
Innlent

Tveir gígar enn virkir
Tveir gígar eru enn virkir í eldgosinu á Reykjanesskaga og er sá nyrðri stærri. Áfram mælast gildi brennisteinsdíoxíðs í kringum eldgosið og í byggð á Reykjanesskaga há.

Hera Björk segir að sér hafi verið gerðar upp skoðanir
Hera Björk Þórhallsdóttir Eurovisionfari segir að sér hafi verið gerðar upp skoðanir í tengslum við viðtali sem hún átti við ísraelska Eurovision-miðilinn Euromix.

Funda um opnun Bláa lónsins í fyrramálið
Úlfar Lúðvíksson lögreglustjóri á Suðurnesjum fundaði með forsvarsmönnum Bláa lónsins í dag og mun gera það aftur í fyrramálið til að taka ákvörðun um starfsemi lónsins. Hættuleg gasmengun hefur komið í veg fyrir opnun lónsins frá því að eldgos hófst á Reykjanesskaga í síðasta mánuði.

„Þessi stjórn er ekki að fara að springa í dag“
Prófessor í stjórnmálafræði segir líkurnar á því að Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra bjóði sig ekki fram til forseta hverfandi. Eina sem gæti komið í veg fyrir það er ef ósætti er meðal ríkisstjórnarflokkanna um framboðið og möguleiki á að ríkisstjórnin springi.

Steinunn Ólína stígur fram með formlegum hætti
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona hefur nú stigið fram með formlegum hætti sem forsetaframbjóðandi. Hún segir mikið í húfi, það skipti máli hver gegnir embætti forseta landsins.

Enn bólar ekkert á þjófunum og rannsókn í fullum gangi
Heimir Ríkharðsson, lögreglufulltrúi sem fer fyrir rannsókn á stórtækum þjófnaði í Hamraborg, segir þjófana enn ófundna og að rannsókn málsins sé í fullum gangi.

Andlát barnsins á Nýbýlavegi komið á borð ákærusviðs
Andlát sex ára gamals drengs á Nýbýlavegi í Kópavogi í lok janúarmánaðar er komið á borð ákærusviðs lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Gæsluvarðhald yfir móður drengsins, sem er grunuð um að hafa ráðið honum bana, var framlengt í gær.

Segir mögulegt framboð Katrínar jafngilda vantraustsyfirlýsingu á ríkisstjórn
Þingmaður Pírata segir það jafngilda vantraustsyfirlýsingu á ríkisstjórnina ef forsætisráðherra ákveður að fara í forsetaframboð. Hún segir það sýna mikið dómgreindarleysi að íhuga framboð sem forsætisráðherra og að ríkisstjórnin sé búin að gera skrípaleik úr því að stjórna landinu.

Segir enga stjórnarkreppu í spilunum vegna framboðs Katrínar
Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur gefur lítið fyrir orð Baldurs Þórhallssonar forsetaframbjóðanda með að framboð Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra muni leiða til stjórnarkreppu eða vanhæfis.

Lögmaður Maríu Lilju segir engan fót fyrir ásökunum „lögmanns úti í bæ“
Lögmaður Maríu Lilju Þrastardóttur, annarrar forystukonu söfnunar fyrir brottflutning Palestínumanna af Gasa, segir ekkert til í þeim ásökunum sem bornar eru á hendur henni í kæru vegna söfnunarinnar. Kærandi er hæstaréttarlögmaður og faðir þingkonu Sjálfstæðisflokksins.

Seðlabankinn dregur úr útlánagetu bankanna
Ákvörðun Seðlabankans um að auka bindiskyldu bankanna dregur úr peningamagni í umferð og getu bankanna til útlána. Seðlabankinn setur aukna bindiskyldu í beint samhengi við kostnaðinn við að eiga mikinn gjaldeyrisforða.

Bindiskylda, Solaris og mögulegt framboð forsætisráðherra
Í hádegisfréttum fjöllum við um ákvörðun Seðlabankans um að auka við bindiskyldu bankanna.

Segir Samfylkinguna tilbúna í kosningar
Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar segir flokkinn tilbúinn í kosningar. Flokkurinn hafi unnið vel síðustu ár að langtímahugmyndum fyrir næstu ríkisstjórn.

Blaðamenn fá sama aðgengi og aðrir viðbragðsaðilar í hættuástandi
Blaðamannafélag Íslands og ríkið hafa komist að samkomulagi að aðgengi blaðamanna að vettvangi þegar hættuástand kemur upp. Með samkomulaginu er blaðamönnum tryggt jafn mikið aðgengi og öðrum viðbragðaðilum á vettvangi.

Arnar, Ástþór, Baldur, Halla og Jón komin með 1.500 meðmælendur
Arnar Þór Jónsson, Ástþór Magnússon, Baldur Þórhallsson, Halla Tómasdóttir og Jón Gnarr eru einu forsetaframbjóðendurnir sem komnir eru með tilskilinn fjölda meðmælenda, eftir því sem næst verður komist.

Samfylkingin ekki haft meira fylgi í fimmtán ár
Samfylkingin hefur ekki mælst með meira fylgi í fimmtán ár og fengi, ef gengið yrði til kosninga nú, fleiri þingmenn en ríkisstjórnarflokkarnir.

