Innlent

Segja atvinnuveiðar á hval ekki sjálfbærar
Hvalaskoðunarsamtök Íslands segja ráðherra fara með rangt mál þegar þeir skilgreini atvinnuveiðar á hval sem sjálfbæar.

Yfirlætislegt tal að segja að meiri hagsmunir víki fyrir mini
Það yfirlætislegt tal að halda því fram um nýhafnar hvalveiðar að meiri hagsmunir víki fyrir minni. Þetta sagði Einar K. Guðfinnssona sjávarútvegsráðherra í ræðu sinni á aðalfundi LÍÚ í dag. Einar sagði að í hvalveiðum fælust gríðarlegir efnahagslegir hagsmunir. Bent hefði verið á að afrakstur þorskstofnsins gæti orðið allt að fimmtungi minni ef hvalastofnanir væru friðaðir.

Fastir í snjó á sumardekkjum á Landmannaleið
Flugbjörgunarsveitin á Hellu kom tveimur hröktum ferðalöngum til bjargar eftir að þeir festu bíl sinn í snjó á Landmannaleið.

Halda fast við áform um hungurverkfall
Fangar í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg halda fast við áform sín um að fara í hungurverkfall á morgun nema að þeir fái skrifleg svör við óskum sínum um bætta aðstöðu.

Pólitísk afskipti skaða Strætó
Pólitísk afskipti af starfsemi Strætós bs. eru skaðleg fyrirtækinu og óljóst er hver stefna fyrirtækisins er, segir í nýrri stjórnsýsluúttekt á Strætó sem endurskoðunarfyrirtækið Deloitte gerði að ósk stjórnar fyrirtækisins.

Fjöldi fólks mættur til að fylgjast með Iceland Airwaves
Bandaríski stórleikarinn Harrison Ford er meðal þeirra sem er mættir eru til landsins til að fylgjast með Iceland Airwaves tónlistarhátíðinni sem hófst í gær. Nánast er uppselt á hátíðina en aðeins eru sextíu miðar eftir.
Hátt í níu þúsund þreyta samræmd próf í 4. og 7. bekk
Hátt í níu þúsund börn í fjórða og sjöunda bekk grunnskóla þreyta í dag og á morgun samræmd próf í íslensku og stærðfræði. Þetta kemur fram í vefriti menntamálaráðuneytisins.

Abramovich skoðaði höfuðstöðvar OR
Roman Abramovich, eigandi Chelsea, skoðaði nú í hádeginu höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur en hann er hér í erindagjörðum sem ríkisstjóri í Chukotka í Síberíu.
Varað við óveðri í Öræfasveit
Vegagerðin varar við óveðri í Öræfasveit. Þar hafa hviður farið upp í fimmtíu metra á sekúndu í dag og er fólk beðið um að vera ekki á ferð að ástæðulausu.

Fjármálaráðherra ver hvalveiðar á BBC
Árni Mathiesen, fjármálaráðherra og fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, varði í dag þá ákvörðun íslenskra stjórnvalda að hefja hvalveiðar í atvinnuskyni á ný á sjónvarpsstöðinni BBC World.

Ágúst Ólafur sækist eftir fjórða sætinu
Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, sækist eftir 4. sætinu í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík. Prófkjörið fer fram 11. nóvember. Ágúst Ólafur hefur setið á þingi frá árinu 2003 og á sæti í efnahags- og viðskiptanefnd, allsherjarnefnd og er varamaður í utanríkismálanefnd.
Saxbygg kjölfestufjárfestir í Steni
Fjárfestingarfélagið Saxbygg er kjölfestufjárfestir í kaupum nokkurra fjárfesta á norska fyrirtækinu Steni sem framleiðir húsaklæðingar. Stofnað hefur verið eignarhaldsfélag, Steni Holding AS, sem er í eigu stjórnenda, starfsmanna og hóps íslenskra, norksra og finnskra fjárfesta.

Takmörkun réttinda og harðari viðurlög við hraðakstri
Samgönguráðherra boðar harðari viðurlög við hraðakstri og takmörkun á réttindum ungra ökumanna sem hefðu gerst sekir um ofsaakstur í utandagskrárumræðu á Alþingi í morgun.

Ríkið skili vannýttum lóðum í Efstaleiti
Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun að ganga eftir því við ríkið að vannýttum lóðum við húsnæði Ríkisútvarpsins við Efstaleiti yrði skilað til Reykjavíkurborgar. Það voru fulltrúar Samfylkingarinnar sem lögðu fram tillögu þessa efnis.

Iceland Express eykur umsvif sín
Lággjaldaflugfélagið Iceland Express verður eina lággjaldaflugfélagið á Norður-Atlantshafsleiðinni þegar það hefur áætlunarflug á milli Bandaríkjanna og meginlands Evrópu næsta sumar, með viðkomu á Íslandi. Fjöldi ákvörðunarstaða í Evrópu verður líka tvöfaldaður.

Hlerunargögn leynileg vegna tillits til erlendra ríkja
Tillitsemi við erlend ríki er ein af ástæðunum fyrir því að dómsmálaráðuneytið treystir sér ekki til að létta af leynd á hlerunargögnum, sem það afhenti þjóðskjalaverði í sumar.

