Eldgos og jarðhræringar
1 2 3 4 5 6 … 134 ›
Lýsa yfir hættustigi vegna yfirvofandi eldgoss Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir hættustigi vegna vaxandi líkna á eldgosi á Sundhnúksgígaröðinni á Reykjanesi. Síðasta eldgosi lauk þar þann 9. desember en það var sjöunda eldgosið á svæðinu og síðan þá hefur kvika safnast saman aftur undir Svartsengi. Innlent 30.1.2025 17:11
Eldgosin í stærri kantinum verði þau við flekamótin Líkur á enn öðru eldgosi á Reykjanesskaga aukast með hverjum degi þar sem kvikumagnið undir Svartsengi svipar nú til þess sem kom upp í síðasta gosi. Ármann Höskuldsson eldfjallafræðingur segir líklegt að við séum komin í seinni hluta goshrinunnar á Reykjanesskaga. Innlent 29.1.2025 21:48
„Seinni hluta febrúar eða snemma í mars er líklegt“ Búast má við eldgosi á Reykjanesskaga um mánaðamótin febrúar / mars, miðað við núverandi stöðu. Prófessor í jarðeðlisfræði segir vísbendingar um að tekið sé að síga á seinni hluta eldgosahrinu síðustu ára. Innlent 29.1.2025 12:16
Mikið í húfi kæmi stórt gos úr Bárðarbungukerfinu Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur telur að það sé brýn nauðsyn að endurskoða það hvort rétt sé að útiloka stór hraungos frá Bárðarbungukerfinu. Það er vegna þess að mjög mikið gæti verið í húfi fyrir allan orkubúskap Íslands, og ljóst að kvika haldi áfram að safnast saman undir öskju Bárðarbungu. Innlent 29.1.2025 11:55
Líkur á eldgosi fara vaxandi Aflögunarmælingar sýna áframhaldandi landris og kvikusöfnun undir Svartsengi. Atburðarrásin heldur því áfram á svipaðan hátt og fyrir síðustu gos. Líkanreikningar sýna að magn kviku sem safnast hefur undir Svartsengi nálgast það magn sem kom upp í síðasta eldgosi. Innlent 28.1.2025 16:21
Sjá auknar líkur á eldgosi í kortunum Landris heldur áfram á Sundhnúksgígaröðinni en en hraði landriss hefur minnkað örlítið. Í tilkynningu frá Veðurstofunni kemur fram að þessi breyting hafi ekki áhrif á fyrra mat Veðurstofunnar um líklega atburðarás á svæðinu og að enn megi gera ráð fyrir því að líkur á kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi á Sundhnúksgígaröðinni fari að aukast í lok janúar eða byrjun febrúar Innlent 21.1.2025 14:41
Snarpur skjálfti við Trölladyngju Snarpur jarðskjálfti mældist við Trölladyngju á Reykjanesskaga í dag. Skjálftinn var 3,3 að stærð og greindinst hann á mælum klukkan 13:45 í dag. Þá hafa nokkrir eftirskjálftar fylgt honum. Innlent 18.1.2025 14:39
Aflýsa óvissustigi vegna Bárðarbungu Ríkislögreglustjóri hefur aflýst óvissustigi Almannavarna vegna skjálftavirkni í Bárðarbungu. Óvissustigi var lýst yfir á þriðjudaginn eftir töluverðar skjálftavirkni við Bárðarbungu degi áður en lítil virkni hefur greinst á svæðinu síðan þá. Innlent 17.1.2025 14:55
Lítil virkni frá hrinunni Lítil jarðskjálftavirkni hefur mælst í Bárðarbungu síðan áköf jarðskjálftahrina varð þar í gærmorgun á milli klukkan 6 og 9. Stakur skjálfti 2,4 að stærð mældist klukkan 17:17 síðdegis í gær en annars hefur verið lítil skjálftavirkni. Þó er ekki útilokað að jarðskjálftavirkni á svæðinu taki sig aftur upp á næstunni. Innlent 15.1.2025 13:29
