Manndráp í Barðavogi
Landsréttur dæmir Magnús Aron í sextán ára fangelsi Landsréttur hefur dæmt Magnús Aron Magnússon, 22 ára karlmann, í sextán ára fangelsi fyrir að bana nágranna sínum Gylfa Bergmann Heimissyni fyrir utan heimili beggja í Barðavogi í Reykjavík í júní í fyrra. Innlent 8.12.2023 14:11
Magnús Aron dæmdur í sextán ára fangelsi í Barðavogsmálinu Magnús Aron Magnússon, 21 árs karlmaður, var dæmdur í sextán ára fangelsi fyrir að bana nágranna sínum Gylfa Bergmann Heimissyni utan við heimili beggja í Barðavogi í Reykjavík í júní í fyrra. Níu aðstandendum Gylfa voru dæmdar rúmlega 31,5 milljón króna í miskabætur. Innlent 27.4.2023 11:31
Fara fram á tólf til sextán ára fangelsi yfir Magnúsi Ákæruvaldið fer fram á að Magnús Aron Magnússon verði dæmdur í tólf til sextán ára fangelsi fyrir að hafa myrt Gylfa Bergmann Heimisson í júní árið 2022. Verjandi Magnúsar fer fram á að Magnús verði sakfelldur fyrir líkamsárás sem leiddi til dauða en ekki fyrir manndráp. Innlent 31.3.2023 14:06
Mikil vanræksla og ofbeldi í æsku Geðlæknar og sálfræðingar sem mátu andlegt ástand Magnúsar Arons Magnússonar segja hann ekki glíma við neina alvarlega geðsjúkdóma en hann sé líklegast á einhverfurófinu. Faðir Magnúsar neitaði að senda hann í greiningarviðtal eftir að hann hitti sálfræðing á unglingsaldri. Innlent 30.3.2023 15:10
Áverkar eftir skósóla Magnúsar á þeim látna Mynstur var á áverkum á hægri hlið ennis Gylfa Bergmann Heimissonar sem samsvara skósóla Magnúsar Arons Magnússonar sem ákærður er fyrir að hafa myrt Gylfa. Höggin sem ollu áverkunum komu ofan frá. Innlent 30.3.2023 12:22
Magnús furðulega rólegur miðað við aðstæður Fjöldi lögreglumanna gaf vitnisburð sinn fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur í dag í máli saksóknara gegn Magnúsi Aroni Magnússyni sem grunaður er um að hafa drepið nágranna sinn í júní á síðasta ári. Sammæltust þeir flestir um það að Magnús hafi virst of rólegur miðað við aðstæður. Innlent 29.3.2023 22:01
Nágrannarnir fylgdust með hörmungum í næsta garði Nágrannar Magnúsar Arons Magnússonar sem ákærður er fyrir að hafa myrt Gylfa Bergmann Heimisson við Barðavog í Reykjavík í fyrrasumar lýstu því fyrir dómi hvernig þau sáu Magnús traðka á Gylfa á meðan hann lá meðvitundarlaus fyrir utan hús sitt. Magnús sagðist fyrir dómi ekki hafa snert manninn eftir að hann féll á jörðina meðvitundarlaus. Innlent 29.3.2023 15:43
Minnti lögreglu áhyggjufullur á morð í Hafnarfirði en sagt að slaka á Tæplega þrítugur karlmaður sem bjó á miðhæð í húsi við Barðavog í Reykjavík þar sem karlmanni var ráðinn bani í júní í fyrra lýsti því að tvítugur karlmaður, grunaður um morðið, hafi ráðist á sig af engu tilefni tæplega sólarhring fyrr. Hann segir lögreglu hafa talið hann vera að bregðast of hart við þeirri árás og ekki hlustað á áhyggjur hans. Hinn látni hafi verið áberandi góður maður sem hafi viljað öllum vel. Innlent 29.3.2023 13:16
