Viðskipti
123 124 125 126 127 128 129 130 131 … 223 ›
Merrill Lynch spáir minnkandi álagi Í þriðju skýrslu Merrill Lynch íslenska banka og efnahagslíf kveður við heldur jákvæðari tón en áður . Eftir fyrstu skýrslu bankans í mars féll gengi krónunnar og í hönd fór erfið umræða um bankanna. Viðskipti erlent 22.9.2006 18:51
Tanganyika stefnirá sænska aðallistann Alþjóðlega olíuleitarfélagið Tanganyika vinnur hörðum höndum að þvi að færa skráningu sína af First North, hliðarmarkaði OMX, yfir á O-listann, aðallistann í Stokkhólmi. Straumur-Burðaráss er einn stærsti hluthafinn með tíu prósenta hlutafjár. Viðskipti erlent 22.9.2006 18:51
Avion birtir uppgjör Avion Group birtir á mánudaginn uppgjör fyrir þriðja ársfjórðung reikningsársins sem lauk í júlí. Rekstur Avion er árstíðabundinn og myndast hagnaður á seinni hluta rekstrarársins. Viðskipti innlent 22.9.2006 18:51
Finnair nýtur vinsælda í Japan Lesendur japanska tímaritsins AB-ROAD hafa útnefnt Finnair sem eftirlætis vestræna flugfélagið sitt. Við valið var horft til þátta eins og þjónustu flugfélaganna og veitinga um borð. Japanskir flugfarþegar eru sérstaklega ánægðir með þær veitingar sem Finnair býður upp á. Finnair greindi frá því í ágúst að farþegafjöldi í Asíuflugi hefði aukist um fjörutíu prósent milli ára. Félagið er að stórum hluta í eigu íslenskra fjárfesta. Viðskipti erlent 22.9.2006 18:51
Enn líf á íbúðamarkaði Íbúðaverð hækkaði um 2,4 prósent á milli júlí og ágúst á höfuðborgarsvæðinu, samkvæmt vísitölu sem Fasteignamat ríkisins birti í gær. Mælingin gefur til kynna að enn sé líf að finna á íbúðamarkaði og bið sé í verðlækkun, að mati greiningardeildar Glitnis. Viðskipti innlent 22.9.2006 12:41
Nýsköpunarsjóður fjárfestir í Marorku Nýsköpunarsjóður hefur ákveðið að fjárfesta í Marorku ehf., hátæknifyrirtæki á sviði orkustjórnunar og orkusparnaðar í sjávarútvegi og flutningum. Hlutur sjóðsins verður um 20 prósent og mun innkoma hans styrkja stoðir Marorku og opna félaginu nýja möguleika. Viðskipti innlent 22.9.2006 12:37
Olía hækkaði í verði Heimsmarkaðsverð á hráolíu hækkaði annan daginn í röð á helstu fjármálamörkuðum í dag. Verð á Norðursjávarolíu fór niður í 60,31 bandaríkjadali á markaði í Lundúnum í Bretlandi á miðvikudag en verðið hefur ekki verið lægra síðan í byrjun mars. Sérfræðingar telja lækkanaferlinu lokið í bili. Viðskipti erlent 22.9.2006 10:26
Spáir því að verðbólga standi í stað milli mánaða Greiningardeild KB banka spáir því að vísitala neysluverðs hækki um 0,6 prósent og að verðbólga muni áfram verða 7,6 prósent á ársgrundvelli eins og hún er nú. Segir í verðbólguspá bankans að hækkun á matvöru, fatnaði og húsnæði muni vega þyngst í hækkun vísitölunnar. Innlent 22.9.2006 09:59
KB banki spáir óbreyttri verðbólgu Greiningardeild KB banka spáir því að vísitala neysluverðs hækki um 0,6 prósent í október og muni 12 mánaða verðbólga standa í stað í 7,6 prósentum. Viðskipti innlent 22.9.2006 09:38
Bill Gates ríkasti maður Bandaríkjanna Bill Gates, stofnandi og stjórnarformaður bandaríska hugbúnaðarrisans Microsoft, er ríkasti maður Bandaríkjanna, samkvæmt úttekt bandaríska viðskiptatímaritsins Forbes. Þetta er fjarri því að vera nýlunda því þetta er í 13. árið í röð sem Gates vermir fyrsta sætið. Fast á hæla honum er Warren Buffett. Viðskipti erlent 22.9.2006 09:16