Rólegt við Bárðarbungu Rólegt var við Bárðarbungu í nótt en jarðskjálftahrina hófst þar í gærmorgun og náði hámarki klukkan 8:05 þegar stærsti skjálftinn, 5,1 að stærð, mældist. Innlent 15.1.2025 07:09
„Við erum að sjá þarna hluti sem hafa ekki sést áður í heiminum“ Öflugusta skjálftahrinan í áratug reið yfir í Bárðarbungu í morgun og er talið að hún tengist kvikuinnskoti. Prófessor í jarðeðlisfræði segir skjálftahrinuna óvanalega. Innlent 14.1.2025 20:17
Getur ekki fullyrt að gosið hafi áður í Bárðarbungu Eldfjallafræðingur telur að skjálftahrina í Bárðarbungu „deyi út í augnablikinu.“ Það sé ekki víst hvort að það hafi nokkurn tímann gosið þar síðan jökla leysti. Innlent 14.1.2025 17:38
Virkja viðbragðsáætlun og opna aðgerðastjórn Vegna aukinnar jarðskjálftavirkni í Bárðarbungu hefur lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra, í samráði við almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, virkjað viðbragðsáætlun vegna eldgoss í Bárðarbungu eða norðan Vatnajökuls. Innlent 14.1.2025 17:34
Áframhaldandi landris við Svartsengi Áfram en landris og kvikusöfnun undir Svartsengi. Hættumat Veðurstofu Íslands er óbreytt. Innlent 14.1.2025 16:21
Atburðarásin minnir á undanfara eldgossins í Holuhrauni Áköf jarðskjálftahrina varð í Bráðabungu í Vatnajökli morgun. Jarðeðlisfræðingur segir hrinuna óvanalega og atburðarásina minna á undanfara eldgossins í Holuhrauni. Innlent 14.1.2025 12:39
Óvissustig vegna skjálfta í Bárðarbungu Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir óvissustigi Almannavarna vegna aukinna skjálftavirkni í Bárðarbungu. Öflug jarðskjálftahrina hófst þar klukkan morgun og hafa um 130 skjálftar mælst. Sá stærsti var 5,1 að stærð. Innlent 14.1.2025 12:10
Ekki sést síðan í aðdraganda gossins í Holuhrauni 2014 Skjálftavirknin í Bárðarbungu datt hratt niður um klukkan níu eftir að hafa hafist af miklum þunga upp úr klukkan sex í morgun. Viðlíka skjálftavirkni hefur þó ekki sést á svæðinu síðan í aðdraganda eldgossins í Holuhrauni 2014. Innlent 14.1.2025 10:35
Ár liðið frá því hraun rann inn í Grindavík Ár er liðið frá því hraun rann inn í Grindavík þann 14. janúar 2024 í öðru eldgosi hrinunnar við Sundhnúksgíga. Gosið hófst um áttaleytið um morguninn og náði hraun fyrsta húsinu í Efrahópi um fimm tímum síðar. Innlent 14.1.2025 10:30
Óvenjuleg skjálftahrina í Bárðarbungu Jarðskjálftahrina hófst í Bárðarbungu nú í morgun klukkan 06:08. Stærsti skjálftinn mældist 4,4 að stærð klukkan 6:29. Þrír skjálftanna hafa verið yfir 3 að stærð. Innlent 14.1.2025 07:19
Hlaup hafið úr Grímsvötnum Undanfarna daga hefur mælst hægt vaxandi hlaupórói á jarðskjálftamælinum á Grímsfjalli. Það bendir til þess að jökulhlaup sé hafið úr Grímsvötnum. Innlent 13.1.2025 14:19
Stór skjálfti reið yfir í Ljósufjallakerfinu Jarðskjálfti reið yfir í Ljósufjallakerfinu upp úr fimm í dag sem var 2,9 að stærð. Að sögn náttúruvársérfræðings hjá Veðurstofu Íslands er þetta með stærri skjálftum sem riðið hafa yfir á svæðinu á undanförnum árum. Innlent 12.1.2025 18:28
