Fréttir

20 þúsund manns flúið heimili sín
Um 20 þúsund íbúar í og við Santa Barbara í Kaliforníu hafa yfirgefið heimili sín vegna skógarelda sem brennt hafa um 14 ferkílómetra svæði. Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í Kaliforníu.

Páfi í Mið-Austurlöndum
Benedikt páfi XVI. telur að kaþólska kirkjan geti gengt mikilvægu hlutverki í friðarferlinu fyrir botni Miðjarðarhafs. Heimsókn Páfa til Mið-Austurlanda hófst í Jórdaníu í dag.

Íhaldsþingmaður segir Brown hafa blekkt þingheim
Graham Brady, þingmaður breska Íhaldsflokksins, sem spurði Brown forsætisráðherra Bretlands í breska þinginu í fyrrdag um ábyrgð á innistæðum í Kaupþingi í Bretlandi, segir að forsætisráðherran hafi blekkt þingheim með svari sínu.

Vel á annað hundrað herskáir fallið
Vel á annað hundrað herskáir Talíbanar og al-Kaída liðar hafi fallið í loftárásum pakistanska stjórnarhersins á norðvestur Pakistan síðasta sólahringinn. Mörg hundruð þúsund íbúar hafa flúið í skelfingu vegna stórsóknar hersins.

Bakkavör átti daginn í Kauphöllinni
Gengi hlutabréfa í Bakkavör rauk upp um 27 prósent í Kauphöllinni í dag. Þetta er langmesta hækkunin. Á eftir fylgdi gengi bréfa Marel Food Systems, sem hækkaði um 4,08 prósent. Þá hækkaði gengi bréfa Færeyjabanka um 3,33 prósent og Össurar um 3,12 prósent.

Neyðarástand í Kaliforníu
Arnold Schwarzenegger, ríkisstjóri, hefur lýst yfir neyðarástandi í Kaliforníu vegna skógarelda sem loga þar.

Sakaðir um bruðl
Brown forsætisráðherra Bretlands varð fyrir enn einu áfallinu í morgun þegar breska blaðið Telegraph birti upplýsingar um endurgreiðslur af opinberu fé til 13 ráðherra í ríkisstjórn Verkamannaflokksins vegna útgjalda sem hægt er að endurgreidd. Brown og fleiri ráðherrar eru sakaðir um að bruðla með almannafé.

Stórsókn gegn Talíbönum
Mörg hundruð þúsund íbúar hafa lagt á flótta frá átakasvæðum í norðvestur Pakistan. Þarlend stjórnvöld hófu í gær stórsókn gegn Talíbönum nærri landamærunum að Afganistan. Allt stefnir í einn mesta flóttamannastraum heims um leið og miklir og jafnvel langvinnir bardagar eru að hefjast í Pakistan.

Gengi Century Aluminum rýkur upp um hundruð prósenta
Gengi hlutabréfa í Century Aluminum, móðurfélagi Norðuráls, hækkaði um 10,76 prósent í Kauphöllinni í dag. Þetta er langmesta hækkun dagsins. Gengi hlutabréfa í félaginu náði lægsta gildi, 135,5 krónum á hlut snemma í mars. Það stendur nú í 988 krónum á hlut og jafngildir það 629 prósenta hækkun á tímabilinu.

Enn eykst markaðsverðmæti Century Aluminum
Gengi hlutabréfa í Century Aluminum, móðurfélagi Norðuráls, hefur hækkað um 7,85 prósent í dag og gengi bréfa Bakkavarar um 0,79 prósent.

Ætlar að gera Fiat næst stærsta
Í miðri kreppu vill stjórnandi Fiat gera fyrirtækið að næst stærsta bílaframleiðanda heims. Hann hefur áður ráðist í miklar framkvæmdir í niðursveiflu og þá á Íslandi.

Gengi bréfa í Century Aluminum rauk upp um rúm 60 prósent
Gengi hlutabréfa í Century Aluminum, móðurfélagi Norðuráls, rauk upp um 65,98 prósent í Kauphöllinni í dag á mjög sveiflukenndum degi. Gengi bréfa Bakkavarar ruku upp um 11,5 prósent og Össurar um 1,93 prósent.

Gengi hlutabréfa Century Aluminum rýkur upp
Gengi hlutabréfa í Century Aluminum, móðurfélagi Norðuráls, rauk upp um 29,38 prósent í fyrstu viðskiptum dagsins í Kauphöllinni. Tvenn viðskipti upp á 1,3 milljónir króna standa á bak við viðskiptin.

Enn lækkar afurðaverð
Verð á íslenskum sjávarafurðum lækkaði um 1,5 prósent í mars mælt í erlendri mynt og var þetta níundi mánuðurinn í röð sem verðið lækkar. Það er nú jafn hátt og í mars 2006, samkvæmt nýrri greiningu IFS.

Bréf Marel Food Systems hækka mest í byrjun dags
Gengi hlutabréfa í Marel Food Systems hefur hækkað um 1,59 prósent í fyrstu viðskiptum dagsins í Kauphöllinni. Á sama tíma hefur gengi bréfa Össurar lækkað um 0,64 prósent.