Magnús margsaga um atburðarásina örlagaríku í Barðavogi Magnús Aron Magnússon sem ákærður er fyrir morð í Barðavogi í fyrra neitaði fyrir við aðalmeðferð málsins fyrir dómi í dag að hafa sparkað ítrekað í höfuð Gylfa Bergmanns Heimissonar sem lést af áverkum sínum. Hann hafði þó lýst slíkum spörkum við lögreglumenn daginn örlagaríka en sú frásögn var tekin upp á búkmyndavél lögreglumanns. Magnús Aron hafði litlar skýringar á því hvers vegna litlir áverkar hefðu verið á honum eftir átökin. Innlent 29.3.2023 11:39
Dæsti og bað dómarann um að tala hærra Aðalmeðferð í Barðavogsmálinu svokallaða hófst í aðalsal Héraðsdóms Reykjavíkur í morgun. Magnús Aron Magnússon, tvítugur karlmaður, er ákærður fyrir að hafa orðið karlmanni á fimmtugsaldri að bana í Barðavogi í júní í fyrra. Innlent 29.3.2023 09:57
Geðlæknir telur Magnús Aron sakhæfan Magnús Aron Magnússon, tvítugur karlmaður sem ákærður er fyrir að hafa orðið karlmanni á fimmtugsaldri að bana í Barðavogi í júní, hefur verið metinn sakhæfur af geðlækni. Innlent 5.9.2022 23:15
Lést af völdum höfuðáverka eftir hrottalega líkamsárás Magnús Aron Magnússon, tvítugur karlmaður sem ákærður er fyrir að hafa orðið karlmanni á fimmtugsaldri að bana í Barðavogi í júní, réðst að manninum fyrst innanhúss og svo fyrir utan húsið. Í ákæru á hendur honum kemur fram að hann hafi traðkað ítrekað á höfði fórnarlambsins sem lést af völdum höfuðáverkans. Innlent 1.9.2022 14:58
Neitar sök í Barðavogsmálinu Karlmaður á þrítugsaldri, sem ákærður er fyrir að hafa orðið Gylfa Bergmann Heimissyni að bana fyrir utan heimili þeirra í Barðavogi í júní, neitaði sök við þingfestingu málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Ákveðið var að þinghald í málinu yrði opið. Innlent 30.8.2022 15:40
Ákært fyrir manndráp í Barðavogsmálinu Héraðssaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur karlmanni á þrítugsaldri fyrir manndráp í Barðavogi þann 4. júní. Þetta staðfestir Arnþrúður Þórarinsdóttir, saksóknari hjá héraðssaksóknara, í samtali við fréttastofu. Innlent 26.8.2022 15:38
Manndrápið í Barðavogi komið á borð héraðssaksóknara Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á manndrápi í Barðavogi í byrjun júní er lokið og málið er komið til héraðssaksóknara. Innlent 25.8.2022 19:52
Lögregla fer fram á áframhaldandi gæsluvarðhald vegna manndráps í Barðavogi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald í þágu almannahagsmuna yfir manni á þrítugsaldri sem grunaður er um að hafa orðið Gylfa Bergmann Heimissyni að bana í Barðavogi 4. júní síðastliðinn. Gæsluvarðhald yfir honum rennur út á morgun. Innlent 28.7.2022 11:34
Áframhaldandi gæsluvarðhald vegna manndráps í Barðavogi Karlmaður á þrítugsaldri sem grunaður er um að hafa orðið öðrum manni að bana í Barðagerði í byrjun mánaðar hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald. Innlent 1.7.2022 17:53
Góður gangur í rannsókn manndrápsins í Barðavogi Rannsókn manndrápsins í Barðavogi miðar vel að sögn fulltrúa hjá miðlægri rannsóknardeild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 21.6.2022 11:40
Skortur á úrræðum og engin lausn að senda veikt fólk í fangelsi Formaður Afstöðu, félags fanga, segir engin úrræði standa fólki með geðræn vandamál til boða inni í fangelsiskerfinu. Svokallaðar tifandi tímasprengjur finnist víða í þjóðfélaginu. Ísland sé áratugum á eftir í málaflokknum en stjórnvöld skorti vilja til að taka á vandamálinu. Innlent 11.6.2022 18:57
