Ísland í dag
Nadia Katrín vinnur mest í hjónarúminu
Hálf þjóðin vinnur heima þessa dagana. En að hverju þarf að huga svo koma megi einhverju í verk og svo ísskápurinn freisti ekki á fimm mínútna fresti?
Alma Möller elskar ferðalög, saumaskap, kampavín og hálendi Íslands
Alma Dagbjört Möller landlæknir hefur ásamt þeim Víði Reynissyni og Þórólfi Guðnasyni staðið vaktina í kórónuveirufaraldrinum og upplýst almenning síðustu vikur.
Oft algjör slembilukka að konurnar séu á lífi
Þúsundir eru heima hjá sér um þessar mundir. Veikir eða í sóttkví eða hræddir við það að veikjast. Við getum ekki hitt margar í einu, skólarnir eru ekki fúnkerandi sem skildi og börnin því meira heima
Gætum þurft að búa við takmarkanir út árið
Íslendingar ættu að vera undir það búnir að einhvers konar takmarkanir vegna kórónuveirunnar gætu verið í gildi út þetta ár.
Skreytum hús breytti lífi Soffíu
Soffía Dögg Garðarsdóttir heldur úti vefsíðunni Skreytum hús byrjaði að blogga fyrir tíu árum grunlaus um að vefsíðan ætti eftir að slá í gegn og breyta lífi hennar.
„Þetta er bara líf mitt og ekkert bull“
Söngleikurinn Níu líf fjallar um ævi Bubba Morthens, manninn sem fyrst var málsvari verkalýðsins og atómpönkari en svo einnig fíkill, veiðimaður, friðarsinni, boxari og auðvitað tónlistarmaður.
Kjaftasögur og fordómar eftir skíðaferð til Ítalíu
Athafnakonan Eva Dögg Sigurgeirsdóttir var ein af þeim fyrstu sem fór í sóttkví hér á landi en hún og fjölskylda hennar voru á skíðum í ítölskum ölpunum í febrúar.
Upplifir langveika syni sína öruggari í þjóðfélaginu núna
Þórunn Eva er móðir tveggja langveikra drengja en þeir eru báðir með genagalla á ónæmiskerfinu. Hún upplifir öryggi nú þegar allt þjóðfélagið passar vel upp á hreinlæti og handþvott.
Vilja skikka foreldra á námskeið eftir skilnað barnanna vegna
Skilnaður er oft erfiður fyrir fólk sérstaklega þegar börn eru í spilinu. Í dag 1.apríl opnar Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra nýjan rafrænan vettvang um sérhæfða skilnaðarráðgjöf sem ber heitið samvinna eftir skilnað barnanna vegna.
„Langaði virkilega að upplifa mig sem konu“
Þór Ludwig Stiefel er merkilegur myndlistarmaður en hann er listmálari sem hefur haldið ótal einka og samsýninga allt frá því hann hélt sína fyrstu sýningu í Hlaðvarpanum í Reykjavík árið 1990.
„Þetta eru auðvitað bara ömurlegir tímar“
Viðskiptavinir verslana og veitingastaða landsins eru hættir að mæta á svæðið og hefur verslun hrunið.
Kann ekkert í eldhúsinu en náði að matreiða dýrindis kjötböllur
Við erum flest meira og minna heima um þessar mundir, förum minna út að borða og eldum því oftar.
Elskar United, rjómasósu og konuna sína: „Tala bara frá hjartanu“
Hann getur orðið trylltur en það er aðallega þegar landsliðið spilar sem og Manchester United. Hann veit fátt betra en nautalund með rjómasósu, á konu sem er hans besti vinur og svo er hann að verða afi. Sindri Sindrason tók morgunkaffi með Víði Reynissyni í Íslandi í dag á Stöð 2.
Ferðinni frestað um tvo mánuði vegna kórónuveirunnar
Fjöldi stúlkna á flótta hefur ekki verið hærri frá lokum seinni heimsstyrjaldarinnar, stúlkurnar eru berskjaldaður hópur og eiga í mikilli hættu á að verða fyrir ofbeldi og misnotkun.
Þrítugur prestur á Akranesi: Tekur Bachelor kvöld með stelpunum og vill rétta ímynd kirkjunnar
Þegar hún kláraði Versló ætlaði hún sér ekki að verða prestur og í raun ekki heldur þegar hún kláraði sálfræðina. Hana langaði þó að hjálpa fólki, og sérstaklega á tímum eins og nú ganga yfir. Þóra Björg Sigurðardóttir, sem alltaf var öflug í KFUM&KFUK vildi þó líka breyta ímynd kirkjunnar sem oft hefur verið slæm.
