Ástin á götunni
289 290 291 292 293 294 295 296 297 … 334 ›
Djurgarden sænskur meistari Djurgarden, lið Kára Árnasonar og Sölva Geirs Ottesen, tryggði sér sænska meistaratitilinn í knattspyrnu í kvöld, þegar liðið krækti í stig gegn liði Jóhanns Guðmundssonar, Örgryte. Þar með tryggði liðið sér sigur í deildinni þegar ein umferð er eftir, því Gautaborg tapaði fyrir Hammarby á sama tíma. Sport 23.10.2005 17:50
Jafnt hjá Charlton og Fulham Charlton og Fulham gerðu 1-1 jafntefli í leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni. Collins John kom Fulham yfir í fyrri hálfleik en Danny Murphy jafnaði fyrir Charlton í upphafi síðari hálfleiks. Hermann Hreiðarsson lék allan tímann í vörn Charlton, en Heiðar Helguson fékk ekki tækifæri með Fulham. Sport 23.10.2005 17:50
Wenger þreyttur á meiðslum Arsene Wenger, stjóri Arsenal, virðist vera búinn að fá sig fullsaddan af tíðum meiðslum leikmanna sinna, ekki síst þegar þeir eru að spila með landsliðum sínum og telur það koma afar illa niður á Arsenal í deildarkeppninni. Meiðsli Alexander Hleb voru dropinn sem fyllti mælinn hjá Wenger. Sport 23.10.2005 17:34
Sögulegur sigur Aston Villa Kevin Phillips stimplaði sig í sögubækurnar hjá Aston Villa í dag þegar hann skoraði sigurmark liðsins í 0-1 sigri í nágrannaslagnum við Birmingham í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Þetta var fyrsti úrvalsdeildarsigur Villa á nágrönnum sínum í 7 viðureignum eða síðan Birmingham endurheimtu sæti sitt í úrvalsdeild árið 2002. Sport 23.10.2005 15:05
Ítalía: Kýldi vallarstarfsmann Alessandro Del Piero skoraði eina mark Juventus sem heldur áfram ótrauðri sigurgöngu sinni í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta með 1-0 sigri á Messina í gærkvöldi. Juve er nú með fullt hús stiga að loknum 7 umferðum. Í hinum leik gærkvöldsins tapaði Siena fyrir Udinese, 2-3 í leik þar sem afar sjaldgæf sjón varð fyrir augum áhorfenda. Sport 23.10.2005 15:04
Mourinho hrósað fyrir Eið Smára Breskir fjölmiðlar hrósa Jose Mourinho knattspyrnustjóra Chelsea í hástert fyrir breytinguna sem hann gerði á liðinu í hálfleik gegn Bolton í ensku úrvalsdeildinni í gær. Þá skipti hann Eiði Smári Guðjohnsen inn á í staðinn fyrir Asier del Horno í stöðunni 0-1 fyrir Bolton og sú breyting gjörbreytti gangi leiksins sem Chelsea vann 5-1. Sport 23.10.2005 15:04
Inter í 2. sætið á Ítalíu Inter Milan lyfti sér upp í 2. sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag með stórsigri á Livorno, 5-0. Inter er 6 stigum á eftir toppliði Juventus sem er með fullt hús stiga eftir 7 umferðir. Fiorentina sem var jafnt AC Milan í 2. sæti fyrir umferðina mistókst að saxa á forskot Juve þar sem liðið tapaði fyrir Lazio, 1-0 í dag. Sport 23.10.2005 15:05
Pearce ánægður með Andy Cole Stuart Pearce, knattspyrnustjóri Manchester City, var ánægður með frammistöðu Andy Cole í gær, þegar hann skoraði bæði mörk liðsins í sigri 2-1 á nýliðum West Ham á afmælisdaginn sinn. Sport 23.10.2005 15:05
Real Madrid komið á toppinn Ronaldo skoraði þrennu og skaut Real Madrid á topp spænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í gærkvöldi með 3-0 sigri á Atlético Madrid í gærkvöldi en þá fóru fram 3 leikir í deildinni. Deportivo La Coruña gerði jafntefli við Barcelona í 6 marka þriller. Sport 23.10.2005 15:04
Spánn: Taplausu liðin töpuðu Spútniklið spænska fótboltans á þessu tímabili, Getafe, mistókst að endurheimta toppsætið í La Liga í dag þegar liðið tapaði sínum fyrsta leik á leiktíðinni, 1-0 á útivelli fyrir Real Betis. Osasuna skaust upp í 2. sæti deildarinnar með 2-0 sigri á Celta Vigo og er nú jafnt toppliði Real Madrid að stigum. Sport 23.10.2005 15:05
