Mál Daníels Gunnarssonar

Daníel fær 24 ára dóm til viðbótar fyrir barnaníð
Daníel Gunnarsson, sem þegar sætir lífstíðarfangelsi fyrir hrottalegt morð í Bandaríkjunum, hlaut í gær 24 ára fangelsisdóm til viðbótar fyrir barnaníð. Daníel, sem er 24 ára gamall, hafði þegar fallist á dóm án þess að játa sekt í málinu.

Íslendingur horfir fram á 24 ár í fangelsi til viðbótar
Íslendingurinn Daníel Gunnarsson, sem var á síðasta ári sakfelldur fyrir morð og limlestingu á líki í Bandaríkjunum, hefur fallist á dóm án þess að játa sekt í barnaníðsmáli.

Skoða dómsátt í barnaníðsmáli íslensks morðingja
Réttarhöldum í máli Daníels Gunnarssonar hefur verið frestað um nokkra daga vegna þess dómsátt milli hans og ákæruvaldsins er í undirbúningi. Á síðasta ári var hann dæmdur fyrir morð og limlestingu á líki, en málið sem nú er fyrir dómstólum varðar brot gegn barni.

Íslenskur morðingi neitar að hafa brotið á barni
Íslendingurinn Daníel Gunnarsson, sem var á síðasta ári sakfelldur fyrir morð og limlestingu á líki í Bandaríkjunum, neitar sök í öðru máli þar sem hann er grunaður um kynferðisbrot gegn barni.

Íslenskur morðingi nú grunaður um brot gegn barni
Íslendingurinn Daníel Gunnarsson, sem var á síðasta ári sakfelldur fyrir morð og limlestingu á líki í Bandaríkjunum, er nú grunaður um kynferðisbrot gegn börnum.

Daníel dæmdur í allt að lífstíðarfangelsi fyrir morðið á Pham
Daníel Gunnarsson hefur verið dæmdur í 27 ára til lífstíðarfangelsi fyrir að hafa orðið fyrrverandi bekkjasystur sinni, hinni 21 árs gömlu Katie Pham, að bana á hrottalegan hátt

Daníel Gunnarsson fundinn sekur um morð og limlestingu á líki
Kviðdómur í Kaliforníu hefur komist að þeirri niðurstöðu að Íslendingurinn Daníel Gunnarsson sé sekur um morð af fyrstu gráðu og limlestingu á líki. Úrskurður var kveðinn upp í héraðsdómstólnum í Kern í Bakersfield síðastliðinn miðvikudag.

Daníel grunaður um að hafa stungið kærustu sína til bana með ísnál
Réttarhöld í máli Daníels Gunnarssonar hófust í Kaliforníu í seinustu viku. Íslendingurinn er ákærður fyrir morð af fyrstu gráðu og limlestingu á líki. Hann er grunaður um að hafa orðið fyrrum bekkjarsystur sinni, hinni 21 árs gömlu Katie Pham, að bana á hrottalegan hátt. Vikurnar fyrir morðið höfðu þau átt í stuttu ástarsambandi.

Kanna sakhæfi Íslendings í hrottalegu morðmáli
Daníel Gunnarsson, 22 ára gamall Íslendingur sem grunaður er um að hafa myrt bekkjarsystur sína í Kaliforníu, verður leiddur fyrir dómara í þessum mánuði þar sem sakhæfi hans verður metið á ný. Hann hafði áður verið metinn ósakhæfur.

Daníel neitar að hafa myrt bekkjarsystur sína
Daníel Gunnarsson, 22 ára gamall Íslendingur, neitaði sök þegar mál hans var þingfest í Kern-sýslu í Kaliforníu í gær. Hann sætir ákæru fyrir að hafa myrt fyrrverandi bekkjarsystur sína og limlest lík hennar.

Íslendingurinn metinn óhæfur til að taka þátt í réttarhöldunum yfir honum
Daníel Gunnarsson, Íslendingur búsettur í Bandaríkjunum sem grunaður er um morð í bænum Ridecrest í Kaliforníu, hefur verið metinn óhæfur til að taka þátt í réttarhöldunum yfir honum. Málsmeðferð hefur verið frestað þangað til Daníel fær meðferð með það að markmiði að hann verði metinn hæfur. DV greindi fyrst frá.

Tvítugur Íslendingur ákærður fyrir hrottalegt morð í Kaliforníu
Íslenskur karlmaður um tvítugt er grunaður um að hafa myrt og limlest unga konu í bænum Ridgecrest í Kaliforníu í maímánuði. Hann hefur verið ákærður fyrir morð af fyrstu gráðu og er sagður hafa játað morðið.