Menning

Nóbelsverðlaunahafinn Alice Munro er látin
Kanadíski smásagnahöfundurinn og Nóbelsverðlaunahafinn Alice Munro er látin 92 ára að aldri. Rithöfundaferill hennar spannaði meira en sextíu ár.

Fjögurra ára rússíbanareið að baki
Ævintýri vinsælasta söngleiks sem settur hefur verið upp á Íslandi, Níu líf, sem byggir á ævi tónlistarmannsins Bubba Morthens, lýkur í júní þegar 250. sýningin og sú síðasta fer fram í Borgarleikhúsinu. Leikarahjónin Ólafur Egill Egilsson og Esther Talía Casey eru reiðubúin að kveðja Bubba þó því fylgi tilfinningaríkur rússíbani.

Vilja vekja áhuga ungu kynslóðarinnar á töfrum klassískrar tónlistar
Þrjár táningsstúlkur, sem hófu tónlistarnám á leikskólaaldri, hafa stofnað kammersveit og stefna hátt. Þær vilja höfða til ungu kynslóðarinnar og vekja áhuga hennar á töfrum klassískrar tónlistar.

Hildur, Rán og Ásta fá Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar
Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar 2024 voru veitt við hátíðlega athöfn í Höfða í morgun. Einar Þorsteinsson borgarstjóri Reykjavíkurborgar afhenti verðlaun í þremur flokkum, að því er fram kemur í tilkynningu.

Bein útsending: Setning Barnamenningarhátíðar
Barnamenningarhátíð hefst í dag, 23. apríl, og stendur yfir til 28. apríl. Hátíðin verður sett klukkan 9:45 í Hörpu í dag.

Besti vinur úlfanna hlakkar til að tengjast áhorfendum í Hörpu
Margverðlaunaður franskur píanóleikari kemur fram með einni fremstu sinfóníuhljómsveit Þýskalands, Bamberg, í Hörpu annað kvöld.

Nýr safnstjóri Listasafnsins á Akureyri
Sigríður Örvarsdóttir hefur verið ráðin safnstjóri Listasafnins á Akureyri. Fjórtán sóttu um starfið en Sigríður tekur við af Hlyni Hallssyni.

Þau eru tilnefnd til Maístjörnunnar
Tilnefningar til ljóðabókaverðlaunanna Maístjörnunnar, vegna ljóðabóka útgefinna árið, 2023 voru kynntar við athöfn í Gunnarshúsi í dag. Sex bækur eru tilnefndar að þessu sinni.

Eigandinn heltekinn af skrímslaverkunum hans Sindra
Árni Már Þ. Viðarsson, eigandi Gallery Ports segist heltekinn af verkum unga listamannsins Sindra Ploder en hann hefur slegið í gegn með skrímslaverkum sínum sem nú prýða veggi sýningarrýmisins.

Kveður Tjarnarbíó: „Of lítið og of seint“
Sara Martí Guðmundsdóttir hefur ákveðið að láta af störfum sem leikhússtýra Tjarnarbíós. Hún kveðst hafa reynt allt til að láta rekstur leikhússins ganga upp, en meira þurfi til frá ríki og borg.

Þessi voru tilnefnd til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs
Fjórtán norrænar myndabækur, barnabækur og unglingabækur eru tilnefndar til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2024. Þær íslensku bækur sem fengu tilnefningu voru Hrím eftir Hildi Knútsdóttur og Skrímslavinafélagið eftir Tómas Zoëga og Sólrúnu Ylfu Ingimarsdóttur myndhöfund.

Vatnið alltaf heillað þrátt fyrir mikla hræðslu
„Vatnið hefur alltaf heillað mig og jafnframt valdið mér ótta. Þótt það hljómi kannski ótrúlega þá hef ég ætíð verið vatnshrædd og er nánast ósynd,“ segir myndlistarkonan Guðbjörg Lind. Hún opnaði nýverið sýninguna Uppáhelling fyrir sæfarendur í Grafíksalnum, Hafnarhúsinu við Tryggvagötu 17, hafnarmegin.

Stórglæsilegar stjörnur á Eddunni
Íslensku kvikmyndaverðlaun Eddunnar voru haldin með pomp og prakt í Gufunesi á laugardagskvöld. Kvikmynda-og leiklistabransinn skein sitt skærasta á rauða dreglinum.

Á ferð með mömmu hlaut níu Eddur
Kvikmyndin Á ferð með mömmu hlaut alls níu Eddur þegar á verðlaunafhending á vegum Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademían fór fram við hátíðlega athöfn í gærkvöldi. Myndin hlaut meðal annars verðlaun fyrir leikstjórn, handrit, leikara og leikkonu í aðalhlutverki, auk þess að hreppa eftirsótta titilinn kvikmynd ársins.

Ætlar aldrei að setjast í helgan stein
Haukur Halldórsson er 87 ára gamall og nú hefur Street Art Norge ákveðið að halda sérstaka sýningu honum til heiðurs. Á sýningunni getur að líta verk sem Haukur hefur unnið víðs vegar um heiminn í sex áratugi.

