Viðskipti Hagnaður FL Group 11 milljarðar króna FL Group skilaði rétt tæpum 11 milljörðum króna í hagnað á fyrstu níu mánuðum ársins samanborið við tæpa 6,6 milljarða krónur í fyrra. Hagnaður félagsins á þriðja ársfjórðungi nam 5,25 milljörðum krónum miðað við rúma 4,6 milljarða krónur í fyrra. Viðskipti innlent 13.11.2006 10:26 Hlutafjáraukning hafin í Kaupþingi Útboð er hafið á nýjum hlutum í Kaupþingi til alþjóðlegra stofnfjárfesta. Hlutirnir jafngilda 10 prósentum af þegar útgefnu hlutafé í bankanum. Viðskipti innlent 13.11.2006 09:40 CCP gleypir þekktan bandarískan leikjaframleiðanda Íslenska tölvuleikjafyrirtækið CCP hf., sem framleiðir og selur EVE Online, og bandaríska útgáfufélagið White Wolf Publishing, Inc. tilkynntu sameiningu fyrirtækjanna um helgina. Fyrirtækin halda starfsemi sinni áfram undir óbreyttum nöfnum, en bandaríska fyrirtækið verður rekið sem dótturfyrirtæki CCP. Hilmar Pétursson, framkvæmdastjóri CCP, verður forstjóri og stjórnarformaður fyrirtækjanna. Í sameiginlegri tilkynningu félaganna segir að við sameininguna verði til stærsta fyirrtæki heims á sviði sýndarheima, eða Virtual Worlds, sem sé nýtt skemmtanaform, aðskilið frá hefðbundnum tölvuleikjum. Leikjavísir 13.11.2006 03:56 Eimskip fær nýtt frystiskip Eimskip tók í dag við nýju frystiskipi sem hljóta mun nafnið Storfoss á morgun. Þetta er annað nýja frystiskipið sem félagið fær afhent á einu ári. Innlent 11.11.2006 16:39 Avion verður óskabarnið Stjórn Avion Group leggur það til fyrir hluthafafund félagsins að nafni þess verði breytt í Hf. Eimskipafélag Íslands sem rekur sögu sína aftur til upphafs fyrri heimsstyrjaldar. Viðskipti innlent 11.11.2006 10:40 Verðbólga nánast óbreytt Viðskipti innlent 11.11.2006 10:40 Össur verðlaunað fyrir gervifót
106 107 108 109 110 111 112 113 114 … 223 ›
Hagnaður FL Group 11 milljarðar króna FL Group skilaði rétt tæpum 11 milljörðum króna í hagnað á fyrstu níu mánuðum ársins samanborið við tæpa 6,6 milljarða krónur í fyrra. Hagnaður félagsins á þriðja ársfjórðungi nam 5,25 milljörðum krónum miðað við rúma 4,6 milljarða krónur í fyrra. Viðskipti innlent 13.11.2006 10:26
Hlutafjáraukning hafin í Kaupþingi Útboð er hafið á nýjum hlutum í Kaupþingi til alþjóðlegra stofnfjárfesta. Hlutirnir jafngilda 10 prósentum af þegar útgefnu hlutafé í bankanum. Viðskipti innlent 13.11.2006 09:40
CCP gleypir þekktan bandarískan leikjaframleiðanda Íslenska tölvuleikjafyrirtækið CCP hf., sem framleiðir og selur EVE Online, og bandaríska útgáfufélagið White Wolf Publishing, Inc. tilkynntu sameiningu fyrirtækjanna um helgina. Fyrirtækin halda starfsemi sinni áfram undir óbreyttum nöfnum, en bandaríska fyrirtækið verður rekið sem dótturfyrirtæki CCP. Hilmar Pétursson, framkvæmdastjóri CCP, verður forstjóri og stjórnarformaður fyrirtækjanna. Í sameiginlegri tilkynningu félaganna segir að við sameininguna verði til stærsta fyirrtæki heims á sviði sýndarheima, eða Virtual Worlds, sem sé nýtt skemmtanaform, aðskilið frá hefðbundnum tölvuleikjum. Leikjavísir 13.11.2006 03:56
