Box

Mayweather drjúgur með sig
Hinn ósigraði Floyd Mayweather er heldur betur drjúgur með sig fyrir bardagann við Sharmba Mitchell í nótt og segist vera farinn að hugsa um næsta bardaga, sem væntanlega muni skila honum meiri tekjum en bardagi kvöldsins. WBC belti Mayweather verður ekki undir í bardaganum í kvöld, sem sýndur er í beinni útsendingu á Sýn.

Langar að berjast aftur við Lewis
Þungaviktarhnefaleikarinn Vitali Klitschko, sem nýlega lagði hanskana á hilluna, segir að sér þætti freistandi að snúa aftur í hringinn ef hann fengi tækifæri til að berjast við gamla keppinaut sinn Lennox Lewis.

Prinsinn getur komist á toppinn á ný
Fyrrum þjálfari hnefaleikakappans Prince Naseem Hamed, segir að hann eigi fína möguleika á að endurheimta heimsmeistaratitilinn ef hann ákveði að snúa aftur í hringinn, en hinn 31 árs gamli Hamed hefur látið lítið fyrir sér fara í þrjú ár.

Vitali Klitschko hættur
Þungavigtarhnefaleikarinn Vitali Klitschko hefur ákveðið að leggja hanskana á hilluna 34 ára gamall vegna þrálátra meiðsla sem hann hefur átt við að stríða á undanförnum mánuðum. Fyrirhuguðum andstæðingi hans Hasim Rahman hefur því verið afhent WBC meistarabeltið, en þeir áttu að berjast núna 12. nóvember.

Bruno viðurkennir kókaínneyslu
Fyrrum hnefaleikakappinn Frank Bruno hefur viðurkennt að hafa verið djúpt sokkinn í kókaínneyslu árið 2000 og segir í samtali við breska blaðið News of the world að hann hafi lent í alvarlegu þunglyndi í kjölfar neyslu sinnar. Hann hefur þó snúið við blaðinu og er hættur öllu slíku í dag.

Castillo kom fram hefndum
Mexíkóski boxarinn Jose Luis Castillo kom fram hefndum gegn Diego Corrales í nótt, þegar dómarinn stöðvaði annan bardaga þeirra í fjórðu lotu eftir að Castillo hafði lumbrað duglega á Corrales og slegið hann í gólfið.

Castillo var of þungur
Mexíkóski boxarinn Jose Luis Castillo mun ekki geta endurheimt WBC léttvigtartitil sinn í hnefaleikum, eftir að honum mistókst að ná réttri þyngd fyrir bardagann við Diego Corrales.

Klitschko sigraði Peter á stigum
Úkraínski þungaviktarhnefaleikarinn Wladimir Klitschko sigraði "Nígerísku Martröðina" Samuel Peter í bardaga um IBF og WBO titilinn í boxi í Bandaríkjunum í nótt, þrátt fyrir að vera þrisvar sinnum laminn í gólfið af hinum áður ósigraða andstæðingi sínum.

Hnefaleikari lætur lífið
Bandaríski hnefaleikarinn Levander Johnson lét lífið á sjúkrahúsi í gær eftir að blætt hafði inn á heila hans í bardaga gegn mexókóska boxaranum Jesus Chaves á laugardaginn. Johnson var 35 ára gamall og var fluttur í skyndi á sjúkrahús eftir að hafa tapað bardaganum í 11. lotu, en hann féll í yfirlið í búningsherbergi eftir bardagann.

Loksins mætast Klitschko og Rahman
Eftir langa mæðu virðist nú bardagi þeirra Vitaly Klitschko og Hasim Rahman loksins ætla að fara fram og hefur verið settur á 12. nóvember í Las Vegas í Bandaríkjunum. Viðureign þeirra félaga hefur verið frestað í tvígang vegna meiðsla Úkraínumannsins.

Don King ánægður með Khan
Umboðsmaðurinn umdeildi Don King átti ekki til orð til að lýsa hrifningu sinni á ungstirninu Amir Khan, eftir að hann vann sinn annan bardaga sem atvinnumaður um helgina. King líkti breska hnefaleikaranum við Sugar Ray Robinson.

Khan verður betri en Prinsinn
Brendan Ingle, maðurinn sem þjálfaði Prinsinn (Naseem Hamed), segir að Amir Khan verði betri en Prininn hafi nokkurn tíman verið. En prinsinn er fyrrum heimsmeistari í fjaðurvigt. Mikið Amir Khan æði er nú í Bretlandi og langt síðan jafn mikil spenna hefur verið fyrir hnefaleikum þar í landi ....

Fyrsta tap Hopkins í 12 ár
Hnefaleikakappinn Bernard Hopkins tapaði fyrsta bardaga sínum í rúm tólf ár þegar mótherji hans, Jermain Taylor, hafði betur í Las Vegas í gærkvöldi. Hinn fertugi Hopkins var að verja titil sinn í millivigt í 21. sinn.