„Kannski var ég ekki að pæla í algebru því mamma mín var að deyja“
„Ég bý við það óöryggi að ég held að enginn skilji mig,“ segir leikarinn Gunnar Smári Jóhannsson. Gunnar Smári er 31 árs gamall og hefur upplifað meira en flestir jafnaldrar hans. Sem barn missti hann báða foreldra sína sem og ömmu sína og afa og hefur hann tamið sér að ræða opinskátt um sorgina.

Listamaðurinn á bak við Áfanga í Viðey látinn
Bandaríski listamaðurinn Richard Serra er látinn 85 ára gamall. Hann var þekktastur fyrir listaverk sín úr stáli sem finna má um heima allan meðal annars í Viðey.

Eliza hlaut heiðursverðlaun
Íslensku hljóðbókaverðlaunin, Storytel Awards, voru veitt við hátíðlega athöfn í gær. Um er að ræða árlegan viðburð þar sem hljóðbókaunnendur; útgefendur, höfundar, lesara og þýðendur fagna saman útgáfu vönduðustu hljóðbóka síðasta árs.

Fyrsta alþjóðlega barokkhátíðin í Reykjavík
Reykjavík Early Music Festival er nafnið á nýrri tónlistarhátíð sem haldin verður í Hörpu í næstu viku dagana 26.-28. mars. Fram munu koma íslenskir og erlendir flytjendur sem sérhæfa sig í upprunaflutningi barokktónlistar. Meðal þeirra sem koma fram er fiðlustjarnan Rachel Podger, sem heldur einnig meistaranámskeið fyrir tónlistarnemendur.

Gerður Kristný hlýtur virt norsk bókmenntaverðlaun
Norska sendiráðið afhenti í dag Gerði Kristnýju virt bókmenntaverðlaun sem kennd eru við Alfred Anderson-Ryssts. Gerður hlýtur verðlaunin fyrir þær margvíslegu og stundum óvæntu tengingar á milli Íslendinga og Norðmanna sem hún hefur búið til með skrifum sínum.

Hættir sem leikhússtjóri og hefur störf í ráðuneytinu
Marta Nordal hefur ákveðið að hætta sem leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar. Hún hefur gegnt stöðunni frá árinu 2018.

Myndaveisla: Sex listrænum áratugum fagnað með glæsilegri sýningu
Listunnendur sameinuðust á Kjarvalsstöðum á laugardaginn við opnun á sýningunni Borghildur Óskarsdóttir: Aðgát. Þar eru til sýnis verk eftir listakonuna Borghildi Óskarsdóttur sem er fædd árið 1942.

Amanda og Brák meðal handhafa Íslensku myndlistarverðlaunanna
Amanda Riffo og Brák Jónsdóttir eru meðal þeirra myndlistarmanna sem hlutu Íslensku myndlistarverðlaunin. Þá fékk Hreinn Friðfinnsson Verðlaunaafhending fór fram í Iðnó í kvöld þar sem var margt um manninn.

Kaflaskil í íslenskri menningarsögu
Fjöldinn allur af ritfæru fólki minnist nú Matthíasar Johannessen sem andaðist á líknardeild Landsspítalans í vikunni, 94 ára að aldri.

Hjartnæm stund Guðna með Herði og Kára
Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands, þótti vænt um að Hörður Áskelsson skyldi hljóta heiðursverðlaun á uppskeruhátíð íslensks tónlistarfólks í Hörpu í gærkvöldi. Þá fannst honum gaman að fá að afhenda Kára Egilssyni viðurkenningu sem bjartasta vonin.

Grindavíkurbær heiðursgestur Menningarnætur 2024
Grindavíkurbær verður heiðursgestur Menningarnætur Reykjavíkurborgar þann 24. ágúst 2024. Tilefnið er vinatengsl bæjarfélaganna og fimmtíu ára kaupstaðarafmæli Grindavíkurbæjar í ár.

Kristín Ómarsdóttir meðal þeirra sem hlaut Fjöruverðlaunin
Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna, voru afhent við hátíðlega athöfn í Höfða í dag í átjánda sinn. Verðlaunin voru afhent í þremur flokkum.

Síðasta verk Nóbelsverðlaunahafans gefið út gegn hans eigin óskum
Síðasta skáldsaga kolumbíska Nóbelsverðlaunahafans, Gabriel García Márquez, Until August, sem mætti útleggja sem Þangað til í ágúst, verður gefin út að honum látnum og gegn óskum hans.

Listræn og lífleg starfsemi í gömlu Áburðarverksmiðjunni
Í Gufunesi, þar sem Áburðarverksmiðja ríkisins var áður, má nú finna fjölbreytta starfsemi. Í einni byggingunni hafa listamenn tekið sér bólfestu. Listamaðurinn Narfi Þorsteinsson og kvikmyndagerðamaðurinn Sindri Steinarsson gerðu myndband um starfsemina sem má sjá hér í pistlinum.

Myndaveisla: Yfir þúsund manns í listrænu fjöri í Hveragerði
Menningarlífið iðaði í Hveragerði síðastliðinn laugardag þar sem yfir þúsund manns lögðu leið sína á sýningaropnun Listasafns Árnesinga. Var um að ræða sýningu fimm listamanna sem öll hafa verið áberandi í sýningarhaldi undanfarin ár, bæði erlendis og hérlendis.