Ný leið fyrir ferðamenn með átta eldfjöllum Forsvarsmenn ferðaþjónustunnar á Reykjanesi og á Suðurlandi eru nú að kynna nýja og spennandi leið fyrir ferðamenn, sem nær frá Fagradalsfjalli á Reykjanesi að Öræfajökli í sunnanverðum Vatnajökli. Leiðin er um 700 kílómetra. Innlent 11.1.2025 21:06
Hækka vöktunarstig en segja kvikuhreyfingar ekki nærri yfirborði Veðurstofan hefur hækkað vöktunarstig á Ljósufjöllum. GPS og gervitunglagögn sýna enga mælanlega aflögun og eru engar sérstakar vísbendingar um að kvikuhreyfingar séu nærri yfirborði. Skjálfar hafa mælst á svæðinu en þeir eru á „óvenjulegri dýpt“ samkvæmt tilkynningu Veðurstofunnar um málið. Innlent 9.1.2025 12:11
Efla vöktun við Ljósufjöll vegna jarðhræringa Veðurstofan hyggst auka vöktunarstig við Ljósufjöll vegna skjálftavirkni á svæðinu undanfarnar vikur. Náttúruvársérfræðingur segir sérstakt að skjálftavirkni mælist svo lengi á jafnmiklu dýpi og raunin er nú. Innlent 8.1.2025 11:48
Skjálftar við Grjótárvatn og Bárðarbungu Skjálfti 2,9 að stærð varð við Grjótárvatn, norður af Borgarnesi, klukkan 5:13 í nótt. Þá varð skjálfti 4,1 að stærð við Bárðarbungu upp úr hálf fjögur í nótt. Innlent 8.1.2025 08:05
Vill efla vöktun og innviði vegna kerfisins sem er að vakna Sveitarstjóri í Borgarbyggð segir nauðsynlegt að efla þar vöktun og tryggja innviði í ljósi jarðhræringa í Ljósufjallakerfi síðustu daga. Borgarbyggð sé víðfemt og fjölfarið sveitarfélag, þar sem fjarskiptasambandi sé til að mynda víða ábótavant. Nýjar þrívíddarmyndir veita innsýn í dýpt og dreifingu jarðskjálfta á svæðinu síðasta árið. Innlent 5.1.2025 13:31
„Það er eins og Snæfellsnesið sé komið í gang“ Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur segir útlit fyrir að þekkt eldgosasvæði á Snæfellsnesi sé komið í gang, en um þúsund ár eru liðin frá síðasta eldgosi þar. Mestar líkur séu á hraungosi ekki ósvipuðum þeim sem sést hafa á Reykjanesskaganum undanfarin ár. Innlent 3.1.2025 21:01
Lengsti óróapúlsinn til þessa Lengsti óróapúlsinn í Ljósufjallakerfinu mældist við Grjótarárvatn í fjöllunum ofan Mýra síðdegis í gær. Eldfjalla- og náttúruvárhópur Suðurlands greinir frá á Facebook-hóp sínum. Innlent 3.1.2025 11:57
Hraunbreiðan enn heit og hættuleg göngufólki Kvikusöfnun undir Svartsengi heldur áfram. Það sýna aflögunargögn frá Veðurstofunni fram og til 30. desember 2024. Samkvæmt tilkynningu Veðurstofunnar eru auknar líkur á kvikuhlaupi eða jafnvel eldgosi í lok janúar. Enn er hraunbreiðan frá síðasta eldgosi talin hættuleg göngufólki. Nýtt hættumat fyrir svæðið hefur verið birt. Innlent 2.1.2025 15:47
Prófa rýmingarflautur í Grindavík í dag Klukkan 11 í dag mun Lögreglan á Suðurnesjum prófa rýmingarflautur í Grindavík og Svartsengi. Í tilkynningu kemur fram að þetta sé gert til að prófa virkni fjarræsibúnaðar og handræsibúnaðar sem settur hefur verið við flauturnar og til að tryggja virkni búnaðar. Innlent 2.1.2025 08:56