
Hlaup í Skaftá

Skaftárhlaupi að ljúka
Hlaupi í Skaftá er að ljúka og er rennsli nú orðið svipað og var fyrir hlaup. Ríkislögreglustjóri hefur aflýst óvissustigi almannavarna vegnahlaupsins. Síðustu tvo daga hefur rennsli í ánni farið lækkandi og er vatnsmagnið svipað og það var áður en hlaup hófst 20. ágúst síðastliðinn.

Skaftárhlaupið í rénun: Kemur úr Eystri-Skaftárketli en ekki þeim vestri
Skaftárhlaup er nú í rénun samkvæmt tilkynningu Veðurstofunnar. Rennsli mælist um 160 rúmmetrar á sekúndu og segir í tilkynningu að út frá breytingum á yfirborði Eystri-Skaftárketilsins, sem sjást af gervihnattamyndum, megi ætla að hlaupið komi þaðan en ekki úr þeim vestari eins og áður var talið líklegast.

Veðurstofan hefur litlar áhyggjur af hlaupinu
Náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir yfirstandandi Skaftárhlaup vera langt frá því að vera nokkur ógn við vegi og innviði á svæðinu og að Veðurstofan hafi litlar áhyggjur af því eins og staðan er.

Skaftárhlaup „lítið og krúttlegt“ en gæti staðið yfir lengi
Rennsli í Skaftá hefur verið stöðugt síðan í gær og mælist í kringum 180 rúmmetra á sekúndu við Sveinstind. Hlaupið hefur enn sem komið er ekki nein áhrif á innviði eða vegi á svæðinu.

Áfram stöðugur vöxtur í Skaftá
Skaftárhlaup er áfram í hægum vexti og hefur enn engin áhrif á vegi á svæðinu. Ekki liggur fyrir hvort hlaupið komi úr eystri eða vestri Skaftárkatli og búist er við því að það komi ekki í ljós fyrr en á morgun.

Skaftárhlaup í hægum vexti og íbúar varaðir við hættu
Skaftárhlaup er í vexti en hefur ekki áhrif á helstu vegi á svæðinu að svo stöddu. Töluverð óvissa er um áframhald hlaupsins og mögulega stærð þess.

Lýsa yfir óvissustigi vegna Skaftárhlaups
Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurlandi hefur lýst yfir óvissustigi Almannavarna vegna Skaftárhlaups. Ferðafólki er ráðlagt að halda sig fjarri farvegi Skaftár.

Skaftárhlaup líklega að hefjast
Rafleiðni í Skaftá hefur hækkað hægt og rólega síðan í gærkvöldi og vatnshæð og rennsli árinnar við Sveinstind aukist síðustu klukkustundir. Athuganir benda til þess að Skaftárhlaup sé að hefjast. Næstu daga munu flóðaðstæður ríkja við bakka Skaftár, og brennisteinsvetni getur borist með hlaupvatninu.

Rennsli í Skaftá haldist stöðugt
Rennsli í Skaftá hefur haldist frekar stöðugt í nótt og er enn óljóst hvort hlaupið hafi náð því hámarki sem beðið hefur verið eftir.

Hugsanlegt að Skaftárhlaup hafi náð hámarki
Sérfræðingar hjá Veðurstofu Íslands funda í dag og kanna hvort flóðatoppnum í Skaftárhlaupi sem hófst í gær sé náð eða hvort hann geti farið hækkandi. Að sögn bónda á svæðinu er vatnsmagnið minna nú en oft áður og heimafólk ekki uggandi yfir stöðunni eins og er.

Lokanir á fjallvegum vegna hlaup í Skaftá
Lögreglan á Suðurlandi vekur athygli á lokunum á fjallvegum vegna yfirstandandi hlaups í Skaftá. Í tilkynningu segir að staðan sé reglulega metin með sérfræðingum Veðurstofu Íslands og Almannavörnum.

Óveðrið um helgina gæti komið af stað öðru hlaupi
Óvissustigi almannavarna hefur verið lýst yfir vegna Skaftárhlaups og lögreglan á Suðurlandi hefur ákveðið að loka nokkrum vegum á svæðinu. Bóndi á Ytri Ásum við Skaftá hafa verið óvenju hraðan snemma í morgun en orðið hefðbundnari í dag.

Virkja SMS skilaboð vegna Skaftárhlaups
Lögreglustjórinn á Suðurlandi og Almannavarnir virkjuðu í dag SMS skilaboð sem senda verða til fólks sem fer inn á skilgreint svæði nálægt Skaftá. Ástæðan er Skaftárhlaupið.

Lýsa yfir óvissustigi vegna Skaftárhlaupsins
Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við lögreglustjórann á Suðurlandi lýst yfir óvissustigi Almannavarna vegna Skaftárhlaups. Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavörnum.

Skáftárhlaup er hafið
Skaftárhlaup er hafið. Þetta staðfestir náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands. Rennsli og leiðni hefur aukist í ánni frá því í nótt í Skaftá við Sveinstind og tilkynningar um brennisteinslykt hafa borist frá landvörðum í Hólaskjóli.

