Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2020
6 7 8 9 10 11 12 13 14 … 69 ›
Pence ánægður með þingmenninna sem vilja ekki samþykkja niðurstöðurnar Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, virðist ánægður með framtak ellefu öldungadeildarþingmanna Repúblikanaflokksins sem segjast ekki ætla að samþykkja niðurstöður forsetakosninganna þar ytra nema fram fari óháð rannsókn á kosningunum í ákveðnum ríkjum Bandaríkjanna. Erlent 3.1.2021 10:27
Þingmenn Repúblikana neita enn að viðurkenna niðurstöður kosninganna Ted Cruz og Ron Johnson eru á meðal þeirra öldungadeildarþingmanna úr röðum Repúblikanaflokksins sem segjast ekki ætla að samþykkja niðurstöður kosningaúrslita úr þeim ríkjum þar sem Donald Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseti, hefur dregið framkvæmd og úrslit kosninganna í efa. Erlent 2.1.2021 22:25
Lögsókn sem átti að heimila Pence að hafna kjörmönnum hent út Alríkisdómari í Texas hefur hafnað lögsókn fulltrúadeildarþingmanns Repúblikana og samflokksmanna hans í Arizona sem miðaði að því að heimila varaforseta Bandaríkjanna að hafna atkvæðum ákveðinna kjörmanna í forsetakosningunum ytra. Erlent 2.1.2021 10:37
Þingmenn munu neyðast til að taka afstöðu með eða á móti Trump Öldungadeildarþingmaðurinn Josh Hawley greindi frá því í dag að hann hygðist mótmæla þegar Bandaríkjaþing „telur“ kjörmannaatkvæðin eftir forsetakosningarnar 6. janúar næstkomandi. Erlent 30.12.2020 23:04
Deilurnar um ávísanirnar halda áfram Mitch McConnell, forseti öldungadeildar Bandaríkjaþings, kom sér undan því í gær að halda atkvæðagreiðslu um það að senda hverjum Bandaríkjamanni tvö þúsund dala ávísun. Frumvarpið hefur áður verið samþykkt í fulltrúadeildinni, þar sem Demókratar eru í meirihluta. Þar að auki hafði Donald Trump, fráfarandi forseti, krafist þess að frumvarp þar að lútandi yrði samþykkt. Erlent 30.12.2020 13:45
Segir forystu Repúblikanaflokksins aumkunarverða og kunna ekkert nema að tapa Svo virðist sem uppreisn sé hafin gegn ofríki Donald Trump innan Repúblikanaflokksins en forsetinn fór mikinn á Twitter í dag eftir að samflokksmenn hans í fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykktu að þvinga í gegn frumvarpi um fjárveitingar til hermála, sem Trump hafði neitað að lögfesta með undirskrift sinni. Erlent 29.12.2020 17:39
Sakar Trump-liða um að draga lappirnar Joe Biden, verðandi forseti Bandaríkjanna, segir að pólitískt ráðnir starfsmenn Donalds Trump, fráfarandi forseta, og Trump sjálfur séu að draga lappirnar varðandi stjórnarskiptin. Vísaði hann sérstaklega til starfsmanna stofnanna í varnarmálaráðuneytinu og Office of Management and Budget eða OMB. Erlent 29.12.2020 15:01
Græddi ekkert og reitti alla til reiði Donald Trump, fráfarandi forseti Bandaríkjanna, undirritaði frumvarp um neyðaraðstoð handa Bandaríkjamönnum og fyrirtækjum vegna faraldurs nýju kórónuveirunnar í nótt. Hann hafði áður neitað að undirrita frumvarpið, sem snýr einnig að fjárveitingum til reksturs alríkisstofnanna, og krafðist þess að dregið yrði úr kostnaði. Erlent 28.12.2020 14:51
Gömul bloggfærsla kom upp um „leynilegt vitni“ sem reyndist vera stuðningsmaður Trump Lögmaðurinn Sidney Powell vitnaði til vitnisburðar „leynilegs vitnis“ þegar hún fór þess á leit við Hæstarétt Bandaríkjanna að snúa við ósigri Donalds Trump í forsetakosningunum vestanhafs. Vitnið leynilega er sagt vera fyrrverandi verktaki hjá leyniþjónustunni sem búi yfir upplýsingum um erlent samsæri um að grafa undan lýðræði. Nú hefur aftur á móti komið í ljós að ónefnda vitnið reyndist vera hlaðvarpsstjórnandi og stuðningsmaður Trump sem áður hefur komist í kast við lögin fyrir að villa á sér heimildir. Erlent 25.12.2020 16:30
