Með 120 þúsund króna Dior der í golfi Birgitta Líf Björnsdóttir, markaðsstjóri World Class og áhrifavaldur, nýtur lífsins með fjölskyldunni í sólinni á erlendri grundu. Hún birti mynd á Instagram af sér á golfvelli, klædd í smart golfdress og með blátt der frá franska tískuhúsinu Christian Dior. Lífið 6.11.2024 15:01
Varpa ljósi á mikilvægi og gæði íslenskrar hönnunar Menningarlífið hérlendis iðar um þessar mundir þar sem afhending Hönnunarverðlauna Íslands 2024 fer fram á fimmtudag í Grósku. Menning 5.11.2024 15:00
Stappað á sjóðheitri tískusýningu hönnuða framtíðarinnar Það var mikil líf og fjör í LHÍ um helgina þar sem hátískan var í hávegum höfð. Annars árs fatahönnunarnemar stóðu fyrir tískusýningunni Misbrigði en sýningin var einstaklega vel sótt og færri komust að en vildu þar sem miðarnir ruku út eins og heitar lummur. Tíska og hönnun 5.11.2024 11:31
Laufey glæsileg í 400 þúsund króna kjól Stórstjarnan Laufey Lín skein skært á rauða dreglinum í fyrradag á tískuverðlaunahátíð CFDA sem haldin er af vinsælustu tískuhönnuðum Bandaríkjanna. Tíska og hönnun 30. október 2024 12:02
Adidas og Ye sættast Þýski íþróttavoruframleiðandinn Adidas og rapparinn Ye, áður Kanye West, hafa náð sáttum eftir að hafa staðið í málaferlum síðan Adidas sleit samstarfi við rapparann árið 2022. Viðskipti erlent 29. október 2024 20:32
Sif Jakobs: „Ekta demantar eru nú einfaldlega ræktaðir“ „Mamma sagði nú bara við mig þá: Sif mín, viltu ekki bara koma heim?“ segir Sif Jakobs skartgripahönnuður og hlær. Sem þó tók það ekki í mál, hélt áfram að banka upp á dyrnar hjá skartgripaverslunum í Kaupmannahöfn þar til hún fékk loksins vinnu í skartgripaverslun. Atvinnulíf 24. október 2024 07:03
„Hörðustu samningaviðræðurnar voru við yngsta fólkið „Hörðustu samningaviðræðurnar voru við yngsta fólkið. Og þar gildir það sem almennt gildir um hörðustu samningana: Við tökum eitt ár í einu,“ segir Ragna Sara Jónsdóttir stofnandi fyrirtækisins FÓLK og hlær. Atvinnulíf 23. október 2024 07:02
Bestu hrekkjavökubúningar stjarnanna Hrekkjavökuhátíðin hefur fest sig í sessi hérlendis á undanförnum árum og bætist stöðugt í hóp þeirra sem kjósa að klæða sig í búning 31. október. Sumir vilja fara alla leið í herlegheitunum og ákvað Lífið á Vísi því að veita lesendum innblástur þegar það kemur að hrekkjavökubúningum. Tíska og hönnun 22. október 2024 11:02
Lítið um litadýrð en glamúrinn í hávegum hafður Glamúrinn var sannarlega í fyrirrúmi á laugardagskvöld þegar stórstjörnur heimsins komu saman í sínu fínasta pússi á galakvöldi Academy Museum í Los Angeles. Tíska og hönnun 21. október 2024 20:00
Kynntust í Mílanó og urðu sálarsystur í tískunni Ofurskvísurnar Aníta Björt og Sigrún Guðný lifa fyrir tískuna og reka nytjaverslunina Mamma Mia Vintage í miðbæ Reykjavíkur. Þær stóðu fyrir tískuteiti á dögunum þar sem skvísur bæjarins mættu í sínu fínasta pússi. Tíska og hönnun 21. október 2024 13:01
Haustförðunin sem hefur slegið í gegn á TikTok Tískustraumar í förðunarheiminum eru eins misjafnir og þeir eru margir en í nýjasta þætti Fagurfræði tekur Rakel fyrir hausttrendin sem slegið hafa í gegn á samfélagsmiðlinum Tik-Tok. Lífið 18. október 2024 14:01
Nærfatamódelin sneru aftur eftir sex ára hlé Nærfatamódel á vegum Victoria's Secret sneru aftur á svið í gærkvöldi eftir sex ára hlé. Tískusýningin var því sérstaklega vegleg í þetta skiptið og fluttu einungis kvenkyns tónlistarmenn tónlistaratriði á hátíðinni. Allar helstu stjörnur fyrirsætuheimsins létu sig ekki vanta. Tíska og hönnun 16. október 2024 10:41
Heitustu skvísur landsins skáluðu fyrir Ástrós Raunveruleikastjarnan og dansarinn Ástrós Traustadóttir fagnaði nýrri fatalínu sinni með heitustu skvísum landsins síðastliðið sunnudagskvöld. Fatalínan er samstarfsverkefni Ástrósar og hönnuðarins Andreu en meðal gesta voru Sunneva Einars, Birgitta Líf, Magnea Björg, Manúela Ósk og Elísabet Gunnars. Tíska og hönnun 15. október 2024 13:01
