

Katrín Ósk Guðlaugsdóttir, meistaranemi í hárgreiðslu, vann til silfurverðlauna í keppninni Wella Trend Vision sem fram fór í París um helgina. Eyjafjallajökull og Vatnajökull voru Katrínu innblástur en hún atti kappi við hárgreiðslufólk frá 46 þjóðlöndum.
Félag sumarbústaðaeigenda í Heiðmörk óskar eftir rökstuðningi fyrir því að fækka eigi þar sumarhúsum vegna vatnsverndarsjónarmiða.
Mikilvægt er að niðurstöður sérfræðingahóps sem kortlagt hefur skuldavanda heimilanna verði grunnur að samráði sem leiði til þess að varanleg lausn finnist á vandanum segir Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
Icelandair vinnur að kynningarherferð ferðamálaráða í Danmörku, Noregi og Svíþjóð.
Tilnefningar forsætisnefndar kirkjuþings til sannleiksnefndarinnar verður fyrsta mál á dagskrá kirkjuþings sem sett verður á laugardaginn næstkomandi. Sannleiksnefndin á að rannsaka viðbrögð þjóðkirkjunnar við kynferðisbrotum og munu þrír skipa hana. Þeir eiga að vera óháðir stofnunum og embættum þjóðkirkjunnar.
Meira en þrjú þúsund farþegar og hátt í 1.500 manna áhöfn á skemmtiferðaskipinu Carnival Splendor fengu loks aðstoð í gær þegar fyrstu dráttarbátarnir frá Mexíkó komu til að toga skipið til hafnar.
Lögreglan í New York-ríki rannsakar nú hvort hluti ágóðans af lygilegri svikamyllu Helgu Ingvarsdóttur og kærasta hennar, Vickram Bedi, hafi verið fluttur til Íslands. Þetta segir upplýsingafulltrúi saksóknaraembættisins í Westchester-sýslu, sem lýsir málinu sem sápuóperu.
„Í fyrra var þetta orðin alger plága svo við fengum meindýraeyði og hann tók tólf stykki. Þetta voru allt saman kolvitlausir villikettir,“ segir Björgvin Þórðarson, húsvörður hjá Hrafnistu í Hafnarfirði, um kattaplágu í hrauninu við hjúkrunarheimilið.
Mjög hefur dregið saman með kröfum ríkisins og lífeyrissjóðanna um vexti í viðræðum um fjármögnun sjóðanna á vegaframkvæmdum fyrir á fjórða tug milljarða króna.
Áætlun um að friða þann hluta Geysissvæðisins sem er í eigu ríkisins hefur verið gerð hjá Umhverfisstofnun. Bláskógabyggð leggst gegn friðun á svæðinu þar til samkomulag næst milli allra sem eiga þar land.
Tveir menn, á þrítugsaldri, voru í gær úrskurðaðir í viku langt gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Þeir eru grunaðir um innbrot og þjófnaði úr heimahúsum í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum, sem handtók þá í fyrradag.
Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir innbrotaöldu ríða yfir og biður almenning um aðstoð.
Stjórnendur Byggðastofnunar telja að „nokkuð vel“ hafi tekist að gæta hagsmuna stofnunarinnar vegna lána til fyrirtækja í rækjuiðnaði. Þetta kemur fram í svari sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn Marðar Árnasonar Samfylkingunni.
Fyrstu mánuðirnir af aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið hafa gengið vel, og ekkert óvænt komið upp, segir Timo Summa, sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi. Hann kynnti fyrstu framvinduskýrslu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um Ísland í gær.
Íslensk kona, Helga Ingvarsdóttir, var handtekin ásamt kærasta sínum, Vickram Bedi, í Bandaríkjunum á fimmtudag fyrir stórfellda fjárkúgun.
