Ástin á götunni
322 323 324 325 326 327 328 329 330 … 334 ›
Wenger: Á ég að fara í spilavítið? Arsene Wenger knattspyrnustjóri Arsenal segir að Chelsea sé að borga tvöfalt markaðsverð á þeim leikmönnum sem þeir kaupa. Wenger hefur verið undir pressu undanfarna daga frá stuðningsmönnum sem vilja að hann kaupi nýja leikmenn á meðan ríku félögin Real Madrid og Chelsea eru að hrifsa hvern leikmanninn á fætur öðrum sem Wenger ætlaði að kaupa. Sport 13.10.2005 19:37
Kólombíumenn voru líka sviknir Það var ekki aðeins íslenska knattspyrnusambandsið sem var svikið í landsleikjamálum nýlega. Í ljós hefur komið að ástæðan fyrir því að Kólombíumenn geta komið og leikið á Íslandi með svo skömmum fyrirvara er sú að þeir urðu fyrir sömu reynslu með Ástrala. Sport 13.10.2005 19:37
"Borgvardt var munurinn" Ólafur Kristjánsson þjálfari Fram var í skýjunum með baráttu sinna manna í sigurleiknum gegn FH í gærkvöldi en þá tryggði Fram sér farseðilinn í úrslitaleik VISA bikarsins. Fram var síst lakari aðilinn í fyrri hálfleik þó þeir væru tveimur mörkum undir í hálfleik. "<em>Munurinn á liðunum í fyrri hálfleik var bara Allan Borgvardt</em>." sagði Ólafur. Sport 13.10.2005 19:37
Valur í úrslitaleikinn gegn Fram Valsmenn unnu Fylki, 2-0 og tryggðu sig í úrslitaleikinn gegn Fram í VISA bikarkeppni karla í knattspyrnu í kvöld. Garðar Gunnlaugsson skoraði bæði mörk Valsmanna í leiknum á Laugardalsvelli, það fyrra strax á 3. mínútu en seinna markið á 80. mínútu. Garðar hefur þar með skorað 8 mörk í fjórum leikjum fyrir Val í bikarkeppninni. Sport 13.10.2005 19:37
Ekkert enn skorað í framlengingu Síðari hálfeikur framlenginar var að hefjast í leik Fram og FH í undanúrslialeik liðanna í VISA bikar karla í knattspyrnu. Staðan að loknum venjulegum leiktíma var 2-2 og var ekkert mark skorað í fyrri hálfleik framlengingarinnar. Við fylgjumst með gangi mála hér á fréttahlutanum ef eitthvað markvert gerist. Sport 13.10.2005 19:37
Butt til Birmingham Miðvallarleikmaðurinn Nicky Butt er genginn til liðs við Birmingham City að láni frá Newcastle. Fyrir hjá Birmingham hittir hann Steve Bruce, knattspyrnustjóra, sem lék með honum hjá Manchester United á tíunda áratugi síðustu aldar. Butt er einn af sigursælustu leikmönnum ensku úrvalsdeildarinnar.... Sport 13.10.2005 19:37
Van Persie kannski með Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segir að Robbie van Persie eigi möguleika á að spila leikinn um Samfélagsskjöldin á sunnudag. Van Persie á enn kæru yfir höfði sér vegna nauðgunarmáls en hann þurfti að dvelja í fangelsi ekki alls fyrir löngu vegna málsins. Sport 13.10.2005 19:37
Fram í úrslitaleik VISA bikarsins Fram tryggði sér í kvöld farseðilinn í úrslitaleik VISA bikarkeppni karla í knattspyrnu eftir ótrúlega dramatískan sigur á FH í framlengdum leik og þrefaldan bráðabana í vítaspyrnukeppni. Lokatölur urðu 9-8 fyrir Fram. Sport 13.10.2005 19:37
Fram minnkar muninn gegn FH Fram hefur minnkað muninn gegn FH á Laugardalsvelli þar sem staðan er orðin 2-1. Það var Daði Lárusson markvörður FH sem gerði heldur klaufalegt sjálfsmark en hann náði ekki að halda boltanum eftir harðan ágang Andra Fannars Ottóssonar. Markið kom á 81. mínútu. Framarar sækja nú stíft lokamínúturnar. Sport 13.10.2005 19:37
Neftchi vann Anderlecht heima Neftchi Baku frá Azerbaijan, sem sló FH út úr Meistaradeildinni í knattspyrnu á dögunum, vann 1-0 sigur á Anderlecht frá Belgíu í kvöld í síðari leik liðanna í 2. umferð forkeppninnar. Anderlecht vann fyrri leikinn örugglega heima fyrir viku, 5-0 þannig að samanlagður sigur Belganna var aldrei í hættu og FH-banarnir eru úr leik. Sport 13.10.2005 19:37
