Mál Quangs Le (Davíðs Viðarssonar)

Ætlar ekki að tjá sig fyrr en að rannsókn lokinni
Davíð Viðarsson, framkvæmdastjóri og eigandi þrifafyrirtækisins Vy-þrifa og betur þekktur undir víetnömsku nafni sínu Quang Le, ætlar ekki að tjá sig um rannsókn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur á fyrirtækinu.

Gríðarlegt magn af rottuskít og um tuttugu tonnum af mat fargað
Farga þurfti rúmum tuttugu tonnum af matvælum sem geymd voru í um 360 fermetra kjallara í Sóltúni 20 eftir að matvælaeftirlit heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur komst á snoðir um málið. Mikið magn rottuskíts var að finna í rýminu og þurfti fjölmargar ferðir á sendiferðabílum til að ferja matvælin í Sorpu. Eigandinn svarar ekki fjölmiðlum vegna málsins.

Segir eiganda ólöglega matvælalagersins ekki rekstraraðila veitingastaðanna
Eldjárn Árnason, lögmaður eiganda hreingerningarfyrirtækisins VY þrif, segir hann ekki reka veitingahúsakeðjuna Pho Vietnam, sem hann er þó skráður eigandi að.Fyrirtækið Vy-þrif hafði til leigu geymslurými í Sóltúni þar sem heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur lagði hald á og lét farga nokkrum tonnum af óheilnæmum matvælum í síðustu viku.

Matvælin í geymslu þriffyrirtækis nátengdu veitingahúsarekstri
Þriffyrirtæki í Reykjavík sem er í eigu stórtæks veitingamanns leigði geymslurými í höfuðborginni þar sem heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur lagði hald á og lét farga fleiri tonnum af matvælum í síðustu viku. Óljóst er hvort til hafi staðið að selja matvælin til veitingastaða eða annarra aðila.

Eigandinn í Sóltúni segir málið sér óviðkomandi
Eigandi húsnæðisins þar sem lagt var hald á mikið magn matvæla við óheilnæmar aðstæður í síðustu viku, segir málið sér alls óviðkomandi. Hann hafi leigt húsnæðið og sá sem leigði af honum áframleigði það.

Nágrannar kvörtuðu undan lykt sem barst frá geymslunni
Matvælageymslan þar sem mörg tonn af matvælum sem geymd voru við óheilnæmar aðstæður fundust í síðustu viku var til húsa í Sóltúni 20. Aðrir sem höfðu afnot af umræddu húsnæði kvörtuðu undan lykt sem barst frá geymslunni.