Eimskip fær nýtt frystiskip Eimskip tók í dag við nýju frystiskipi sem hljóta mun nafnið Storfoss á morgun. Þetta er annað nýja frystiskipið sem félagið fær afhent á einu ári. Innlent 11.11.2006 16:39
Avion verður óskabarnið Stjórn Avion Group leggur það til fyrir hluthafafund félagsins að nafni þess verði breytt í Hf. Eimskipafélag Íslands sem rekur sögu sína aftur til upphafs fyrri heimsstyrjaldar. Viðskipti innlent 11.11.2006 10:40
Heildarútlán Íbúðalánsjóðs jukust um 82 prósent Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu 6,2 milljörðum króna í október sem er 82 prósenta aukning á milli mánaða. Aukningin skýrist að hluta til vegna umtalsverðra aukningu í leiguíbúðalánum sem námu 2,2 milljörðum króna í mánuðinum. Almenn útlán sjóðsins námu um 4,0 milljörðum króna í október sem er tæplega 23 prósenta aukning frá fyrramánuði. Viðskipti innlent 10.11.2006 17:04
Íbúðalán banka jukust um 20 prósent Íbúðalán bankastofnana námu 3,8 milljörðum króna í síðasta mánuði en þetta er 20 prósenta aukning á milli mánaða. Útlánaaukningin helst í hendur við aukna veltu á fasteignamarkaði í október en alls voru 388 íbúðalán veitt í mánuðinum og var meðallánsupphæð 9,8 milljónir króna. Viðskipti innlent 10.11.2006 16:43
Hagnaður Vinnslustöðvarinnar minnkar um 82 prósent Hagnaður Vinnslustöðvarinnar dróst saman um 82 prósent á milli ára. Hagnaðurinn á fyrstu níu mánuðum ársins nam 87 milljónum króna en nam 480 milljónum króna á sama tíma fyrir ári. Viðskipti innlent 10.11.2006 16:35
Eimskip rekur stærstu kæligeymslu í Kína Eimskip og Qingdao Port Group hafa undirritað viljayfirlýsingu um rekstur á stærstu kæligeymslu í Kína, sem verður á Qingdao-höfninni, þriðju stærstu gámaflutningahöfn í Kína. Samkvæmt viljayfirlýsingunni munu aðilarnir tveir í sameiningu byggja upp nútímalega kæligeymslu eftir evrópskum stöðlum. Viðskipti innlent 10.11.2006 15:33
Fjármálastjóri Avion Group lætur af störfum Steingrímur Pétursson, fjármálastjóri Avion Group, hefur ákveðið að láta af starfi sínu og hefur hann samið um starfslok sín hjá félaginu. Steingrimur hefur verið fjármálastjóri Avion Group frá því að félagið keypti Eimskip í júní í fyrra, en áður hafði hann starfað hjá Eimskip frá árinu 2004. Viðskipti innlent 10.11.2006 12:41
Framkvæmdastjóraskipti hjá Icelandic Group Icelandic Group og Dr. Norbert Engberg framkvæmdastjóri dótturfélaganna Pickenpack H&H og Pickenpack Gelmer SAS, hafa gert með sér samkomulag um að Dr. Engberg láti af störfum. Við starfi hans taka Finnbogi Baldvinsson framkvæmdastjóri Icelandic Europe og Wolfgang Kohls framkvæmdastjóri Pickenpack H&H. Viðskipti innlent 10.11.2006 12:36
Sparisjóðir Keflavíkur og Ólafsvíkur sameinast Stjórnir Sparisjóðsins í Keflavík og Sparisjóðs Ólafsvíkur hafa undirritað áætlun um samruna sparisjóðanna sem miðast reikningslega við 1. júlí 2006. Fréttablaðið greindi frá þessu í blaðinu í dag þar sem segir að stefnt sé að fullum samruna sjóðanna fyrir áramót eftir samþykki fundar stofnfjáreigenda. Viðskipti innlent 10.11.2006 10:17