Sjóðheitt menningarrými á Baldursgötu Menningarlífið iðar á Baldursgötu 36 þar sem nýtt listrænt rými var að opna. Þar má finna ýmis konar handverk, bókabúð með sérvöldum bókum hvaðan af úr heiminum og myndlistar-og hönnunarstofu. Opnuninni var fagnað með stæl síðastliðinn fimmtudag. Menning 14. október 2024 18:01
Vegleg afmælistilboð á gæðavörum í eldhús og baðherbergi Fjölskyldufyrirtækið Orgus heldur upp á 25 ára afmæli sitt um þessar mundir en það sérhæfir sig í vönduðum vörum fyrir baðherbergi og eldhús. Af því tilefni býður verslunin upp á 15-25% afslátt af fjölda vara fram á næsta þriðjudag. Lífið samstarf 11. október 2024 12:44
Hvað ef þú gætir breytt framtíð húðar þinnar? Á 4 sekúndna fresti selst flaska af gullelixírnum sem hefur haldið vinsældum sínum á milli kynslóða í 4 áratugi. Double Serum frá Clarins hefur ávallt verið dáð fyrir einstaka formúlu sína sem nýtir ofurkrafta náttúrunnar og sameinar þá nýjustu tækni í heimi húðumhirðu. Lífið samstarf 10. október 2024 08:57
Halla í rándýrum kjól með Maríu og Friðriki Halla Tómasdóttir forseti Íslands klæddist gylltum síðkjól eftir breska hönnuðinn Jenny Packham í hátíðarkvöldverði sem haldinn var í Kristjánsborgarhöll í Kaupmannahöfn í gærkvöldi. Hönnuðurinn virðist vinsæll meðal konungsfólks. Lífið 9. október 2024 16:01
Fyrsta fatalínan í sögu Ikea mætt til landsins Forsvarsmenn Ikea á Íslandi hafa sett fyrstu fatalínuna í sögu húsgagnarisans í sölu hér á landi. Þannig er í fyrsta skipti hægt að versla sér Ikea peysur, Ikea hatt og Ikea regnhlíf svo eitthvað sé nefnt en þó einungis á meðan birgðir endast. Viðskipti innlent 9. október 2024 14:01
Skelltu sér í rússíbana með James Franco á tískusýningu ársins Fatahönnuðurinn Hildur Yeoman er nýkomin heim úr ævintýralegri ferð til Parísar þar sem hún þræddi tískusýningar franskra tískuhúsa, skellti sér í rússíbana með stórstjörnum, hitti Kylie Jenner og tók púlsinn á helstu straumum tískunnar um þessar mundir. Tíska og hönnun 8. október 2024 15:02
Lopabuxur og geitavesti á tískusýningu í sveitinni Íslenskar prjónavörur hafa sjaldan eða aldrei verið eins vinsælar og nú, enda rjúka vörurnar út eins og heitar lummur hjá prjónakonum og hönnuðum varanna. Geitaskinnsvesti eru líka að slá í gegn, svo ekki sé minnst á lopabuxur. Innlent 7. október 2024 20:06
Byltingarkennd nýjung fyrir blondínur frá JOHN FRIEDA Njóttu þess að vera ljóska án þess að hafa áhyggjur af skemmdum! Blonde+ Repair er fyrir ljóskur alls staðar, hvort sem þú elskar balayage eða babylights, strípur eða aflitun. Lífið samstarf 7. október 2024 11:29
Hvernig náum við fram okkar bestu andlitsdráttum? „Í þættinum í dag ætla ég að fara með ykkur í gegnum skyggingar. Skyggingar vefjast oft fyrir mörgum og við erum oft pínu hrædd við þær,“ segir förðunarfræðingurinn og hársnyrtinn Rakel María í nýjasta þætti Fagurfræða. Þar fer Rakel yfir það hvernig best er að skyggja andlitið svo andlitsdrættir njóti sín sem best. Tíska og hönnun 4. október 2024 14:01
„Hönnun er í raun og veru allt í kringum okkur“ Hönnunarþing, hátíð hönnunar og nýsköpunar, fer fram á Húsavík í dag og á morgun. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá en forvígismaður hátíðarinnar segir hönnun vera allt í kringum okkur á hverjum degi og að hátíðin eigi því erindi við alla. Innlent 4. október 2024 12:42
Ný vetrarlína Moomin væntanleg í takmörkuðu upplagi Skíðastökk er heiti vetrarlínu Moomin Arabia árið 2024. Línan sýnir Múmínsnáða á harðastökki á skíðum og inniheldur krús og skál auk fleiri fallegra muna t.d. sængurföt og handklæði í stíl. Línan verður aðeins fáanleg í takmörkuðu upplagi á Íslandi frá föstudeginum 11. október 2024. Lífið samstarf 4. október 2024 12:00