Hlutabréf Marel Food Systems hækkuðu mest í dag
Gengi hlutabréfa í Marel Food Systems hefur hækkað um 5,12 prósent í dag og er það mesta hækkun dagsins. Þá hækkaði gengi bréfa Össurar um 4,11 prósent og Century Aluminum um 1,07 prósent.

Segir skuldir bankanna vera þjóðinni ofviða
"Hver er staða þjóðarbúsins? Er Ísland gjaldþrota?“ var yfirskrift hádegisverðarfundar félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga sem fram fór á Grand Hóteli í gær. Kjartan Guðmundsson fylgdist með umræðunum.

Marel Food Systems lækkar mest í byrjun dags
Gengi hlutabréfa í Marel Food Systems féll um 3,45 prósent í fyrstu viðskiptum dagsins í Kauphöllinni í dag. Á eftir fylgir Össur, en gengi hlutabréfa fyrirtækisins lækkaði um 1,34 prósent.

Marel lækkaði mest í dag
Gengi hlutabréfa í Marel Food Systems endaði daginn 3,43 prósentum neðar en á föstudag og bréf Össurar 1,32 prósentum. Á móti hækkaði gengi bréfa Century Aluminum, móðurfélags Norðuráls, um 2,08 prósent og Bakkavarar um 0,88 prósent.

Gengi bréfa Marel Food Systems falla í byrjun dags
Gengi hlutabréfa í Marel Food Systems hefur fallið um 4,27 prósent frá því viðskipti hófust í Kauphöllinni í dag. Þá hefur gengi bréfa Össurar lækkað um 0,33 prósent.

Gengi bréfa Marel Food Systems féll um fimm prósent
Gengi hlutabréfa í Marel Food Systems féll um fimm prósent í Kauphöllinni í dag en það er mesta lækkun dagsins. Á sama tíma lækkaði gengi bréfa Össurar um 0,77 prósent. Hins vegar skaust gengi bréfa Century Aluminum, móðurfélags Norðuráls, upp um 11,33 prósent.

Marel eitt á hreyfingu í Kauphöllinni
Gengi hlutabréfa í Marel Food Systems lækkaði um 2,96 prósent í upphafi viðskiptadagsins í Kauphöllinni í dag. Fjögur viðskipti upp á 24,7 milljónir króna standa á bak við lækkunina.

Gengi hlutabréfa Bakkavarar hækkaði mest í dag
Gengi hlutabréfa í Bakkavör hækkaði um 1,79 prósent í dag og Össurar um 0,88 prósent. Þetta voru einu hækkanir dagsins.

Gengi bréfa Century Aluminum lækka í byrjun dags
Gengi hlutabréfa í Century Aluminum, móðurfélagi Norðuráls, lækkaði um 1,41 prósent í tvennum viðskiptum upp á 441 þúsund krónur í Kauphöllinni við upphaf dags. Þetta er jafnframt eina hreyfing dagsins.

Gengi Century Aluminum féll um 10 prósent
Gengi hlutabréfa í Century Aluminum, móðurfélagi Norðuráls, féll um tíu prósent í Kauphöllinni í dag. Þetta er jafnframt mesta lækkun dagsins. Á eftir fylgdi gengi bréfa í Marel Food Systems, sem fór niður um 1,54 prósent.

Hlutabréf Marel Food Systems lækka í byrjun dags
Gengi hlutabréfa í Marel Food Systems hefur lækkað um 0,19 prósent í Kauphöllinni í dag. Tólf viðskipti upp á 62,3 milljónir króna skýrir lækkunina. Þetta er jafnframt eina hreyfingin á hlutabréfamarkaði það sem af er dags.

Bréf Century Aluminum féllu um 5,62 prósent í dag
Gengi hlutabréfa í Century Aluminum, móðurfélagi Norðuráls, féll um 5,62 prósent í viðskiptum upp á rúmar 140 þúsund krónur í Kauphöllinni í dag. Þetta er mesta fall dagsins. Á eftir fylgdi gengi Marel Food Systems, sem féll um 4,59 prósent. Þá lækkaði gengi bréfa í Össuri um 1,95 prósent og Færeyjabanka um 1,64 prósent.

Gengi bréfa Marel Food Systems falla í byrjun dags
Gengi hlutabréfa í Marel Food Systems hefur fallið um 2,94 prósent frá því viðskipti hófust í Kauphöllinni í dag. Viðskiptin á bak við gengisþróunina eru sjö talsins upp á 37,4 milljónir króna. Þá hafa ein viðskipti verið með bréf Bakkavarar upp á 270 þúsund krónur.

Hlutabréf Össurar hækka mest í byrjun dags
Gengi hlutabréfa Össura hefur hækkað um 1,44 prósent í Kauphöllinni í dag og bréf Marel Food Systems um 0,94 prósent. Þetta eru einu hreyfingar dagsins en viðskipti á hlutabréfamarkaði eru fjórtán talsins upp á 67,5 milljónir króna.

Talsverð hækkun í Kauphöllinni
Gengi hlutabréfa í Eimskipi hækkaði um 25 prósent í Kauphöllinni í dag og bréf Century Aluminum, móðurfélags Norðuráls, um 24,25 prósent. Þá hækkaði gengi bréfa á Marel Food Systems um 12,91 prósent. Bréf Össurar fóru upp um 1,01 prósent og Færeyjabanka um 0,4 prósent.