Mátu alþjóðlega fjármálastarfsemi á Íslandi Skýrsla nefndar forsætisráðherra um forsendur alþjóðlegrar fjármálastarfsemi á Íslandi og samkeppnishæfni landsins á því sviði hefur nú verið birt á heimasíðu ráðuneytisins. Ennfremur eru þar reifuð þau tækifæri sem slík starfsemi skapar og fjallað um þann ávinning sem kann að hljótast af henni fyrir efnahag og atvinnulíf í landinu. Innlent 10.11.2006 10:17
Verðbólga mælist 7,3% Vísitala neysluverðs hefur lækkað um 0,04% frá síðasta mánuði og jafngildir það 7,3% verðbólgu á ársgrundvelli, samkvæmt útreikningum Hagstofu Íslands. Þetta er í takt við spár greiningardeilda bankanna, sem spáðu því að verðbólga myndi mælast á bilinu 7,2 til 7,4%. Innlent 10.11.2006 09:00
Peningaskápurinn ... Kaup Danske Bank á bankahluta Sampo-fjármálasamsteypunnar eru liður í því að styrkja samkeppnisstöðu danska bankans gagnvart Nordea, stærsta banka Norðurlanda en báðir bankarnir vilja stækka í gegnum Eystrasaltsríkin og Rússland. Viðskipti innlent 9.11.2006 18:11
Methagnaður hjá Disney Bandaríski afþreyingarisinn Disney skilaði methagnaði á þriðja fjórðungi ársins. Hagnaðurinn nam 782 milljónum bandaríkjadala, jafnvirði rúmlega 53 milljarða íslenskra króna og hefur hann aldrei verið meiri. Hagnaðurinn er að mestu tilkominn vegna góðrar aðsóknar á kvikmyndir undir merkjum Disney og í Disneygarðana. Viðskipti erlent 9.11.2006 23:01
Hagnaður Actavis 715 milljónir króna Hagnaður lyfjafyrirtækisins Actavis dróst nokkuð saman á þriðja fjórðungi ársins samanborið við síðast ár. Helsta ástæðan er kostnaður vegna yfirtökuferlis í króatíska lyfjafyrirtækið Pliva. Hagnaður Actavis nam 8,2 milljónum evra eða tæpar 715 milljónir króna samanborið við 23,3 milljónir evra, jafnvirði 2 milljarða króna. Viðskipti innlent 9.11.2006 21:33
Fitch staðfestir lánshæfismat ríkissjóðs Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch Ratings greindi frá því í dag að það hefði staðfest lánshæfismat ríkissjóðs Íslands. Lánshæfiseinkunn fyrir erlendar langtímaskuldbindingar er AA- (AA mínus) og fyrir innlendar skuldbindingar AAA og horfur fyrir matið eru neikvæðar. Matsfyrirtækið segir Ísland þurfa að sýna fram á það geti tekist á við hagsveiflur þegar skuldir aukast enn frekar. Það hafi verið gert á Nýja-Sjálandi, sem hefur álíka lánshæfismat, að sögn Fitch Ratings. Viðskipti innlent 9.11.2006 15:46
Eimskip kaupir fyrirtæki á Nýfundnalandi Eimskip hefur eignast meirihluta í fyrirtækinu Harbour Grace CS Inc (HGCS) á Nýfundnalandi. Harbour Grace sér um frystigeymslu- og losunarþjónustu við togara í bænum Harbour Grace við Conception Bay á Nýfundalandi. Eimskip hefur átt fjórðungshlut í Harbour Grace Inc frá árinu 2000. Viðskipti innlent 9.11.2006 15:11
Viðskiptahalli Bandaríkjanna minnkar hratt Viðskiptahalli Bandaríkjanna minnkaði um 4,7 milljarða dali eða 320,7 milljarða íslenskra króna í september. Þetta jafngildir 6,8 prósenta samdrætti á milli mánaða en viðskiptahallinn hefur ekki dregist jafn mikið saman síðan í febrúar árið 2001. Helsta ástæðan er lægra heimsmarkaðsverð á hráolíu. Viðskipti erlent 9.11.2006 14:09