Valsstúlkur úr leik í UEFA Cup Kvennalið Vals er úr leik í Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu eftir 11-1 tap gegn Evrópumeisturum Turbine Potsdam en leikurinn sem fór fram ytra í dag var síðari viðureign liðanna í 8 liða úrslitum keppninnar. Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði mark Vals þegar hún minnkaði muninn í 2-1 en hún tábrotnaði skömmu síðar og var skipt af velli... Sport 23.10.2005 15:05
Markið læknaði sár Cissé Franski sóknarmaðurinn Djibril Cissé hjá Liverpool virðist hafa gleymt óánægju sinni í herbúðum félagsins eftir að mark hans tryggði liðinu sigur á Blackburn í gær og hefur nú tekið stjóra sinn í sátt. Hann vandaði þó stuðningsmönnum Blackburn ekki kveðjurnar eftir leikinn. Sport 23.10.2005 15:05
Ívar & Brynjar með í sigri Reading Brynjar Björn Gunnarsson og Ívar Ingimarsson léku báðir allan leikinn með Reading sem endurheimti 2. sætið í ensku 1. deildinni í knattspyrnu í dag með 2-0 sigri á Ipswich. Reading er 3 stigum á eftir toppliði Sheffield Utd í deildinni. Sport 23.10.2005 15:05
Leikmenn Guðjóns án sjálfstrausts Guðjón Þórðarson þjálfari enska 2. deildarliðsins Notts County veit ekki sitt rjúkandi ráð þessa dagana en lið hans lék í gær áttunda leik sinn í röð án sigurs þegar það steinlá fyrir Rochadale, 3-0. <em>"...Þegar menn vorkenna sjálfum sér hjálpar það engum og þess gætir einmitt meðal minna leikmanna um þessar mundir."</em> Sport 23.10.2005 15:05
Man City í fjórða sætið Andy Cole skoraði bæði mörk Manchester City sem læddi sér upp í 4. sæti ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta nú síðdegis með sigri á West Ham 2-1. City komst í 2-0 en Bobby Zamara minnkaði muninn á lokamínútunum. City er með 17 stig í fjórða sætinu, jafnmörg stig og Man Utd sem er í 3. sæti. West Ham er í 9. sæti með 12 stig. Sport 23.10.2005 15:05
Robson tekur ekki við Írum Gamla kempan Sir Bobby Robson hefur vísað þeim getgátum að hann muni taka við írska landsliðinu á bug og segir að liðið sé nú þegar með góðan þjálfara í Brian Kerr. Ekki er þó búist við að samningur hans verði endurnýjaður úr því að liðið komst ekki í lokakeppni HM. Sport 23.10.2005 15:05
Óvæntur sigur Álasunds á Start Það urðu óvænt úrslit í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu þegar efsta liðið Start tapaði á heimavelli 5-4 fyrir Álasundi. Jóhannes Harðarson var í byrjunarliði Start en Haraldur Guðmundsson kom inn á sem varamaður í liði Álasunds. Sport 23.10.2005 15:04
Tvö mörk hjá Gunnari Heiðari í dag Gunnar Heiðar Þorvaldsson heldur áfram að fara hamförum í sænska fótboltanum en hann skoraði tvö mörk fyrir Halmstad í dag sem valtaði fyrir botnlið sænsku úrvalsdeildarinnar, Assyriska, 5-0. Gunnar er nú einn markahæstur í deildinni með 16 mörk þegar liðið á aðeins einn leik eftir af mótinu. Sport 23.10.2005 15:05
Hannes í byrjunarliði Stoke Hannes Sigurðsson er eini Íslendingurinn sem er í byrjunarliði síns liðs í ensku 1. deildinni í fótbolta í dag en hann er í liði Stoke sem er 1-0 undir í hálfleik gegn Derby. Jóhannes Karl Guðjónsson er á varamannabekk Leicester sem er 0-1 yfir gegn Watford og Bjarni Guðjónsson er á bekknum hjá Plymouth sem er 0-1 undir gegn Sheff Wed. Sport 23.10.2005 15:04
Wigan lagði Newcastle Wigan skaust í 2. sæti ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag með 1-0 sigri á Newcastle og eru nýliðarnir nú með 16 stig eða átta stigum á eftir toppliði Chelsea. Jason Roberts skoraði eina mark leiksins fyrir Wigan sem léku manni færri frá 83. mínútu. Newcastle sem eru í 12. sæti deildarinnar með 9 stig. Sport 23.10.2005 15:04