Kynbundinn launamunur nánast óbreyttur í áratug
Kynbundinn launamunur hefur sama og ekkert minnkað á síðustu tíu árum. Ný rannsókn sem Capacent gerði fyrir Félagsmálaráðuneytið sýnir að konur eru með 84,3% af launum karla - sem eingöngu má rekja til kyns. Fyrir tíu árum voru konur með 84% af launum karla. Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra lýsir yfir vonbrigðum með niðurstöðuna.

Hafa enn ekki veitt hval
Hvalveiðiskipið Hvalur 9 hafði ekki veitt hval nú rétt fyrir hádegið, eftir því sem Kristján Loftsson, forstjóri Hvals, best vissi. Skipið er djúpt vestur af landinu, þar sem það lét fyrir berast í nótt, en ekki er hægt að stunda veiðarnar nema í björtu, þegar sést til hvala með berum augum. Kristján sagðist ekki vita betur en að öll vinnsluleyfi lægju nú fyrir.

Ríkisstjórn sögð tala tungum tveim í hvalveiðimáli
Heitar umræður voru á Alþingi í morgun þar sem ríkisstjórnin var sökuð um að tala tungum tveim í hvalveiðimálinu. Þar kvaddi Steignrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri - grænna, sér hljóðs í upphafi þingfundar og vakti athygli á því að Jónína Bjartmarz umhvefisrráðherra hefði lýst yfir að hún hefði fyrirvara um veiðar á hval vegna hugsanlegs skaða fyrir orðspor Íslands.

Sérsveit kölluð út vegna vopnaðs manns á Siglufirði
Sérsveit Ríkislögreglustjóra á Akureyri var kölluð út skömmu eftir miðnætti í gær vegna ölvaðs og vopnaðs manns í heimahúsi á Siglufirði. Þegar sérsveitin kom á staðinn um klukkan tvö hafði maðurinn skotið þremur skotum úr haglabyssu án þess að nokkur yrði fyrir skaða.

Fluttir á sjúkrahús með ósoneitrun
Tveir sjómenn af fjölveiðiskipinu Aðalsteini Jónssyni frá Eskifriði voru fluttir á sjúkrahúsið í Neskaupsstað undir hádegið, eftir að þeir höfðu orðið fyrir ósoneitrun í lest skipsins. Það lá úti á firðinum og var verið að sótthreinsa lestirnar þegar ósoni var fyrir misskilning dælt í lest, þar sem þeir voru.

600 fleiri íbúðir byggðar í fyrra en árið 2000
Um 600 fleiri íbúðir voru byggðar í fyrra en árið 2000 samkvæmt svari félagsmálaráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur, þingmanns Samfylkingarinnar. Í upplýsingum sem fengnar eru úr Landskrá fasteigna kemur fram að um 1850 íbúðir voru byggðar á árinu 2000 en þær voru um 2420 árið 2005.

Leonard áfram í Leifsstöð
Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf. og eigendur skartgripaverslunarinnar Leonard ehf. hafa endurnýjað samning um rekstur verslunar í flugstöðinni með úr og skartgripi. Sævar Jónsson eigandi Leonard ehf. og Höskuldur Ásgeirsson, forstjóri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar, undirrituðu samninginn.
Varað við hálkublettum víða um land
Vegagerðin varar við hálkulettum víða á Vesturlandi og Vestfjörðum og á Norðaustur- og Austurlandi. Á Öxnadalsheiði eru hálkublettir og éljagangur og snjóþekja er á Lágheiði.
Ungir jafnaðarmenn viljia óháða rannsókn á hlerunum
Ungir jafnaðarmenn í Reykjavík hvetja íslensk stjórnvöld til að koma á fót óháðri rannsóknarnefnd sem falið yrði að kanna fyrirkomulag hlerana á tímum Kalda stríðsins og strax í kjölfar þess. Þetta kemur fram í tilkynningu frá þeim.

Gengið frá samningum um kaup OMX á Kauphöllinni
OMX og eigendur Eignarhaldsfélagsins Verðbréfaþings hafa undirritað samning um að Kauphöll Íslands og Verðbréfaskráning Íslands gangi til liðs við norrænu kauphöllina OMX.

Sterkasti maður heims á Íslandi eftir mánuð
Keppnin sterkasti maður heims árið 2006 fer fram í Reykjavík dagana 18.-25.nóvember næstkomandi eftir því sem fram kemur á heimasíðu keppninnar.

Raftæki fara úr búðinni í ruslið á tveimur árum
Líftími margra raftækja er ekki langur, þetta vita neytendur af eigin raun. Hver á til dæmis tíu ára gamlan farsíma eða tölvu? Heldurðu að þú verðir ennþá að nota mp3-spilarann þinn eftir fimm ár? Borgar sig að fara með bilaðan hlut í viðgerð eða er betra, og kannski líka ódýrara, að fá sér bara nýjan?

Veiðarnar borga sig jafnvel þótt hvalkjötið seljist ekki
Framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna segir Íslendinga tapa yfir 10 milljörðum á ári vegna stækkunar hvalastofna. Sjávarútvegurinn fagnar veiðunum og óttast ekki rökræðu á alþjóðavettvangi.

Þetta eru ekki bílastæði
Lönguhlíðin hefur verið þrengd til að bæta öryggi barna í hverfinu. Akreinum hefur verið fækkað í eina hvoru megin í Lönguhlíðinni og hjólreiðastígar gerðir.