Breytingar boðaðar í House of Fraser Breskir fjölmiðlar hafa í dag vitnað til Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, forstjóra Baugs, sem segir að breskar verslanir séu leiðinlegar og þreytandi og bjóði margar hverjar upp á sama vöruúrval. Baugur Group og aðrir fjárfestar luku við kaup á bresku verslanakeðjunni House of Fraser í gær. Jón sagði verslanakeðjuna ætla að hætta sölu nokkurra þekktra vörutegunda, hefja sölu á nýjum merkjum og „krydda“ vöruúrvalið. Viðskipti innlent 9.11.2006 13:34
Bílainnflutningur dregst hratt saman Bílainnflutningur hefur dregist hratt saman síðustu vikurnar og voru innan við þúsund nýir fólksbílar skráðir hér á landi í síðasta mánuði. Það er langt innan við meðaltal síðustu missera. Innlent 9.11.2006 12:02
Stýrivextir hækkaðir í Bretlandi Bankastjórn Englandsbanka ákvað að hækka stýrivexti um 25 punkta að loknu fundi Peningamálanefndar í dag. Stýrivextirnir standa nú í 5 prósentum. Greiningaraðilar bjuggust flestir við hækkuninni. Viðskipti erlent 9.11.2006 12:09
Hagnaður Lenovo minnkar um helming Kínverski tölvuframleiðandinn Lenovo skilaði 43,09 milljóna dala hagnaði á fyrri helmingi rekstrarársins, sem lauk í septemberlok. Þetta svarar til 2,9 milljarða króna sem er 53 prósentum minna en fyrir ári. Samdrátturinn er að mest kominn til vegna kaupa Lenovo á tölvuframleiðsluhluta IBM í fyrra. Viðskipti erlent 9.11.2006 11:48
Líkur á hærri stýrivöxtum í Bretlandi Seðlabanki Englands ákveður stýrivaxtastig í Bretlandi í dag. Greiningaraðilar telja flestir að bankinn hækki vexti um 25 punkta og fari þeir úr 4,75 prósentum í 5 prósent til að slá á hækkandi verðbólgu í landinu. Viðskipti erlent 9.11.2006 11:16
Tap Napster minnkar milli ára Nettónlistarveitan Napster, skilaði 9 milljóna dala taprekstri á þriðja ársfjórðungi. Þetta svarar til 614 milljóna króna taprekstrar á tímabilinu sem þó er nokkuð minna en á sama tíma fyrir ári. Eigendur Napster leitast við að sameinast öðru fyrirtæki eða selja það. Viðskipti erlent 9.11.2006 10:30
Danske Bank gerir risakaup í Finnlandi Danski bankinn Danske Bank hefur keypt finnska bankann Sampo Bank fyrir 30,1 milljarða danskra króna eða rúmlega 352 milljarða íslenskra króna. Danska dagblaðið Berlingske Tidende hefur eftir Peter Straarup, forstjóra Danske Bank, kaupin í samræmi við stefnu bankans um starfsemi í Norður-Evrópu. Viðskipti erlent 9.11.2006 10:02
Aukið tap hjá DeCode DeCode, móðurfélag Íslenskrar erfðagreiningar, tapaði 23,6 milljónum Bandaríkjadala, jafnvirði 1,6 milljörðum króna, á þriðja fjórðungi ársins samanborið við 11,4 milljónir dala tap eða tæplega 778 milljónir króna, á sama tíma í fyrra. Tap móðurfélagsins á fyrstu níu mánuðum ársins nemur 62,2 milljónum dala eða 4,2 milljörðum króna sem er 1,4 milljörðum krónum meira en á sama tíma í fyrra en þá nam tapið 2,8 milljörðum. Viðskipti innlent 9.11.2006 09:43