Vítaspyrnukeppni í Laugardal Leikur Fram og FH fer í vítaspyrnukeppni en ekkert mark var skorað í framlengingu. Staðan er því 2-2 eftir vejulegan leiktíma og framlengingu og munu úrslit hennar birtast um leið og hún er afstaðin. Sport 13.10.2005 19:37
Enn tapar Ísland U17 Íslenska piltalandsliðið í knattspyrnu, 17 ára og yngri, tapaði í dag öðrum leik sínum í röð, nú fyrir Írum, 2-0, á Keflavíkurvelli, í A-riðli á Norðurlandamótinu sem hófst í gær. Ísland hefur þar með tapað báðum fyrstu leikjunum sínum eftir að hafa steinlegið fyrir Dönum á KR-vellinum í gær, 4-0. Sport 13.10.2005 19:37
Kieran Richardson áfram hjá United Táningurinn Kieran Richardson sem sló í gegn með W.B.A. á síðustu leiktíð í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnunni vill ekki fara aftur félagsins en hann var þar af láni á síðustu leiktíð frá Manchester United. Þess í stað ætlar hann að reyna að berjast fyrir sæti sínu hjá United. Sport 13.10.2005 19:37
Zidane aftur í franska landsliðið Franska goðsögnin Zinedine Zidane hjá Real Madrid kom fótboltaheiminum í opna skjöldu í dag þegar hann tilkynnti endurkomu sína í franska landsliðið, um ári eftir að hann tilkynnti að hann væri endanlega hættur að leika með liðinu. Claude Makelele, miðjumaður Chelsea hefur einnig boðið þjónustu sína í landsliðið en hann hafði einnig sagt skilið við landsliðið. Sport 13.10.2005 19:37
Ólafur Örn fékk rautt með Brann Ólafur Örn Bjarnason hjá Brann fékk rauða spjaldið á 77. mínútu þegar Tromsø og Brann gerðu 1-1 jafntefli í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Kristján Örn Sigurðsson lék allan leikinn í vörn Brann sem er í 6. sæti deildarinnar, 9 stigum á eftir toppliði Start sem marði 1-1 jafntefli með marki á 90. mínútu gegn Stefáni Gíslasyni og félögum í Lyn. Sport 13.10.2005 19:37
Evrópudraumur Newcastle úti Evrópudraumur Newcastle United er úti eftir 2-1 tap fyrir Deportivo La Coruna á heimavelli í kvöld en þetta var seinni leikur liðanna í Intertoto keppninni. Spænska liðið vann því samanlagt 4-2 þar sem enska liðið tapaði einnig þeim fyrri á Spáni 2-1. Sport 13.10.2005 19:37
FH 2-0 yfir í hálfleik gegn Fram Allan Borgvardt hefur skorað tvívegis fyrir FH sem leiðir 2-0 í hálfleik gegn Fram á Laugardalsvelli. Síðara mark Borgvardt var einkar glæsilegt og kom eftir sendingu Jóns Þorgríms Stefánssonar af hægri kanti á lokasekúndum fyrri hálfleiks. Sport 13.10.2005 19:37
Inter Milan loks að landa Figo Portúgalski knattspyrnusnillingurinn Luis Figo virðist vera búinn að ná samkomulagi við Inter Milan á Ítalíu um að ganga til liðs við félagið ef marka má spænska fjölmiðla í kvöld. Útvarpsstöðin Marca í Madrid segir að Figo muni fljúga til Mílanóborgar á morgun fimmtudag til þess að gangast undir læknisskoðun og skrifa svo undir 2 ára samning. Sport 13.10.2005 19:37
Sigurbjörn með gegn Fylki Sigurbjörn Hreiðarsson, fyrirliði Vals má leika með liði sínu gegn Fylki á morgun í undanúrslitum Vísabikarsins. Sigurbjörn var í gær úrskurðaður í bann vegna fjögurra gulra spjalda en bannið tekur hins vegar ekki gildi fyrr en á föstudag. Sigurbjörn missir því af leiknum á mánudaginn við Fram á Laugardalsvelli í Landsbakadeildinni. Sport 13.10.2005 19:37
Vålerenga áfram í Meistaradeild Árni Gautur Arason og félagar í norska liðinu Vålerenga tryggðu sér í kvöld farseðilinn í 3. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu þegar þeir lögðu Haka frá Finnlandi 1-4 á útivelli. Árni lék að venju allan leikinn í marki Vålerenga sem mætir Club Brugge frá Belgíu í næstu umferð forkeppninnar. Sport 13.10.2005 19:37
Houllier vill fá Owen Franska knattspyrnustórveldið Lyon lýsti því yfir í dag að félagið hafi mikinn áhuga á að fá enska landsliðsmanninn Michael Owen frá Real Madrid. Owen viðurkenndi í fjölmiðlum fyrr í dag að hann hafi átt í viðræðum við þrjú eða fjögur úrvalsdeildarlið á Englandi undanfarna daga. Sport 13.10.2005 19:37
