í Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, og hefur kallað hann drullusokk. Það hefur hann meðal annars gert í samræðum við stuðningsmenn forsetaframboðs síns og snýst reiði forsetans að mestu um það hvernig Netanjahú hefur haldið á spöðunum varðandi hernað Ísrael á Gasaströndinni. 12.2.2024 16:16