Aflétta óvissustigi vegna Skaftárhlaups
Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við lögreglustjórann á Suðurlandi ákveðið að aflétta óvissustigi almannavarna vegna hlaups í Skaftá. Hlaupið er yfirstaðið.

Aflétta hættustigi vegna Skaftárhlaups
Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við lögreglustjórann á Suðurlandi ákveðið að aflétta hættustigi almannavarna vegna hlaups í Skaftá.

Gamla brúin hangir enn uppi og stóðst þriðja stórhlaupið
Verulega hefur dregið úr hlaupinu í Skaftá í dag og er minni hætta talin á því að vatn flæði yfir hringveginn. Mesta furðu vekur að gamla brúin yfir Eldvatn skuli enn hanga uppi.

Dregur úr líkum á því að hlaupvatn flæði yfir þjóðveg 1
Áfram hefur dregur úr rennsli Skaftár í dag. Talið er að minni líkur séu á því að hlaupvatn nái að flæða yfir þjóðveg 1, þó að ekki sé hægt að útiloka að hlaupvatnið nái þangað.

Rennsli fer enn minnkandi við Sveinstind
Hlaupið úr Eystri-Skaftárkatli er í rénun við Sveinstind og við Eldvatn og hélt áfram að draga úr í nótt.

Hlaupið sópaði veginum frá eystri brúnni til Skaftárdals
Hlaupið í Skaftá hefur náð hámarki og er byrjað að sjatna í árfarveginum. Þótt hlaupið sé minna en menn spáðu, telst það engu að síður mjög stórt.

Bíða þess að hlaupið nái hámarki við Þjóðveginn
Talið er að Skaftárhlaup hafi náð hámarki sínu við Sveinstind en nú er þess beðið að hlaupvatnið nái hámarki við þjóðveginn á næstu dögum. Það flæki málin að vatn í ánni hafi verið mikið áður en hlaup hófst í Eystri-Skaftárkatli.

Hlaupið náð hámarki sínu en á eftir að skila sér í byggð
Dregið hefur úr rennsli Skaftár við Sveinstind og mælist það nú um 1.100 rúmmetrar á sekúndu miðað við hámarksrennsli í gæt upp á um 1.500 rúmmetra á sekúndu. Hlaupvatn á enn eftir að skila sér niður farveg Skaftár og áhrif þess á byggð eiga því eftir að koma í ljós.

Myndband tekið úr lofti sýnir kraftinn í hlaupinu
Hægt hefur á vextinum í rennsli Skaftár við þjóðveg 1 það sem af er degi. Reiknað er með að núverandi hlaup vari lengur en fyrri hlaup úr eystri katlinum, sem getur orsakað meiri útbreiðslu í byggð.

Búist við að flóðið nái yfir stórt svæði
Mikið hefur hægt á vexti Skaftárhlaupsins við Sveinstind síðan í gærkvöldi en búist er við að vatn flæði yfir stórt svæði á næstu dögum. Mikil úrkoma á svæðinu auk hlaups úr vestari katlinum geri að verkum að flóðasvæðið sé mettað af vatni sem auki líklega útbreiðslu hlaupsins.

Þróunin bendir til að hámark verði minna en bæði 2015 og 2018
Rennsli við Eldvatn í Skaftá hefur aukist jafnt og þétt frá því í gærkvöldi og mælist nú rúmlega 520 rúmmetrar á sekúndu. Þróun hlaupsins í nótt bendir til að hámarksrennsli hlaupsins verði nú minna en bæði í hlaupunum 2015 og 2018.

Hlaupið heldur að sækja í sig veðrið
Hlaupið úr Eystri-Skaftárkatli virðist heldur vera að sækja í sig veðrið á ný með morgninum eftir að rennslið við vatnshæðarmælinn við Sveinstind var nokkuð stöðugt í nótt.

Skaftá að komast í ham til að flæða yfir hringveginn
Rennsli í Skaftá fór hratt vaxandi við Sveinstind eftir hádegi og er verið að loka hálendisvegum á svæðinu og rýma fjallaskála. Búist er við að hlaupið nái hámarki í byggð eftir tvo sólarhringa og eru líkur taldar á að hringvegurinn í Eldhrauni geti lokast um tíma.

Loka vegum vegna Skaftárhlaups
Fjórum vegum verður lokað í kvöld vegna Skaftárhlaupsins. Búist er við að vatn flæði yfir vegi í nálægð við hlaupið og verður þeim lokað frá og með klukkan sjö í kvöld.

Hlaupvatnið komið undan jöklinum
Rennsli og vatnshæð í Skaftá við Sveinstind hefur vaxið hratt frá því um hádegisbilið. Rennslið var um klukkan 14 komið í um 613 rúmmetra á sekúndu en er nú, klukkan 15:20 komið upp í tæpa 740 rúmmetra. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Veðurstofu Íslands.