Launavísitalan hækkaði um 0,7 prósent Launavísitala í ágúst 2006 er 297,4 stig og hækkaði um 0,7 prósent frá júlímánuði, samkvæmt upplýsingum Hagstofu Íslands. Síðastliðna 12 mánuði hefur launavísitalan hækkað um 10,6 prósent. Viðskipti innlent 22.9.2006 09:05
Metfjárfesting í íbúðarhúsnæði Íslendingar hafa aldrei fjárfest meira í íbúðarhúsnæði. Greining Glitnis spáir samdrætti næstu tvö ár. Viðskipti innlent 21.9.2006 20:09
Óbreyttir vextir í Bandaríkjunum Bandaríski seðlabankinn hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum í 5,25 prósentum. Þetta er annar mánuðurinn í röð sem bankinn heldur stýrivöxtum óbreyttum og telja greiningaraðilar líkur á að hækkanaferlið sé á enda. Viðskipti erlent 21.9.2006 20:09
Stríð í uppsiglingu á leikfangamarkaði Danski leikfangarisinn BR opnar Toys‘R‘Us verslun hér á landi og hyggur á enn frekari landvinninga. Leikbær opnar þrjú þúsund fermetra stórverslun við Urriðaholt. Framkvæmdastjóri Leikbæjar óttast ekki samkeppni við Danina. Viðskipti innlent 21.9.2006 21:36
Auki vægi erlendra skuldabréfa Sérfræðingur telur að hlutfall þeirra ætti að vera 10-15% af eignum lífeyrissjóða. Viðskipti innlent 21.9.2006 20:09
Woolworths tapar Breska verslanakeðjan Woolworths tapaði 8,5 milljörðum króna fyrir skatta á fyrri hluta ársins. Afkoma fyrir óreglulega liði er nærri tvöfalt verri en á sama tímabili árið 2005. Viðskipti erlent 21.9.2006 20:09
Gunnlaugur stjórnarformaður Íslands Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, stjórnarformaður Tryggingamiðstöðvarinnar, var valinn stjórnarformaður Íslands klukkan fimm í dag. Jón Sigurðsson, viðskipta- og iðnaðarráðherra, afhenti honum verðlaunin á ráðstefnu um mikilvægi orðspors sem fram fór á Hótel Nordica á sama tíma. Viðskipti innlent 21.9.2006 17:19
Sensex-vísitalan upp fyrir 12.000 stig Sensex hlutabréfavísitalan á Indlandi rauf 12.000 stiga múrinn í dag en vísitalan hefur ekki verið jafn há síðan í maí síðastliðnum. Helsta ástæðan fyrir hækkun vísitölunnar er bjartsýni fjárfesta þar í landi um góðan hagvöxt á árinu. Viðskipti erlent 21.9.2006 16:34
Spáir mikilli lækkun á olíuverði Adnan Shihab-Eldin, fyrrum formaður OPEC, samtaka olíuútflutningsríkja, segir heimsmarkaðsverð á hráolíu geta farið allt niður í 40 bandaríkjadali á tunnu um mitt næsta ár. Litlar líkur eru hins vegar á að það verði sambærilegt við hráolíuverðið árið 2003. Viðskipti erlent 21.9.2006 13:07
Avion framlengir tilboð í frystigeymslufyrirtæki Avion Group tilkynnti í dag að tilboð félagsins í allt hlutafé kanadíska frystigeymslufyrirtækisins Atlas Cold Storage Income Trust, sem átti að renna út föstudaginn 22. september, verði framlengt til föstudagsins 6. október 2006. Viðskipti innlent 21.9.2006 12:49
Met í fasteignakaupum á fyrri hluta árs Fjárfest var í íbúðarhúsnæði fyrir ríflega 32 milljarða krónur á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta er 4,8 milljörðum krónum meira en á sama tíma í fyrra. Greiningardeild Glitnis segir að aldrei hafi verið fjárfest eins mikið í íbúðarhúsnæði á einum árshelmingi og nú. Viðskipti innlent 21.9.2006 11:17