Chelsea óstöðvandi - Eiður skoraði Chelsea heldur ótrautt áfram sigurgöngu sinni í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta en liðið er enn með fullt hús stiga eftir 9 leiki og 5-1 sigur á Bolton í dag. Eiður Smári Guðjohnsen átti stórleik. Arsenal tapaði heldur óvænt fyrir W.B.A. 2-1, Liverpool vann 1-0 sigur á Blackburn, Man Utd vann 1-3 útisigur á Sunderland og Tottenham vann Everton. Sport 23.10.2005 15:04
Eiður inn á og Chelsea komið yfir Chelsea er komið yfir gegn Bolton, 4-1 eftir að hafa verið undir í hálfleik, 0-1. Eiður Smári Guðjohnsen kom inn á í hálfleik og átti þátt í tveimur fyrstu mörkum Chelsea. Bolton eru manni færri eftir að Ricardo Gardner var vikið af velli. Tottenham er komið 2-0 yfir gegn Everton. Sport 23.10.2005 15:04
Bolton yfir gegn Chelsea Bolton er strax komið yfir gegn toppliði Chelsea í leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta en Grikkinn Stelios Giannakopoulos skoraði markið á 4. mínútu. Þetta er aðeins þriðja markið sem Chelsea fær á sig á tímabilinu en liði er með fullt hús á toppi deildarinnar eftir 8 umferðir. Eiður Smári Guðjohnsen er á varamannabekk Chelsea í dag. Sport 23.10.2005 15:04
Eiður búinn að skora fyrir Chelsea Eiður Smári Guðjohnsen er búinn að skora fyrir Chelsea sem er komið í 5-1 gegn Bolton sem leiddi 0-1 í hálfleik. Eiður hefur átt frábæra innkomu eftir að hafa komið inn á af varamannabekknum í hálfleik og hefur auk þess átt þátt í tveimur mörkum Chelsea í leiknum. Mark Eiðs kom á 74. mínútu. Þá er Liverpool komið 1-0 yfir gegn Blackburn. Sport 23.10.2005 15:04
Hannes lék allan leikinn með Stoke Hannes Sigurðsson lék allan leikinn með Stoke sem tapaði útileik fyrir Derby 1-0 í ensku 1. deildinni í fótbolta í dag. Jóhannes Karl Guðjónsson kom inn á af varamannabekknum á 71. mínútu í liði Leicester sem vann 2-1 útisigur á Watford. Bjarni Guðjónsson kom ekkert við sögu hjá Plymouth sem tapaði á heimavelli, 0-1 fyrir Sheffield Wednesday. Sport 23.10.2005 15:04
Arnar skoraði í sigri Lokeren Arnar Grétarsson lék síðustu 10 mínúturnar og skoraði síðasta mark Lokeren sem vann Charleroi 4-2 í belgísku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Grétar Rafn Steinsson sat allan tímann á varamannabekk AZ Alkmaar sem tapaði fyrir PSV Eindhoven 3-0 í hollensku úrvalsdeildinni. Sport 23.10.2005 15:04
Enn tapar Notts County Notts County, lið Guðjóns Þórðarsonar í ensku 2. deildinni tapaði 3-0 fyrir Rochdale í dag. Notts County er nú fallið niður í 14. sæti deildarinnar með 18 stig og hefur nú ekki unnið sigur í 8 leikjum í röð og markatalan 2-10. Sport 23.10.2005 15:04
Leeds í 4. sætið Gylfi Einarsson lék síðustu tvær mínúrnar með Leeds sem vann 1-2 útisigur á Burnley í ensku 1. deildinni í fótbolta í dag. Gylfi kom inn á sem varamaður á 88. mínútu í liði Leeds sem náði 4. sæti deildarinnar með sigrinum með 21 stig, níu stigum á eftir toppliði Sheff Utd. Sport 23.10.2005 15:04
Man Utd og Bolton yfir í hálfleik Bolton er 0-1 yfir gegn Chelsea og Man Utd 0-1 yfir gegn Sunderland þegar flautað hefur verið til hálfleiks í fimm leikjum sem nú standa yfir í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Staðan hjá W.B.A. og Arsenal er jöfn 1-1, markalaust er hjá Tottenham og Everton og sömuleiðis hjá Liverpool og Blackburn. Sport 23.10.2005 15:04
Helgi Sig á leið til Fram Fyrrverandi landsliðsmaðurinn Helgi Sigurðsson er genginn til liðs við sitt gamla félag, Fram sem leikur í 1. deild karla í fótbolta á næsta tímabili. Helgi sem hefur undanfarin 2 ár leikið með AGF í Danmörku hefur gert 2 ára samning við Safamýrarliðið en hann lék að auki með Víkingi áður en hann hélt utan í atvinnumennsku árið 1994. Sport 23.10.2005 15:04