

Veiðin á þremur efstu svæðum Blöndu hefur farið afar hægt af stað fyrstu þrjár vikur veiðitímabilsins.
Yfir 50 laxar eru komnir á land í Korpu/Úlfarsá frá því veiðin hófst þar 21. júní. Þetta kemur fram á vef Hreggnasa.
Byggðaráð Borgarbyggðar hyggst láta kanna umfang og samfélagsleg áhrif stangveiða í sveitarfélaginu. Efnahagslegt virði laxveiðanna í Borgarbyggð; bein, óbein og afleidd áhrif, eru áætluð 3,2 milljarðar króna.
Veiðin í Elliðaánum hefur verið afbragðsgóð þar sem af er sumri. Á hádegi í fyrradag fór veiðin yfir 300 laxa að því er segir á vef Stangaveiðifélags Reykjavíkur.
Tafir hafa orðið á smíði veiðihúss við Miðá í Steingrímsfirði sem Lax-á hóf að bjóða veiðileyfi í fyrir þetta sumar. Að því er segir á vef fyrirtækisins ætti húsið þó að verða tilbúið í viikunni.
Stórlax veiddist í Breiðdalsá í fyrradag. Þetta var nýrunninn hængur sem mældist 100 sentímetrar og vó 11 kíló. Þessi lax ásamt öðrum jafn löngum, sem veiddist í Víðidalsá fyrir helgi, eru þeir stærstu sem komið hafa á land það sem af er sumri, samkvæmt heimildum Veiðivísis.
Við vorum fimm sem lögðum leið okkar í Hrútafjarðará á miðvikudaginn. Allir vorum við að koma þarna í fyrsta skiptið og þrátt fyrir ótrúlegt vatnsleysi urðum við ekki fyrir vonbrigðum.
Sérfræðingur Veiðimálastofnunar gagnrýnir fullyrðingar Landsvirkjunar um áhrif hugsanlegrar virkjunar í Stóru-Laxá á laxastofna. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.
Sannkallaður boltaurriði veiddist í Þingvallavatni í dag. Skeyti um þetta barst frá veiðimanninum.
Svavar Hávarðsson veiddi í morgun fyrsta laxinn í Hrútafjarðará þetta árið. Svavar missti síðan annan lax. Aðstæður í ánni eru erfiðar.
Mjög góður gangur er í Rangánum þessa dagana samkvæmt upplýsingum á vef söluaðilans, Lax-á. Samtals um 300 laxar eru komnir á land úr ánum tveimur.
Stóra-Laxá er komin í gang. Samkvæmt fréttum frá Lax-á veiddust fimm laxar á fyrsta degi á Svæði I og II og fimm laxar frá því Svæði IV opnaði í gær og til hádegis í dag
Veiði í Hlíðarvatni í Selvogi hefur verið dræm samkvæmt frétt á vef stangaveiðifélagsins Ármenn. Skýringin er sögð mikið fæðuframboð sem letji silunginn til að taka flugur veiðimanna.
Þrátt fyrir að aðeins sé veitt á tvær stangir í Leirvogsá komu 15 laxar á land þegar áin var opnuð í fyrradag. Á vef Stangaveiðifélags Reykjavíkur er fullyrt að þetta sé næst besta byrjun sem lestu menn muni eftir.
Ellefu laxar komu á land í Svartá í Svartárdal í fyrradag en þá hófst veiði í ánni. Tveir laxar veiddust í Tungufljóti fyrsta daginn og júnímánuður var mjög góður í Skjálfandafljóti.
Töldu menn tíu laxa á Pallinum, þrjá laxa í Klaufinni, og þar af einn boltafisk, tveir laxar sáust á Hólmabreiðu og tveir á veiðistaðnum Skerinu.
Níu laxar eru komnir á land í Breiðdalsá sem opnaði í gær. Einn laxanna veiddist á silungasvæðinu á laugardaginn. Þrír veiddust í Jöklu en dauft var í Hrútafjarðará en þessar tvær ár opnuðu einnig í gær.
Veiðin í júní á aðalsvæðinu í Hítará á Mýrum var óvenju góð. Ríflega 50 laxar hafa komið á land og mun það vera ein allra besta júní-veiði frá því skráningar hófust að því er segir á vef Stangaveiðifélags Reykjavíkur.
Sjö manna holl sem var við veiðar á tveimur efstu svæðum Blöndu um síðustu helgi kom þaðan laxlaust. Bleikjan í Rugludalshyl bjargaði andliti hópsins.
"Við fengum tvær spikfeitar og spegilsilfraðar á seinni vaktinni í Lóninu. Báðar tóku þær fluguna. Var önnur þeirra síðspikuð fjögurra punda og hin um tvö pund“.
Á Veiðivísi hefur töluvert verið fjallað um ódýr laxveiðileyfi undanfarnar vikur. Á silungasvæðinu í Breiðdalsá er ágætis laxavon. Síðasta sumar komu 60 laxar á land á þessu svæði en auk þess veiddust ríflega 300 silungar - urriðar, sjóbirtingar og sjóbleikjur.
Laxinn er þegar kominn á eftra svæðið í Selá en í fyrrakvöld komu þrír á land í Leifsstaðarhyl og Réttarhyl. Gríðarlegt hrygningarsvæði opnast með nýjum laxastiga.