
Kvöldfréttir Stöðvar 2

Vatnsflaumur og vísindarannsóknir í Hvalfirði
Jökulhlaupið úr Mýrdalsjökli er í rénum. Enn er hlaupvatn í ánni Skálm þó vatnshæðin hafi lækkað. Ástandið hefur bitnað helst á ferðamönnum á svæðinu. Við ræðum við jarðeðlisfræðing í beinni útsendingu í myndveri.

Óvissustig vegna jökulhlaups og Druslugangan
Óvissustig er í gildi vegna jökulhlaups úr Mýrdalsjökli. Vatn flæðir yfir þjóðveginn og mikil hætta á gasmengun. Óvíst er hvort brúin við Skálm sé í hættu. Við ræðum við sérfræðing á Veðurstofunni í myndveri og lögreglustjórann á Suðurlandi í beinni útsendingu.

Fíkniefni á samfélagsmiðlum og bílakaup verðandi forseta
Sífellt fleiri fíkniefnasalar selja eiturlyf fyrir opnum tjöldum á samfélagsmiðlum og bjóðast jafnvel til að keyra efnin heim til fólks. Fimm eru í gæsluvarðhaldi grunaðir um að nota slíkar söluaðferðir. Yfirlögregluþjónn segir málið umfangsmikið en næstum tuttugu kíló af efnum fundust við húsleit.

Milljarðs tap Play og götulist í Hafnarfirði
Forstjóri Play segir stöðu flugfélagsins trausta þrátt fyrir tap upp á rúman milljarð á öðrum ársfjórðungi. Hann gefur lítið fyrir vangaveltur um mögulega sameiningu Play og Icelandair og segir engar meiriháttar uppsagnir í uppsiglingu.

Hættustig almannavarna og sögulegt ávarp Netanjahú
Hættustig almannavarna var virkjað í dag vegna yfirvofandi eldoss í grennd við Grindavík. Víðir Reynisson segir það áhyggjuefni að viðvörunartími styttist með hverju gosinu sem verður en telur þó öruggt að fólk sé í bænum að degi til.

Mikil hætta á gosi í Grindavík og óvissa í flugrekstri
Mikil hætta er nú talin á gosi innan Grindavíkur samkvæmt nýju hættumati Veðurstofunnar. Jarðeðlisfræðingur segir sprungukerfið í bænum eiga þátt í því.

Jákvæðar hliðar færri ferðamanna og vendingar í bandarískum stjórnmálum
Sagan mun fara mjúkum höndum um Joe Biden og ákvörðun hans um að hætta við að sækjast eftir endurkjöri, að mati stjórnmálaskýrenda. Enn er á brattan að sækja fyrir demókrata þrátt fyrir að skipt verði um forsetaefni.

Kvöldfréttir Stöðvar 2: Biden stígur til hliðar
Joe Biden Bandaríkjaforseti hyggst draga framboð sitt til endurkjörs til baka og styður að Kamala Harris varaforseti taki við keflinu.

Skipbrot í skólakerfinu og afhjúpun í Hafnarfirði
Viðskiptaráð Íslands kennir stefnumótun Kennarasambandsins um neyðarástand í íslensku grunnskólakerfi, og vill fá samræmd próf aftur inn í skólana. Stjórnarmaður í sambandinu gefur lítið fyrir slíka gagnrýni. Við fjöllum um skólamálin í kvöldfréttum Stöðvar 2 í opinni dagskrá klukkan 18:30.

Vandræði á heimsvísu og berskjaldaðir íbúar hjólhýsabyggðar
Kerfisbilun olli vandræðum um allan heim í dag. Flugsamgöngur og greiðslukerfi lágu niðri en íslensk fyrirtæki virðast hafa sloppið vel. Við förum yfir málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 og ræðum við sérfræðing í netöryggismálum í beinni.

Hitnar undir Biden, sóðaskapur í skógum og skátar í beinni
Aukinn þrýstingur er á Joe Biden um að draga forsetaframboð sitt til baka. Háttsettir demókratar segja útilokað að hann sigri Trump sem er á siglingu í könnunum.

Viðgerðir á meðan búist er við gosi og skötuveisla um hásumar
Hefja á viðgerðir á götum í Grindavík á næstu dögum þrátt fyrir að búist sé við gosi á allra næstu vikum og þá jafnvel innan bæjarins. Við förum til Grindavíkur í kvöldfréttum Stöðvar 2, kynnum okkur fyrirhugaðar framkvæmdir og ræðum við jarðfræðing.

Slæm hegðun fanga, veiran skæða og sundballett
Forstöðumaður Litla Hrauns og Hólmsheiðarfangelsis segir slæma hegðun fanga færast í aukana. Fangelsin séu vel í stakk búin til að takast á við vandann eins og sakir standa en haldi sama þróun áfram geti skapast vandamál. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Síbrotamaður dæmdur og Siggi stormur svarar fyrir spána
Mohamad Kourani var í dag dæmdur í átta ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps, og fjölda annarra brota. Um er að ræða hans fjórða fangelsisdóm frá því hann kom hingað til lands árið 2017.

Morðtilræði gegn Trump, úrslitaleikur EM og fjárhættuspil
Bandaríska leyniþjónustan sætir gagnrýni eftir morðtilræði gegn Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, í gær. Alríkislögreglan gerir ráð fyrir að rannsókn málsins muni taka langan tíma.

Dæmi um meintan hagsmunaárekstur við mat á sakhæfi
Dæmi eru um að sömu geðlæknar leggi mat á sakhæfi einstaklinga fyrir dómstólum og sem sinna myndu þeim á réttargeðdeild. Þetta skapar óeðlilegan hagsmunaárekstur að mati formanns Afstöðu. Alvarlegt ástand ríki í geðheilbrigðismálum fanga.

