Vladimír Pútín
1 2 3 4 5 6 … 8 ›
Pútín óskar Trump til hamingju Vladímír Pútín Rússlandsforseti hefur óskað Donald Trump til hamingju með sigurinn í forsetakosningunum vestra á dögunum. Erlent 8.11.2024 08:44
Kim hafi stutt Rússa frá upphafi „heilags stríðs“ þeirra Kim Jong Un, hefur stutt við bakið á Rússum frá því þeir hófu sitt „heilaga stríð“ gegn Úkraínu. Utanríkisráðherra Norður-Kóreu segir einræðisherrann hafa skipað embættismönnum sínum og þegnum að aðstoða Rússa um leið og innrásin í Úkraínu hófst. Erlent 1.11.2024 13:15
Stýrivextir ná sögulegu hámarki í Rússlandi Stjórn seðlabanka Rússlands ákvað í morgun að hækka stýrivexti þar í landi um tvö prósentustig, eða úr nítján prósentum í 21 prósent. Líklegt er að þeir verði hækkaðir meira í desember. Erlent 25.10.2024 11:53
Musk sagður í reglulegum samskiptum við Pútín Elon Musk, auðugasti maður heims, hefur átt í reglulegum samskiptum við Vladimír Pútín, forseta Rússlands, á undanförnum árum. Þeir eru meðal annars sagðir hafa rætt um persónuleg málefni, viðskiptatengd mál og alþjóðleg deilumál. Erlent 25.10.2024 09:44
Neitar ekki liðsstyrk frá Norður-Kóreu Vladimir Pútín Rússlandsforseti neitaði því ekki á blaðamannafundi í gær að stjórnvöld í Norður-Kóreu hefðu sent um 3.000 hermenn til Rússlands. Erlent 25.10.2024 06:53
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: „Einstaklega blóðugur“ september Harðir bardagar eiga sér stað víðsvegar í austurhluta Úkraínu og í Kúrsk-héraði í Rússlandi þessa dagana. Þá eru hermenn frá Norður-Kóreu sagðir í Rússlandi og fleiri á leiðinni og ráðamenn í Kænugarði hafa reynt að sýna bakhjörlum sínum hvernig þeir geta í sameiningu bundið enda á stríðið og skapað frið til langs tíma. Erlent 24.10.2024 09:02
Fyrsti fundur Xi og Modi í meira en fimm ár Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefur tekið móti leiðtogum BRICS-ríkjanna svokölluðu, auk annarra þjóðarleiðtoga og erindreka í Kazan í Rússlandi en þar fer sextándi leiðtogafundur BRICS-ríkjanna svokölluðu fram. Fundur leiðtoga Kína og Indlands á hliðarlínunum í Kazan hefur vakið mikla athygli. Erlent 23.10.2024 16:56
Ætlar ekki að leyfa Úkraínu að eignast kjarnorkuvopn Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segir að hann muni ekki leyfa Úkraínumönnum að koma sér upp kjarnorkuvopnum. Líkti hann ummælum ráðamanna í Úkraínu um að slíkt kæmi til greina sem „ögrun“ og hét hann því að sigra Úkraínumenn. Erlent 18.10.2024 15:31
Opinberaði „siguráætlun“ sína á þingi Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, kynnti á þingi landsins í morgun „siguráætlun“ sína. Í ávarpi á þinginu fór hann yfir helstu atriði áætlunarinnar og reyndi að stappa stálinu í þjóð sína. Áætlunin veltur að miklu leyti á bakhjörlum Úkraínu og skilyrðislausu boði um inngöngu í Atlantshafsbandalagið. Erlent 16.10.2024 11:22
Stofna herfylki skipað mönnum frá Norður-Kóreu Forsvarsmenn rússneska hersins eru sagðir vera að stofna nýtt herfylki sem skipað verður allt að þrjú þúsund mönnum frá Norður-Kóreu. Kim Jon Un, einræðisherra Norður-Kóreu, hefur heitið Vladimír Pútín, kollega sínum, fullum stuðningi vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Erlent 15.10.2024 14:14