Landakotsskóli leitar nýrra nemenda á miðjum vetri. Fjölmargir foreldrar hafa fengið bréf frá skólanum undanfarna daga þar sem börnum er boðið að skipta um skóla frá næstu mánaðamótum. Starfsmenn skólans hafa borið bréfið út í sjálfboðavinnu, segir Sölvi Sveinsson skólastjóri, og þeir séu ekki hálfnaðir við útburðinn.
Erlendir aðilar bera allan fjárhagslegan kostnað af hruninu og borga einnig hallann á viðskiptum Íslands við útlönd á síðustu árum. Þetta segir Gylfi Zoëga hagfræðiprófessor að hafi gleymst í þeirri miklu ólgu sem verið hafi hér á landi frá því að bankarnir fóru á hliðina í október 2008.
Hlutfall lögfræðinga frá Háskólanum í Reykjavík (HR) sem í fyrstu tilraun stóðust réttindapróf til að starfa sem héraðsdómslögmaður er í ár hærra en hlutfall útskrifaðra lögfræðinga frá lagadeild Háskóla Íslands (HÍ). Tæp 69 prósent útskrifaðra nemenda HR stóðust prófið í fyrstu tilraun á móti tæpum 65 prósentum frá HÍ.
Það er forseta Íslands að ákveða hvort hann skjóti Icesave-málinu til þjóðarinnar öðru sinni, sagði Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra á Alþingi í gær.
Tveir karlmenn um tvítugt hafa verið ákærðir fyrir líkamsárás í síðasta mánuði.
Franska snyrti- og tískuvörufyrirtækið Christian Dior hefur samið við fyrirtækið Icelandic Water Holdings um að nota lindarvatn úr Ölfusinu í krem sem kemur á markað í kringum áramótin. Vatninu er tappað á flöskur í verksmiðju Icelandic Water Holdings við Þorlákshöfn og selt um heim allan undir merkjum Icelandic Glacial.
Fagráð ljósmæðra á Landspítala ályktar að yfirvofandi niðurskurður í heilbrigðisþjónustunni muni ógna öryggi barnshafandi kvenna og fjölskyldna þeirra. Kom það fram á fundi fagráðsins í síðustu viku.
„Okkur finnst þetta öllum hið besta mál og skorum á fleiri að gera slíkt hið sama,“ segir Eiríkur Kristófersson, starfsmaður á D-vakt í steypuskálanum hjá Norðuráli á Grundartanga. D-vaktin gaf allan starfsmannasjóðinn til góðgerðamála.
Starfsfólki hjá heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni fækkar um samtals 456 nái niðurskurðartillögur ríkisstjórnarinnar fram að ganga. Átta af hverjum tíu sem missa vinnuna eru konur, alls 369 starfsmenn.
Þrátt fyrir nýbirta skýrslu þar sem fram kemur að jafnrétti kynjanna sé meira hér á landi en annars staðar virðist viðhorf íslenskra ungmenna vera á skjön við það. Félagsfræðingur kallar eftir aðgerðum innan skólakerfisins.
Evrópusambandið getur litlu svarað um viðbrögð sín við samningskröfum Íslendinga fyrr en þær kröfur hafa formlega verið lagðar fram.
Dekkjaskortur hefur gert vart við sig á sumum hjólbarðaverkstæðum höfuðborgarsvæðisins síðustu daga og vikur, enda tíðarfar þannig að langar biðraðir hafa myndast við mörg verkstæðanna.
Björgunartækjum sem ætluð eru til að bjarga fólki sem fellur í sjóinn á hafnarsvæði Sauðárkróks var stolið nýverið. Fram kemur á fréttavefnum Feyki að búnaðurinn geti skilið milli feigs og ófeigs detti fólk í sjóinn.
Sigurður Magnússon, fulltrúi Á-listans, sem situr einn í minnihluta í bæjarstjórn Álftaness, mótmælti á síðasta fundi samþykkt deiliskipulags sem felur í sér nýjan golfvöll í sveitarfélaginu.
Íbúar á Suðurlandi hafa nú hafið undirskriftasöfnun til að mótmæla fyrirhuguðum niðurskurði í heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni.