
Smálán

Neytendasamtökin kanna grundvöll fyrir hópmálsókn gegn smálánafyrirtækjum
Neytendasamtökin kanna grundvöll fyrir hópmálsókn gegn fyrirtækinu eCommerce 2020 sem býður upp á smálán hér á landi í gegnum fimm smálánafyrirtæki.

Smálánafyrirtækið eCommerce braut gegn ákvæðum laga um neytendalán
Í úrskurði Neytendastofu í máli eCommerce 2020 er fyrirtækinu gert skylt að breyta stöðluðu eyðiblaði og lánssamningi.

Neytendasamtökin skera upp herör gegn smálánastarfsemi
Neytendasamtökin hafa sent inn umsögn um fyrirhugað frumvarp atvinnuvegaráðuneytisins um til breytingar á lögum til að taka á ólöglegri smálánastarfsemi. Formaður samtakanna segir þau hafa skorið upp herör gegn smálánastarfsemi undanfarið.

Sparisjóðsstjóri neitar ábyrgð
Neytendasamtökin og VR hvetja lántakendur til að hætta að greiða af smálánaskuldum nema að fá skýra sundurliðun á kröfum.

VR fer í hart gegn smálánafyrirtækjum
Stjórn VR samþykkti í kvöld að fara í samstarf með Neytendasamtökunum til þess að berjast gegn smálánum og harkalegum innheimtuaðgerðum þeim tengdum. VR mun meðal annars leggja út fyrir kostnaði vegna lögfræðivinnu í tengslum við baráttu gegn ólögmætri innheimtu smálánafyrirtækja.

Almenn innheimta með málið í skoðun
Í yfirlýsingu Neytendasamtakanna segir að til félagsins streymi enn ábendingar og fyrirspurnir frá fólki sem tekið hafi smálán sem séu í innheimtu hjá Almennri innheimtu.

„Neytendasamtökin telja fullreynt að höfða til samvisku Gísla Kr. Björnssonar“
Neytendasamtökin hafa fengið sig fullsödd af lögmanninum Gísla Kr. Björnssyni sökum fullyrðinga hans um framgöngu Almennrar innheimtu ehf., sem samtökin segja að standist ekki skoðun.

Munu fylgjast grannt með innheimtu smálána
Umboðsmaður skuldara hefur langa reynslu af smálánum, í fyrra og árið á undan hefur meira en helmingur sem þangað leitar glímt við sligandi smálánaskuldir.

Neytendasamtökin krefjast tafarlauss endurútreiknings smálána
Í fréttatilkynningu frá Neytendasamtökunum er farið fram á að Almenn innheimta ehf. stöðvi innheimtu og láti umboðsmann skuldara fá öll nauðsynleg gögn og segja mjög hafa skort á upplýsingagjöf frá Almennri innheimtu efh. til lántakenda. Meira en helmingur þeirra sem leituðu til Umboðsmanns skuldara í fyrra höfðu tekið smálán.

Fundir með Umboðsmanni skuldara skiptu miklu máli
Forstjóri Kredia Group hefur fundað margsinnis með Umboðsmanni skuldara. Í fyrra var meira en helmingur þeirra, sem óskuðu eftir aðstoð, með smálán.

Smálán heyra nú sögunni til
Forstjóri Kredia Group, sem á smálánafyrirtækin 1909, Múla og fleiri, segist bera virðingu fyrir íslenskum lögum. Aðeins verði lánað fyrir hæstu löglegu vexti. Innheimtu lána á hærri vöxtum hafi verið hætt.

Ráðleggur neytendum að forðast eCommerce
Lánafyrirtækið eCommerce 2020, sem rekur smálánafyrirtækin Kredia, Hraðpeninga og fleiri, hefur lækkað vexti niður í þá hæstu leyfilegu samkvæmt lögum. Framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna hefur efasemdir.

Vilja breytt lög um smálán
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið birti í gær áform um lagabreytingu á lögum um neytendalán á samráðsvef stjórnvalda.

Þrjú skref sem lántakendur smálána geta stigið
Neytendasamtökin hafa tekið saman þrjú skref sem lántakendur smálána geta stigið til þess að vernda eigin hagsmuni gagnvart smálánafyrirtækjum. Það er mat Neytendasamtakanna að ekki megi innheimta kröfur sem bera ólöglega vexti.


Smálánaþrotin námu hátt í hálfum milljarði
Skiptum er lokið á þrotabúi fyrirtækjanna Smálána og Kredia sem bæði voru úrskurðuð gjaldþrota fyrir nokkrum árum. Lýstar kröfur í búin tvö námu á fimmta hundrað milljónum. Smálánaváin lifir enn úr dönsku skjóli.

Kröfðu Smálán ehf. um 171 milljón
Skiptum í þrotabú smálánafyrirtækisins Smálán ehf., sem fór í þrot árið 2016, lauk í upphafi mánaðar.

Ráðuneytið hefur ekki haft samband við innheimtuaðila smálána
Atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið hefur ekki haft samband við eftirlitsaðila með innheimtufyrirtækjum smálána til að kanna hvort neytendum séu veittar rangar eða villandi upplýsingar um kröfur.

Komist upp með grímulaus lögbrot
Í kjölfar þess að Alþingi setti lög á starfsemi smálánafyrirtækja árið 2013 lögðu fyrirtækin upp laupana hvert af öðru. Þau lifa þó enn góðu lífi og halda áfram að lána Íslendingum íslenskar krónur með mörg hundruð prósent vöxtum.

Formaður starfshóps fékk óumbeðin SMS
Formaður og meðlimur starfshóps ráðherra um starfsumhverfi smálánafyrirtækja fengu óumbeðin SMS-skilaboð frá smálánafyrirtækjum. Innheimtufyrirtæki sem skráð er á Siglufirði svarar ekki erindum um starfshætti.

Auka þurfi fjármálafræðslu og stýra aðgengi að lánum
Verkefnastjóri hjá Samtökum fjármálafyrirtækja segir að auka þurfi fjármálafræðslu meðal ungs fólks og stýra aðgengi að lánum. Vandi vegna smálánatöku ungs fólks eykst ár frá ári samkvæmt umboðsmanni skuldara.

Vandi vegna smálána eykst ár frá ári
Enn fjölgar í hópi ungs fólks sem leitar til umboðsmanns skuldara (UMS) vegna fjárhagsvanda.

Fleiri smálánaskuldarar leita aðstoðar en áður
Fólk með smálánaskuldir leitar í auknum mæli eftir aðstoð hjá umboðsmanni skuldara. Í nýrri skýrslu um smálánafyrirtæki kemur fram að ólögleg smálán valdi hvað mestum vanda hjá neytendum.

Tólf tillögur til að vernda neytendur vegna ólöglegra smálána
Ráðherra fól starfshópnum síðasta sumar að kortleggja starfsumhverfi smálánafyrirtækja og leggja fram tillögur til úrbóta.

Gjaldþrot Kredia nam 252 milljónum króna
Engar eignir fundust í búi Credit one ehf., sem rekið hafði smálánafyrirtækið Kredia.

Ungu fólki í viðjum skulda og skyndilána fer hratt fjölgandi
Þrjátíu prósent umsækjenda hjá Umboðsmanni skuldara eru nú fólk á aldrinum 18-29 ára. Ungu fólki í skuldavanda fjölgar mest. Skyndilán myllusteinn um háls margra.

Þeir sem eru í vanskilum með smálán íhugi rétt sinn
Formaður starfshóps sem er að skoða umhverfi smálánafyrirtækja á Íslandi telur smálán hugsanlega vera ólögleg. Þeir sem hafi lent í vanskilum með smálán ættu að íhuga að kanna rétt sinn

Yfir helmingur í skuldavanda vegna skyndilána
Ung kona sem sótti nýverið um greiðsluaðlögun safnaði 2,7 milljóna króna skuldum vegna skyndilána á einungis fimm mánuðum. Umboðsmaður skuldara segir þetta vera sorglega algengt og mikið áhyggjuefni en meirihluti þeirra sem hafa leitað til embættisins á árinu hafa gert það vegna skyndilána.

Bankar þurfa að hugsa út fyrir kassann og endurskilgreina sig
Fjármálastarfsemi stendur á tímamótum.

Neytendur smálána með verra fjármálalæsi en almennir neytendur
Lektor í viðskiptafræði segir að neytendur smálána séu líklegri til að vera yngri, karlkyns og með lægri tekjur og menntun.