Steindi fer yfir hvernig maður drepur tímann heima
Samkomubann tók gildi klukkan 00:01 í nótt en það var sett á til þess að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar hér á landi. Að óbreyttu gildir samkomubannið næstu fjórar vikurnar.
Ferming eða páskaveisla fyrir 25 þúsund krónur
Hvernig heldur maður ódýra fermingar/páskaveislu sem kostar ekki nema um 25 þúsund krónur með öllu? Veislu fyrir um áttatíu manns.
„Manni líður eins og maður sé að deyja“
Sonja Ólafsdóttir er þrjátíu og eins árs, tveggja barna móðir og eigandi Crossfit Austur á Egilsstöðum. Fyrir ári síðan keyrði Sonja sig út eftir mikið álag og streitu, líkaminn gaf sig og hún gat ekki staðið upp í tíu daga.
Farðar stjörnurnar: Hopkins í uppáhaldi en draumurinn að vinna með DiCaprio og Pitt
Sindri Sindrason hitti Mandy Artusato á dögunum í Los Angeles sem hefur búið í borginni síðan hún var 19 ára gömul. Undanfarið hefur hún starfað við förðun þar í borg og farðar allar margar af helstu stjörnunum í Hollywood, stjörnur á borð við Anthony Hopkins, Macy Gray, Terry Crews, Kelly Osbourne og margar fleiri.
„Erfiðast í þessu ferli er þegar maður missir það“
Linda Haukdal er 45 ára, einhleyp og hefur reynt að eignast barn í nokkur ár. Hún hefur bæði varið miklum tíma og fjármunum í meðferðir en samtals hefur hún farið í 12 glasameðferðir hér á landi með engum árangri.
Morgunrútínan með Bjarna Ben: Fyrirferðarmikill söngvari sem vekur allt heimilið
Hann vaknar glaður, vekur alla með söng og lætur fara mikið fyrir sér. Í Íslandi í dag á Stöð 2 í gærkvöldi fékk Sindri Sindrason að fylgjast með morgunrútínunni með Bjarna Benediktssyni, fjármálaráðherra á heimili hans í Garðabænum.
„Er algjör furðufugl en það er allt í góðu lagi“
Engill Bjartur Einisson er eitt yngsta starfandi ljóðskáld landsins. Árið 2018 sendi hann frá sér sína fyrstu ljóðabók, Vígslu, sem hefur að geyma fjörutíu frumsamin ljóð og núna í vetur kom út önnur bók hans sem hann kallar Ljóðgæti.
Móðir Sæunnar ákvað að svelta sig til dauða
Móðir Sæunnar Kjartansdóttur sálgreinis tilkynnti henni og systrum hennar að hún ætlaði að deyja og myndi ekki framar borða eða drekka og þannig svelti hún sig til dauða fyrir framan dætur sínar og fjölskyldu.
„Stóð frammi fyrir því að missa bæði barnið mitt og konuna mína“
Fyrir tuttugu árum greindist Sirrý Jónasdóttir með nýrnasjúkdóm, hún var þá gengin sex mánuði með sitt annað barn og algjörlega ómeðvituð um sjúkdóminn.
Sölvi um kulnun: „Fólk er ekki að taka ábyrgð í einkalífinu“
Hvað er kulnun? Hverjir upplifa kulnun og hvernig er hægt að koma í veg fyrir hana? Sölvi Tryggvason hefur sterkar skoðanir á því.
„Er alltaf vondi kallinn“
Leikarinn Darri Ingólfsson hefur farið í yfir tvö hundruð áheyrnarprufur, fengið hlutverk í Castle, Rizzoli and Isle, NCIS, Stalker og Dexter en draumurinn er að landa hlutverki í kvikmynd. Hræðslan er hins vegar að enda í sápuóperu.
Sneri við blaðinu eftir að kærastinn fór frá henni: „Fannst ég feit, ljót og ömurleg“
Tinna Rós Steinsdóttir upplifði mikla sorg eftir að kærastinn yfirgaf hana. Hún ákvað þá að taka þátt í hamingjuáskorun á Facebook en Vala Matt hitti hana í Íslandi í dag á Stöð 2 í gær.
Fordómafullt fólk lætur út úr sér hluti sem það veit ekkert um
Í sjónvarpsþáttunum Trans börn á Stöð 2 er fylgst með fjórum íslenskum fjölskyldum sem eiga það sameiginlegt að innan þeirra er barn sem upplifir sig í öðru kyni en því sem þeim var úthlutað við fæðingu.
Steingrímur var fimm mínútum frá því að verða alvöru róni
Listamaðurinn Steingrímur Gauti hefur verið að gera góða hluti að undanförnu og kominn á samning hjá listagalleríinu Tveimur hröfnum. Í dag gengur honum vel en hlutirnir hefðu getað þróast allt öðruvísi.