Taugaeitur til að drepa þúsundir manna skilið eftir á glámbekk Taugaeitrið sem rússneskir útsendarar höfðu komið fyrir í ilmvatnsflösku og skilið eftir á glámbekk í Bretlandi árið 2018, eftir að þeir reyndu að ráða njósnarann Sergei Skripal af dögum, var í nægjanlegu magni til að drepa þúsundir manna. Hin 44 gamla Dawn Sturgess dó eftir að hún sprautaði því sem hún hélt að væri ilmvatn á sig. Erlent 15.10.2024 08:01
Trump sendi Pútín kóvidpróf á laun Donald Trump, þáverandi Bandaríkjaforseti, sendi Vladímír Pútín, forseta Rússlands, tæki til þess að greina kórónuveirusmit þegar skortur var á þeim í heiminum árið 2020. Pútín bað Trump um að halda sendingunni leyndri. Erlent 8.10.2024 15:10
Hækka fjárútlát til varnarmála um þriðjung Ráðamenn í Rússlandi vilja hækka fjárútlát til varnarmála um tæpan þriðjung á næsta ári, samanborið við þetta ár. Þetta kemur fram í fjárlagadrögum sem birt voru í gær. Um metupphæð er að ræða en verðbólga hefur hækkað hratt í Rússlandi á undanförnum mánuðum. Erlent 1.10.2024 11:30
Selenskí fundaði með Trump Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, fundaði í dag með Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna og forsetaframbjóðanda. Trump hefur á undanförnum mánuðum ítrekað gagnrýnt stuðning Bandaríkjanna við Úkraínu varðandi varnir þeirra gegn innrás Rússlands. Erlent 27.9.2024 15:51
„Virkið“ Vuhledar að falli komið Hersveitir Rússa eru komnar langleiðina með að ná tökum á bænum Vuhledar í Dónetsk-héraði í Úkraínu. Rússar hafa lagt mikið púður í sóknina að bænum á undanförnum dögum og hafa verjendur hans þurft að hörfa undan þessum áhlaupum. Erlent 25.9.2024 15:05
Íslendingum ekki boðið á sjónvarpsumræðu um öryggi á Norðurlöndum Ríkisreknar sjónvarpsstöðvar Norðurlanda, að RÚV undanskildu, héldu í síðustu viku sérstakan sjónvarpsviðburð sem sýndur var á öllum stöðvunum. Þátturinn bar titilinn „Svar Norðurlanda við stríði Pútíns“ og sátu utanríkisráðherrar landanna fyrir svörum, auk sérfræðinga og Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins. Innlent 18.9.2024 08:02
Stækkar herinn í þriðja sinn Vladimír Pútín, forseti Rússlands, gaf í gær út þá skipun að her ríkisins yrði stækkaður. Atvinnuhermönnum yrði fjölgað um 180 þúsund og yrðu því alls ein og hálf milljón. Skipunin á að taka gildi þann 1. desember en þetta er í þriðja sinn frá því innrás Rússa í Úkraínu hófst í febrúar 2022 sem Pútín gefur út skipun sem þessa. Erlent 17.9.2024 13:07
Pútín segir NATÓ á leið í stríð við Rússa Vladimir Pútín Rússlandsforseti segir heimild til handa Úkraínumönnum til að nota langdræg vopn frá Vesturlöndum til að gera árásir á Rússland myndu jafngilda þátttöku og stríðsyfirlýsingu af hálfu Atlantshafsbandalagsins. Erlent 13.9.2024 08:46
Rúmar fimmtíu milljónir á mánuði fyrir Rússaáróður Forsvarsmenn dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna sökuðu í gær ráðamenn í Rússland um að verja milljónum dala til áróðursherferða gegnum ríkismiðil Rússlands, RT (sem áður hét Russia Today). Áróðrinum var ætlað að hjálpa Donald Trump við forsetaframboð hans og grafa undan stuðningi Bandaríkjamanna við Úkraínu. Erlent 5.9.2024 14:06
Mongólía hunsar handtökuskipun Alþjóðlega sakamáladómstólsins Stjórnvöld í Mongólíu hafa sætt harðri gagnrýni fyrir að bjóða Vladimir Pútín Rússlandsforseta velkominn til landsins með heiðursverði, í stað þess að handtaka hann. Erlent 3.9.2024 07:33