Pallborðið: Forsetakapallinn og ríkisstjórn án Katrínar
Talið er næsta víst að Katrín Jakobsdóttir muni áður en vikan er úti gefa kost á sér til embætti forseta Íslands og um leið biðjast lausnar sem forsætisráðherra landsins.

Ný áfengis- og vímuvarnarstefna verði samvinnuverkefni allra þingflokka
Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, hefur kallað eftir samvinnu allra þingflokka við nýja stefnu í áfengis- og vímuvörnum. Starfshópur sem hann skipaði fyrir um ári síðan um nýja stefnu í skaðaminnkun á að skila til að hans tillögum á næstu vikum. Willum Þór segir ópíóíða þurfa miklu meiri athygli.

Ekki ljóst hvor hinna drukknu ók bílnum
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu hefur handtekið tvo eftir umferðarslys sem varð í umdæminu. Báðir reyndust þeir drukknir og var ekki hægt að staðfesta hvor þeirra hafi ekið bílnum þegar slysið varð.

Aukinnar umræðu þörf áður en dánaraðstoð verður að lögum
„Þetta er sá verknaður að hjálpa einstakling að binda enda á líf sitt á grundvelli upplýsts samþykkis; af ásetningi og að beiðni sjúklingsins, eða einstaklingsins.“

Sema og María Lilja kærðar vegna fjársöfnunar fyrir Palestínumenn
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur framsent kæru til héraðssaksóknara gegn Semu Erlu Serdaroglu og Maríu Lilju Ingveldardóttur-Þrastardóttur Kemp, vegna söfnunar Solaris til styrktar brottflutningi Palestínumanna af Gasa.

Af neyðarstigi á hættustig vegna eldgossins
Ríkislögreglustjóri, í samráði við Lögreglustjórann á Suðurnesjum, hefur ákveðið að fara af neyðarstigi niður á hættustig Almannavarna vegna eldgossins á Reykjanesskaga.

Ekkert ferðamannagos
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir að ferðamönnum verði ekki hleypt að gosstöðvunum við Sundhnúk á næstunni. Nokkur áhugi er meðal ferðamanna að komast að gosinu. Þeir hafa bókað til þess þyrluferðir og verið snúið við þegar þeir hafa reynt að komast inn á lokað svæði.

Bíður enn svara frá Bankasýslunni og áformar að leggja hana niður
Fjármála-og efnahagsráðherra segir kaup Landsbankans á TM tryggingafélagi í höndum Bankasýslu ríkisins, aðspurð hvort hún ætli að reyna að koma í veg fyrir kaupin. Hún væntir skýringa frá Bankasýslunni á aðkomu stofnunarinnar að kaupunum í næstu viku. Þá standi enn til að leggja Bankasýsluna niður.

Segir „leik“ Katrínar stærsta aprílgabb sem til er
Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata fer hörðum orðum um vinnubrögð Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra vegna mögulegs forsetaframboðs í Facebook færslu í dag.

Undarleg sviðsmynd hlyti Katrín ekki brautargengi og sneri aftur sem forsætisráðherra
Eva Heiða Önnudóttir stjórnmálafræðingur segir að það yrði allt óvanalegt við það ef Katrín Jakobsdóttir færi í framboð til embættis forseta Íslands. Þá gæti myndast snúin staða ef Katrín næði ekki kjörin og myndi ákveða að snúa aftur í forsætisráðuneytið undir forseta sem hún hafi verið í baráttu við um embættið.

Ekki gefið hvernig spilast úr stöðunni fari Katrín fram
Allar líkur eru á að Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna tilkynni fyrir helgi hvort hún bjóði sig fram til embættis forseta Íslands. Geri hún það mun hún samstundis segja af sér embætti forsætisráðherra. Formenn hinna stjórnarflokkanna segja ekki gefið hvernig spilaðist úr þeirri stöðu þótt grundvöllur væri fyrir áframhaldandi samstarfi flokkanna.

„Fréttir eru ekki ókeypis“
Formaður Blaðamannafélags Íslands segir minnst tíu milljarða króna fari út úr íslenskum fjölmiðlamarkaði árlega í formi auglýsinga til Google og Meta. Hún viðrar hugmyndina um að almenningur borgi áskrift fyrir fréttir til þess að blaðamennskunni verði haldið á floti en starfsgreinin hefur samkvæmt nýrri vitundarherferð félagsins aldrei verið mikilvægari.

Kvöldfréttir Stöðvar 2
Ákveði Katrín Jakobsdóttir að bjóða sig fram til embættis forseta Íslands er líklegt að hún tilkynni það fyrir helgi og segi um leið af sér embætti forsætisráðherra. Formenn hinna stjórnarflokkanna telja stjórnarsamstarfið geta haldið áfram en ekki yrði öruggt hvernig spilaðist úr stöðunni.

Baldur með nokkurt forskot á Jón og Katrínu
Baldur Þórhallsson stjórnmálafræðingur hefur nokkuð forskot á keppinauta sína í baráttunni um að verða arftaki Guðni Th. Jóhannessonar sem forseti Íslands. Þetta sýnir ný könnun sem Prósent vann fyrir stuðningsfólk Baldurs og Vísir hefur undir höndum.