Nafn mannsins sem lést í Barðavogi Maðurinn sem lést í árásinni í Barðavogi í Reykjavík á laugardaginn hét Gylfi Bergmann Heimisson. Hann var fæddur árið 1975 og lætur eftir sig fjögur börn á aldrinum tveggja til 24 ára. Innlent 8.6.2022 10:38
Margir í hverfinu hafi vitað af ógnandi hegðun hins grunaða Morðrannsókn lögreglu í Barðavogi heldur áfram en ýmsir þættir eru nú til skoðunar. Maðurinn sem lést var á fimmtugsaldri og lætur eftir sig fjögur börn. Íbúar í hverfinu lýsa ógnvekjandi hegðun hins grunaða um árabil og segja marga hafa óttast hann. Innlent 7.6.2022 23:12
Sérfræðingar munu meta ástand hins grunaða Gera má ráð fyrir að morðrannsókn lögreglu í Barðavogi muni taka mánuði. Sérfræðingar munu meta hinn grunaða og réttarkrufning þarf að fara fram. Lögregla getur ekki tjáð sig um hvort játning liggur fyrir eða hvort morðvopn hafi fundist. Innlent 6.6.2022 19:32
Telja eigin viðbrögð hafa verið rétt Lögregla telur sig hafa brugðist rétt við þegar hún var kölluð tvisvar að húsi í Barðavogi í Reykjavík, vegna mannsins sem skömmu síðar var handtekinn, grunaður um að myrða nágranna sinn. Rannsókn málsins miðar vel og búið er að ræða við vitni í málinu. Innlent 6.6.2022 11:34
Úrskurðaður í rúmlega þriggja vikna gæsluvarðhald Karlmaður sem grunaður er um að hafa barið nágranna sinn til bana í gær var í dag úrskurðaður í rúmlega þriggja vikna gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna. Innlent 5.6.2022 16:25
Fyrrverandi nágranni segir manninn hafa þurft sértæk úrræði Skúli Þór Hilmarsson bjó í þrettán ár í sama húsi og maðurinn sem grunaður er um að hafa barið nágranna sinn til bana í gær. Hann segir manninn hafa skapað ógn og mörgum hafi staðið stuggur af honum í lengri tíma. Lögreglu hafi verið gert viðvart í fjölda skipta en vegna úrræðaleysis hafi ekkert gerst í málinu. Innlent 5.6.2022 15:41
Fjarlægðu ekki manninn þrátt fyrir tvær tilkynningar um ofbeldisfulla hegðun Maðurinn sem lögregla telur að hafi verið myrtur í Barðavogi í Reykjavík í gær og sá sem handtekinn var grunaður um morðið bjuggu í sama húsi. Aðstoðar lögreglu hafði verið óskað vegna þess síðarnefnda fyrr um daginn. Þetta herma heimildir fréttastofu. Innlent 5.6.2022 13:54
Tengsl milli þess látna og grunaðs morðingja Tengsl voru á milli mannsins sem lögregla telur að hafi verið myrtur í Barðavogi í Reykjavík í gærkvöldi, og þess sem lögregla hefur handtekið grunaðan um morðið. Lögreglan vinnur nú að því að ræða við hugsanleg vitni. Innlent 5.6.2022 11:46
Barsmíðar hafi leitt til dauða mannsins Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn í gærkvöld vegna gruns um morð í Barðavogi í Reykjavík. Innlent 5.6.2022 07:34
Karlmaður á þrítugsaldri handtekinn vegna gruns um morð í austurborginni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar hugsanlegt morð í austurbæ Reykjavíkur í kvöld. Mikill viðbúnaður var á vettvangi í kvöld. Innlent 4.6.2022 21:23