Eldflaugum frá Norður-Kóreu skotið að Úkraínu Rússar sendu í nótt fjölda dróna og eldflauga að skotmörkum í Úkraínu. Notast var við 35 stýri- og skotflaugar auk 26 Shahed-dróna, samkvæmt Úkraínumönnum, og segjast þeir hafa skotið niður níu skotflaugar, þrettán stýriflaugar og tuttugu dróna. Erlent 2.9.2024 16:09
Vísaði til Selenskís sem Pútíns og varaforsetans sem Trumps Ymjan fór um salinn þegar Joe Biden Bandaríkjaforseti fór mannavillt í annað skiptið í kvöld og kallaði Donald Trump varaforseta sinn. Hann hafði fyrr um kvöldið kynnt Volodímír Selenskí Úkraínuforseta upp í ræðustól sem „Pútín forseta.“ Erlent 12.7.2024 00:10
Pútín heimsækir Kim Vladimír Pútín Rússlandsforseti er væntanlegur í opinbera heimsókn til Norður-Kóreu í dag. Erlent 18.6.2024 07:48
Hótar því að sjá öðrum fyrir vopnum til að gera árásir á Vesturlönd Vladimir Pútín Rússlandsforseti hefur hótað því að Rússar gætu séð öðrum ríkjum fyrir langdrægum vopnum til að gera árásir á vestræn ríki. Öldungadeildarþingmaðurinn Mike Rounds staðfesti í gær að bandarísk vopn hefðu verið notuð í árásum á Rússland. Erlent 6.6.2024 06:53
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Bakhjarlar Úkraínu leyfa árásir í Rússlandi Undanfarna mánuði hafa orðið nokkrar vendingar í stríðinu í Úkraínu. Rússar sækja enn hægt fram á austurhluta Úkraínu og hafa opnað nýja víglínu í norðausturhluta landsins. Úkraínumenn hafa þar að auki áhyggjur af nýrri hernaðaruppbyggingu norðar á landamærunum eða jafnvel í Belarús. Erlent 31.5.2024 08:00
Segja Pútín vilja vopnahlé sem miðist við núverandi víglínur Vladímír Pútín, forseti Rússlands, er sagður tilbúinn að stöðva innrásarstríð sitt í Úkraínu með vopnahléssamkomulagi sem viðurkennir núverandi átakalínur. Utanríkisráðherra Úkraínu segir Pútín reyna að skemma fyrir áformuðum friðarfundi í næsta mánuði. Erlent 24.5.2024 22:42
Hefja árásir nærri Karkív Rússneskir hermenn gerðu í morgun atlögu að vörnum Úkraínumanna nærri Karkív, í norðurhluta Úkraínu. Forsvarsmenn úkraínska hersins eru að senda liðsauka á svæðið en segja að árásin hafi verið stöðvuð. Um nokkuð skeið hefur verið talið að Rússar ætli sér að gera atlögu að borginni. Erlent 10.5.2024 14:50
Pútín hefur fimmta kjörtímabilið með meiri völd en áður Fimmta kjörtímabil Vladimírs Pútín í embætti forseta Rússlands hefst í dag. Hann stendur frammi fyrir sex árum í embætti til viðbótar, hið minnsta, og hafa ítök hans í Rússlandi líklega aldrei verið meiri. Erlent 7.5.2024 10:41
Reiðir yfir ummælum Macrons og halda æfingar með kjarnorkuvopn Varnarmálaráðuneyti Rússlands tilkynnti í morgun að halda ætti heræfingar með svokölluð taktísk kjarnorkuvopn ríkisins. Æfingar þessar eiga að vera viðbrögð við ummælum vestrænna leiðtoga um innrás Rússa í Úkraínu og þá sérstaklega orð Emmanuels Macron, forseta Frakklands, um að ekki ætti að útiloka það að senda hermenn til Úkraínu. Erlent 6.5.2024 11:44
Útsendarar Rússa sakaðir um skipulagningu árása í Þýskalandi Lögregluþjónar í Bæjarlandi í Þýskalandi hafa handtekið tvo menn sem grunaðir eru um njósnir fyrir yfirvöld í Rússlandi. Þeir eru meðal annars sakaðir um að skipuleggja skemmdarverk og fyrir að ætla að framleiða sprengiefni, með því markmiði að skaða hernaðaraðstoð Þjóðverja til Úkraínu. Erlent 18.4.2024 14:27