Ver titilinn í 21. sinn
Klukkan eitt í nótt verður bein útsending á Sýn frá Las Vegas en þar verða háðir nokkrir athyglisverðir hnefaleikabardagar. Sá bardagi sem flestra augu beinist að er viðureign Bernard Hopkins og Jermain Taylor. Þeir félagar berjast um heimsmeistaratitilinn í millivigt og ver Hopkins nú titil sinn í 21. sinn.

Khan tilbúinn
Breski hnefaleikamaðurinn, Amir Khan, sem sló í gegn á Ólympíleikunum í Sydney í fyrra berst á laugardaginn sinn fyrsta bardaga sem atvinnumaður. Silfurverðlaunahafinn frá því í Sydney sem aðeins er 18 ára er sagður eitt mesta efni í sögu breskra hnefaleika
Hatton vill berjast við Mayweather
IBF meistarinn Ricky Hatton vill ólmur fá að berjast við nýbakaðan WBC meistara Floyd Mayweather Jr og vill umfram allt fá stóra bardaga í Bandaríkjunum til að auka veg sinn og virðingu í íþróttinni.

Mayweather vann öruggan sigur
Floyd Mayweather vann öruggan sigur á Arturo Gatti í hnefaleikabardaga um heimsmeistaratitil WBC-sambandsins í veltivigt í Atlantic-borg í New Jersey í gærkvöldi.

Tarver sigraði Johnson
Bandaríkjamaðurinn Antonio Tarver sigraði Jamaíkumanninn Glen Johnson um heimsmeistaratitilinn í léttþungavigt hjá IBO-hnefaleikasambandinu í gærkvöldi. Allir þrír dómararnir voru sammála um að Tarver hefði verið sterkari í bardaganum.

Ferill Tysons á enda
Ferill hnefaleikamannsins Mikes Tysons er á enda eftir að hann var sleginn niður í sjöttu lotu í bardaga við Kevin McBride frá Írlandi í nótt. Tyson, sem er 39 ára, sagðist eftir bardagann vera hættur í hnefaleikum en fyrir nítján árum varð hann yngsti maðurinn til að vinna heimsmeistaratitilinn í þungavigt í hnefaleikum.

Hatton sigraði Tszyu óvænt
Englendingurinn Ricky Hatton gerði sér lítið fyrir og lagði andstæðing sinn, Ástralann Kostya Tszyu, í heimsmeistarabardaga í veltivigt í Manchester í gærkvöldi. Kosta Tszyu náði ekki að komast í hringinn fyrir síðustu lotuna. Þetta voru mjög óvænt úrslit en Hatton sem er 26 ára var ekki talinn eiga mikla möguleika í Kosta Tszyu.

Box og NBA á Sýn í kvöld
Ricky Hatton og Kosta Tsyu berjast um heimsmeistaratitilinn í veltivigt í boxi í kvöld. Bardaginn verður í beinni á Sýn og hefst útsending klukkan 22. Eftir boxið verður sjötta viðureign Miami Heat og Detroit Pistons í úrslitum austurdeildar NBA-körfuboltans sýnd beint.

Ruiz fékk titilinn aftur
John Ruiz fékk í dag WBA heimsmeistaratitilinn í þungavigt aftur eftir að James Toney, sem hafði sigraði hann á stigum í Madison Square Garden 30. apríl síðastliðinn, var fundinn sekur um stera notkun.

Corrales féll tvisvar en vann samt
Diego Corrales vann í morgun heimsmeistaratitil WBC-hnefaleikasambandsins í léttvigt þegar hann sigraði Jose Luis Castillo. Þrátt fyrir að hafa verið sleginn tvisvar í gólfið tókst Corrales að vinna sigur.
Castillo og Corales berjast
Á eftir leik Boston og Indiana í NBA-körfuboltanum, sem hefst klukkan 23 í kvöld á Sýn, verður skipt yfir til Las Vegas í Bandaríkjunum. Þar verða margir spennandi hnefaleikabardagar, t.d. bardagi Jose Luis Castillo og Diego Corales um heimsmeistaratitil WBC-sambandsins í léttvigt.

Ruiz hættur að boxa
Ameríski hnefaleikakappinn John Ruiz, hefur ákveðið að leggja hanskana á hilluna eftir að hann tapaði WBC titli sínum til James Toney í New York um helgina.

"Prinsinn" handtekinn
Þær fréttir eru að berast frá Sheffield á Englandi að fyrrverandi fjaðurvigtarheimsmeistarinn í boxi, "Prinsinn" Naseem Hamed hafi verið handtekinn í dag í tengslum við bílslys þar sem maður meiddist lífshættulega "Prinsinn" er grunaður um að hafa flúið af vetvangi.