Aflaverðmæti nam 40 milljörðum króna Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 40 milljörðum króna á fyrstu sex mánuðum ársins en það er 2,7 milljörðum krónum meira en á sama tíma á síðasta ári, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar. Aflaverðmæti í júní nam 6,3 milljörðum króna en það er 9 milljörðum krónum meira en fyrir ári. Viðskipti innlent 21.9.2006 09:28
Aflaverðmæti jókst um 2,7 milljarða Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 40 milljörðum króna á fyrstu sex mánuðum ársins en það er 2,7 milljörðum krónum meira en á sama tíma á síðasta ári, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar. Aflaverðmæti í júní nam 6,3 milljörðum króna en það er 9 milljörðum krónum meira en fyrir ári. Viðskipti innlent 21.9.2006 09:28
Skörp hækkun í FL Group Hlutabréf í FL Group hafa hækkað um 42 prósent frá því að félagið birti hálfs árs uppgjör um miðjan ágúst. Þetta er meiri hækkun en hjá nokkru öðru Kauphallarfélagi á sama tíma. Viðskipti innlent 21.9.2006 09:05
Airbus tilkynnir um tafir EADS, móðurfélag flugvélaframleiðandans Airbus hefur greint frá því að enn muni dragast að afhenda nýjar A380 farþegaflugvélar frá félaginu. Ýjað var að þessu í gær en félagið vildi þá ekkert láta hafa eftir sér. Sextán flugfélög hafa pantað vélar frá Airbus og er búist við að þau fari fram á skaðabætur vegna þessa. Viðskipti erlent 21.9.2006 08:58
Stjórnarformaður Íslands valinn Í dag verður tilkynnt hver hefur hlotið nafnbótina Stjórnarformaður Íslands 2006. Þetta er í fyrsta sinn sem hann er valinn með formlegum hætti hér á landi en tilgangurinn með því er að skapa umræðu og vekja athygli á mikilvægi og gæðum stjórnarstarfa og stuðla að bættu viðskiptasiðferði. Leit að Stjórnarformanni Íslands hófst árið 2005 og var hann að lokum valinn í samráði við fulltrúa háskóla og atvinnnulífsins. Viðskipti innlent 20.9.2006 17:24
Atorka kaupir enn í NWF Atorka Group hefur tilgreint til Kauphallarinnar í Lundúnum að félagið eigi nítján prósenta hlut í NWF Group. Viðskipti innlent 20.9.2006 17:24
Mikið ber í milli Evrópu og Ameríku Enn ber mikið í milli Bandaríkjanna og Evrópu í tilraunum til að koma aftur af stað viðræðum um landbúnaðarafurðir á vettvangi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar, WTO. Lagðar voru fram nýjar tillögur á fundi svokallaðs Cairns-hóps í Ástralíu, en í honum eru fulltrúar átján landa sem flytja út landbúnaðarvörur. Mark Veile, viðskiptaráðherra Ástralíu, kynnir tillögurnar á fundinum sem hófst í Cairns í Ástralíu í gær og lýkur á morgun. Viðskipti erlent 20.9.2006 17:24
Samþjöppun olli verðhækkun Stækkun Pan Fish hafði mikil áhrif, segir forstjóri Alfesca. Ný stjórn sjálfkjörin á fundi. Viðskipti innlent 20.9.2006 17:24
Búist við óbreyttum stýrivöxtum Seðlabanki Bandaríkjanna greinir frá breytingum á stýrivaxtastigi bankans í dag. Sérfræðingar búast almennt við því að hækkanaferli bankans sé á enda og reikna með því að ákveðið verði að halda stýrivöxtum óbreyttum vestra í 5,25 prósentum. Viðskipti erlent 20.9.2006 16:21