Fram-FH í beinni á Vísi Leikur Fram og FH í VISA bikarkeppni karla í knattspyrnu hefst nú kl. 19:40 á Laugardalsvelli. Hægt er að fylgjast BEINT með leiknum á <a href="/UserControls/infosport/ifis_leikurHP.aspx?LeikNr=1000301&st=NS&re=00060&sy=1" target="_blank"><strong>BOLTAVAKTINNI</strong></a> hér á Vísi. Sport 13.10.2005 19:37
Fram jafnaði og framlengt gegn FH Leikur Fram og FH fer í framlengingu en Daninn Bo Henriksen jafnaði metin fyrir Fram 3 mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma í bikarundanúrslitaleik liðanna á Laugardalsvelli. Allt stefndi í öruggan sigur FH sem leiddi 2-0 með mörkum frá Allan Borgvardt í fyrri hálfleik. Andri Fannar Ottósson minnkaði muninn í 2-1 á 81. mínútu. Sport 13.10.2005 19:37
Schalke deildarbikarmeistari Schalke hrósaði sigri í þýsku deildarbikarkeppninni í gær þegar liðið lagði Stuttgart 1-0 í úrslitaleik. Kevin Kuranyi, fyrrverandi leikmaður Stuttgarti, skoraði sigurmarkið á 10. mínútu. Hann fékk síðan að líta rauða spjaldið um miðjan síðari hálfleik og á lokamínútunni var svo samherja hans, Brasilíumanninum Lincoln einnig vikið af velli. Sport 13.10.2005 19:37
Tottenham í skýjunum með Davids Enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham Hotspurs hafa landað einum mesta hvalreka seinni ára í sögu félagsins en hollenski landsliðsmiðjumaðurinn Edgar Davids hefur gengið í raðir liðsins. Tottenham fær Davids á frjálsri sölu frá Inter Milan þar sem hann var farinn að gróa fastur við varamannabekkinn. Sport 13.10.2005 19:37
Nokkrir tæpir fyrir Fram-FH Í kvöld mætast Fram og FH í fyrri undanúrslitaleik VISA bikarsins í knattspyrnu. Ólafur Kristjánsson þjálfari Fram segir óljóst með nokkra leikmenn í Fram-liðinu vegna meiðsla. Leifur Garðarsson aðstoðarþjálfari FH notaði tækifærið á fréttamannafundi og skaut aðeins léttilega á KSÍ fyrir að hafa undanúrslitaleikina í bikarnum á Laugardalsvelli. Sport 13.10.2005 19:37
FH komið yfir gegn Fram Allan Borgvardt hefur komið FH yfir gegn Fram, 1-0, í undanúrslitaleik liðanna í VISA bikarkeppni karla í knattspyrnu. Daninn fékk sendingu inn fyrir vörn Fram og komst einn á móti Gunnari Sigurðssyni markverði á 28. mínútu. Leikurinn sem fer fram á Laugardalsvelli hófst kl. 19:40 og er í beinni útsendingu á <a href="http://www.visir.is/UserControls/infosport/ifis_leikurHP.aspx?LeikNr=1000301&st=NS&re=00060&sy=1" target="_blank"><strong>BOLTAVAKTINNI</strong></a> hér á Vísi. Sport 13.10.2005 19:37
Sveittur og kaldur með Liverpool Sigursteinn Brynjólfsson formaður Liverpool klúbbsins á Íslandi á von á því að Jerzy Dudek og Milan Baros fari frá félaginu innan skamms. Hann ætlar á Players í kvöld að horfa á seinni leik Liverpool og Kaunas frá Litháen í 2. umferð forkeppni Meistaradeildarinnar. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Sýn og hefst kl. 18:45. Sport 13.10.2005 19:37
Andy Johnson áfram hjá Palace <div class="Text194214">Markamaskínan, Andy Johnson, verður áfram í herbúðum Crystal Palace þrátt fyrir að liðið hafi fallið í B deild í vor. Johnson, sem var næstmarkahæsti leikmaður Úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð skrifaði undir fimm ára samning við Palace í gær. Þar með lýkur vangaveltunum um framtíð hans í bili að minnsta kosti.</div> Sport 13.10.2005 19:37
Liverpool lánar Le Tallec Franski sóknarmaðurinn Anthony Le Tallec sem verið hefur hjá Liverpool í á þriðja ár hefur gengið til liðs við enska úrvalsdeildarliðið Sunderland á árslöngum lánssamningi. Le Tallec er tvítugur og var keyptur til félagsins ásamt Florent Sinama-Pongolle í stjóratíð Gerard Houllier. Sport 13.10.2005 19:37