Pínleg mistök Biden og móðurlausir þrastarungar í fóstri
Þeim þingmönnum Demókrataflokksins fjölgar sem kalla eftir því að Joe Biden, Bandaríkjaforseti, stígi til hliðar í forsetakosningum. Hann segist ekki ætla fet þrátt fyrir pínleg mistök á blaðamannafundi í gær og slæma frammistöðu í kappræðum.

Biden hrósar Íslendingum og litlaus bílafloti
Framlag Íslands til Atlantshafsbandalagsins er til fyrirmyndar og umfram væntingar að sögn forseta Bandaríkjanna. Þetta sagði Joe Biden í samtali við Bjarna Benediktsson forsætisráðherra á leiðtogafundi NATO sem nú stendur yfir í Washington. Við fjöllum um fundinn í fréttatímanum.

Alvarlegt bílslys á Holtavörðuheiði
Framkvæmdastjóri NATO segir Rússa hafa hert á skemmdarverkum og árásum á innviði aðildarríkja bandalagsins. Atlantshafsbandalagið bregðist við með því að auka varnir sínar og styrkja hernaðarmátt Úkraínu.

Allra augu á Biden og bein útsending úr loftbelg
Alþjóðasamfélagið er slegið vegna mannskæðrar árásar Rússa á barnaspítala í Kænugarði, sem lýst hefur verið sem stríðsglæp. Rússar þræta fyrir ábyrgð en sérfræðingar segja sprengjuna úr rússnesku vopnabúri.

Alvarleg vanskil aukast og hryllingur í Úkraínu
Merki eru um að vanskil heimila og fyrirtækja fari vaxandi. Alvarleg vanskil fyrirtækja hafa aukist á þessu ári samkvæmt gögnum frá innheimtufyrirtækinu Motus. Þróunin er möguleg vísbending um að víðtækari fjárhagsvandi sé framundan í efnahagslífinu. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30.

Viðsnúningur í frönsku þingkosningunum
Bandalag vinstri flokka leiðir samkvæmt útgönguspám í Frakklandi og Þjóðfylking Marine Le Pen er þriðji stærsti flokkurinn. Metþátttaka var í síðari umferð þingkosninganna. Sérfræðingur spáir í spilin í beinni útsendingu í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Uppgjöf eftir áratugabaráttu við kerfið og meint skotárás í Þykkvabæ
Bóndi í Landbroti í Vestur-Skaftafellssýslu lýsir miklum raunum í áratugalangri baráttu við kerfið, en á, sem rennur um land hans er upp urin. Hrygningarfiskar í ánni eru dauðir og útlitið svart. Rætt verður við hann í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Aukið ofbeldi gegen heilbrigðisstarfsfólki og kosningar í Bretlandi
Ofbeldi gegn heilbrigðisstarfsfólki hefur aukist og hótunum fjölgað. Starfsfólk heilsugæslu, þar sem ráðist var á lækni í vikunni, upplifir aukið óöryggi í vinnunni. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við framkvæmdastjóra lækninga hjá heilsugæslunni og formann Félags heimilislækna.

Akranesbær í sárum eftir gjaldþrot eins stærsta vinnustaðarins
Stálsmiður hjá Skaganum 3X á Akranesi segir þrot fyrirtækisins hafa legið í loftinu en nú sé óljóst hvað taki við. Yfir hundrað manns urðu atvinnulausir á einu bretti í bænum í dag. Bæjarstjóri segir það mikið áfall að missa svo stóran vinnustað. Við förum upp á Skaga í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30.

Milljarðar streyma úr landi með starfsemi veðmálafyrirtækja
Í kvöldfréttum Stöðvar 2 er fjallað um að íslenska ríkið verði af verulegum fjármunum á meðan lög eru ekki sett í kringum starfsemi erlendra veðmálafyrirtækja hér á landi. Ekkert hefur gerst í málinu síðan starfshópur skilaði skýrslu fyrir hálfu öðru ári.

Lítið fylgi Framsóknar og kynjaðar paprikur
Formaður Framsóknarflokksins segir lítið fylgi flokksins mega rekja til stöðunnar í efnahagsmálum. Prófessor í stjórnmálafræði telur meira þarna að baki, sérstaklega þreytu almennings á að flokkar, sem illa nái saman, sitji saman við ríkisstjórnarborðið. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Kvöldfréttir Stöðvar 2
Ekki er ætlast til að fólk í hefðbundnu eftirliti vegna sjúkdóma leiti á heilsugæsluna í sumar. Þar verður lögð áhersla á bráðaerindi þar til haustar. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við forstjóra heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Viðbrögð við sögulegum tölum í Frakklandi í beinni
Kjörstöðum í Frakklandi hefur verið lokað og útgönguspár gefnar út strax í kjölfarið. Við förum yfir fyrstu tölur í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30 og fáum Torfa Tulinius, prófessor og sérfræðing í málefnum Frakklands, til að greina stöðuna í myndveri í beinni útsendingu.

Alvarlegar aukaverkanir af brúnkunefspreyjum og brottvísun Yazans Tamimi
Fjölskylda palestínsks drengs með skæðan vöðvarýrnunarsjúkdóm segir heim hans hafa hrunið þegar honum var tilkynnt endanlega nýverið að fjölskyldunni yrði vísað úr landi. Hundruð sýndu samstöðu með fjölskyldunni á Austurvelli í dag en drengurinn dvelur nú á Barnaspítalanum. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30 í opinni dagskrá.