Fá raunveruleg tilvik kosningasvindls hafa fundist Þrátt fyrir umfangsmikla leit Donalds Trump, fráfarandi forseta Bandaríkjanna, og bandamanna hans að kosningasvindli í lykilríkjum í Bandaríkjunum, og ásakanir um að slíkt svindl hafi kostað Trump sigur í forsetakosningunum í byrjun nóvember, hafa tiltölulega fá og umfangslítil tilvik fundist. Örfá hafa leitt til ákæra. Erlent 23.12.2020 16:04
Trump sagður reiður út í allt og alla Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er sagður hafa umkringt sig sínum ötulustu stuðningsmönnum og veitast að öllum öðrum. Hann gangi hart fram gegn öllum þeim sem vilji ekki samþykkja samsæriskenningar Trump-liða um forsetakosningarnar í síðasta mánuði. Erlent 22.12.2020 14:30
Sagðir vilja nota ásakanir um svindl til að draga úr kjörsókn Repúblikanar í ríkjum Bandaríkjanna sem hafa reynst mikilvæg í kosningum eru sagðir vilja gera fólki erfiðara að kjósa. Til þess vilja þeir nota ásakanir Donalds Trump, fráfarandi forseta Bandaríkjanna, og bandamanna hans um að umfangsmikið samsæri og kosningasvindl hafi kostað hann sigur í forsetakosningum síðasta mánaðar. Erlent 21.12.2020 16:01
Framboð Trumps reynir að fá úrslitunum snúið hjá Hæstarétti Fulltrúar á vegum Donalds Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseta, hafa lagt beiðni fyrir Hæstarétt Bandaríkjanna til þess að reyna að fá úrslitum forsetakosninganna í nóvember snúið. Erlent 20.12.2020 23:00
McConnell játar ósigur og óskar Biden til hamingju Möguleikar Donald Trump Bandaríkjaforseta á því að halda Hvíta húsinu þrátt fyrir öruggan sigur Joe Biden í forsetakosningunum eru nú litlir sem engir, eftir að Mitch McConnell, forseti öldungadeildar þingsins, gekkst við tapinu í gær. Erlent 16.12.2020 07:36
Fjárframlög vegna aukakosninga enda í sjóðum Trumps Háttsettir Repúblikanar eru reiðir vegna fjáröflunar Donalds Trump, fráfarandi forseta, í tengslum við aukakosningarnar í Georgíu í næsta mánuði. Trump hefur verið duglegur við að senda stuðningsmönnum sínum skilaboð um að fjárveitinga sé þörf, svo Repúblikanaflokkurinn geti tryggt sér þau tvö öldungadeildarsæti sem kjósa á um í Georgíu. Erlent 15.12.2020 21:01
Ávarp Biden: Svo öfgafull afstaða að annað eins hefur ekki sést Tilraunir manna til að fá niðurstöðum forsetakosninganna í Bandaríkjunum snúið endurspegluðu svo öfgafulla afstöðu að annað eins hefur ekki sést. Þetta sagði Joe Biden í gær eftir að kjörmenn höfðu formlega útnefnt hann sigurvegara kosninganna. Erlent 15.12.2020 10:41
Pútín óskar Biden loks til hamingju með sigurinn Vladimír Pútín Rússlandsforseti hefur nú óskað Joe Biden til hamingju með sigurinn í bandarísku forsetakosningunum sem fram fóru í byrjun nóvember. Erlent 15.12.2020 07:47
Biden dásamaði lýðræðið og gagnrýndi Trump Joe Biden verðandi forseti Bandaríkjanna steig enn eitt skrefið í átt að Hvíta húsinu í gærkvöldi þegar kjörmennirnir svokölluðu greiddu formlega atkvæði sín. Erlent 15.12.2020 07:28
Dómsmálaráðherrann hættir skömmu fyrir embættistöku Bidens Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, tilkynnti nú í kvöld að William Barr, dómsmálaráðherra, væri að hætta í starfi sínu. Í tísti segir Trump að Barr vilji hætta, einungis fimm vikum áður en starfstímabil hans rennur út, til að verja hátíðunum með fjölskyldu sinni. Erlent 14.12.2020 23:14
Kjörmenn í barátturíkjum greiða Biden atkvæði sín Kjörmenn í þeim sex ríkjum Bandaríkjanna sem Donald Trump, forseti, hefur reynt að snúa við niðurstöðum kosninganna í síðasta mánuði hafa veitt Joe Biden atkvæði þeirra. Þar með er í raun búið að tryggja sigur Bidens í kosningunum. Erlent 14.12.2020 21:00
Biden gagnrýnd í Wall Street Journal fyrir að kalla sig Dr. Skoðanagrein í Wall Street Journal, þar sem höfundur kallaði Jill Biden „kiddo“ og hvatti hana til að hætta að tala um sjálfa sig sem doktor, það er að nota titilinn Dr. fyrir framan nafnið sitt, hefur vakið hörð viðbrögð. Erlent 13.12.2020 20:46
Óeirðir og ofbeldi eftir mótmælagöngu Trump-stuðningsmanna Óeirðir brutust út í Washington DC í gærkvöldi eftir mótmæli íhaldsmanna í borginni vegna sigurs Joe Biden í forsetakosningunum í nóvember. 23 voru handteknir og fjórir fluttir á sjúkrahús með stungusár. Erlent 13.12.2020 10:52
Hæstiréttur féllst ekki á að ógilda úrslitin Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur vísað frá kröfu Texas-ríkis um ógildingu úrslita í fjórum ríkjum Bandaríkjanna í forsetakosningunum sem fram fóru í nóvember. Taldi rétturinn að ríkið hefði ekki sýnt fram á lögvarða hagsmuni af úrlausn málsins. Erlent 12.12.2020 09:11
Trump brýtur aldargamla hefð og fyrirskipar fimm aftökur Nú þegar styttist í að Donald Trump forseti Bandaríkjanna yfirgefi Hvíta húsið hefur stjórn hans fyrirskipað aftökur á fimm mönnum sem á að taka af lífi áður en Joe Biden tekur við stjórnartaumunum þann 20. janúar á næsta ári. Erlent 10.12.2020 07:13
Skattamál Hunters Biden til rannsóknar Saksóknari í Delaware fer nú fyrir rannsókn á skattamálum Hunters Biden, sonar Joe Biden verðandi Bandaríkjaforseta. Sjálfur segist Hunter Biden líta rannsóknina „mjög alvarlegum“ augum en kveðst fullviss um að „hlutlaus úttekt“ muni leiða í ljós að hann hafi staðið skil á sköttum og gjöldum „samkvæmt lögum og með viðeigandi hætti,“ að því er fram kemur í frétt BBC nú í kvöld. Erlent 9.12.2020 21:46
Þingmenn sjá ekki hag í því að standa upp í hárinu á Trump Leiðtogar Repúblikanaflokksins ætla sér ekki að viðurkenna sigur Joe Bidens í forsetakosningunum fyrr en í næsta mánuði og jafnvel ekki fyrr en eftir að hann tekur embætti. Erlent 9.12.2020 10:52
Trump-liðar reyna að troða sem flestum málum í gegn fyrir embættistöku Bidens Ráðgjafar Donald Trumps, forseta, og starfsmenn Hvíta hússins segja hann virðast þungan á brún og að hann hafi engan áhuga á vinnunni. Það er þrátt fyrir að faraldur nýju kórónuveirunnar hafi náð nýjum hæðum í Bandaríkjunum. Erlent 7.12.2020 12:56
Barr ekki lengur í náðinni og sagður íhuga að hætta William Barr, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, íhugar að hætta sem ráðherra, áður en kjörtímabild Donald Trumps, forseta, rennur út í næsta mánuði. Trump brást mjög reiður við þegar Barr sagði nýverið í viðtali að starfsmenn ráðuneytisins hefðu ekki fundið neinar sannanir fyrir þeim umfangsmiklu kosningasvikum sem forsetinn segir að hafa kostað sig sigur í kosningunum í síðasta mánuði. Erlent 7.12.2020 09:00
Trump segir Rudy Giuliani kominn með Covid-19 Rudy Giuliani, persónulegur lögmaður Donalds Trump Bandaríkjaforseta og fyrrverandi borgarstjóri New York, hefur greinst með Covid-19. Frá þessu greinir Trump á Twitter. Erlent 6.12.2020 20:48
Sagður hafa beðið ríkisstjóra Georgíu um aðstoð við að snúa úrslitunum sér í vil Bandarískir fjölmiðlar greina frá því að Donald Trump, fráfarandi forseti Bandaríkjanna, hafi hringt í ríkisstjóra Georgíu-ríkis, og þrýst á hann um að gera það sem hann gæti til þess að snúa niðurstöðum forsetakosningannna í ríkinu Trump í vil. Erlent 6.12.2020 08:15
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu:„Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent