Leikjavísir

Indiana Jones kýlir aftur nasista í nýjum leik
Forsvarsmenn Microsoft og leikjafyrirtækja félagsins kynntu í gær þá leiki sem væntanlegir eru á árinu. Meðal annars var sýnd stikla úr nýjum leik um fornleifafræðinginn Indiana Jones og kafað var dýpra í aðra væntanlega leiki.

Kryddpylsa GameTíví 2023
Strákarnir í GameTíví ætla að halda sína árlegu Kryddpylsu í kvöld. Þá verður farið yfir allt það helsta sem gerðist í heimi tölvuleikjanna á síðasta ári og það sem gerðist í GameTíví.

Föruneytið snýr aftur til Sverðsstrandarinnar
Föruneyti Pingsins heldur ferð sinni um Sverðsströndina áfram í kvöld. Um er að ræða nýjan þátt hjá GameTíví þar sem þau Marín, Aðalsteinn, Arnar og Melína spila sig í gegnum Baldur's Gate 3.

Leikirnir sem beðið er eftir
Auk dauðans er tíminn eini fasti tilverunnar. Tíminn flæðir áfram eins og stórfljót og öll sitjum við föst í þungum straumum hans, þar til við sökkvum, eitt af öðru, og hverfum af þessu sviði sem alheimurinn er. Áður en maður veit af hafa árin svifið hjá og skilið lítið sem ekkert eftir sig, jú, nema tölvuleiki.

GameTíví: Uppvakningar og Warzone
Strákarnir í GameTíví ætla að láta til sín kveða í Call of Duty í kvöld. Þá ætla þeir að skjóta uppvakninga og svo aðra spilara í Warzone.

Talinn vera sá fyrsti til þess að „vinna“ Tetris
Þrettán ára Bandaríkjamaðurinn Willis Gibson er sagður vera fyrsta manneskjan í heiminum til að sigra einn klassískasta tölvuleik sögunnar, Tetris. Leikurinn hrundi þegar Gibson var kominn í 157. borð leiksins.

Snjallsímaleikur Kim Kardashian lagður niður
Snjallsímaleikur raunveruleikaþáttastjörnunnar Kim Kardashian hefur verið fjarlægður úr smáforritaverslunum helstu snjallsíma. Tíu ár eru síðan leikurinn var gefinn út en Kardashian kveðst ætla að snúa sér að öðrum verkefnum í staðinn.

Galopið fyrir aðra spilara í áramótaþætti BabePatrol
Stelpurnar í BabePatrol ætla að vera með galopið hjá sér í kvöld og leyfa áhorfendum að spila með sér.

Sýndi í „slow-mo“ hvernig Nintendo-byssan virkar
Gavinn Free, frá YouTube-rásinni Slow Mo Guys, tók sig til á dögunum og varpaði loks ljósi á það hvernig Nintendo Zapper, rauða byssan sem margir ættu að kannast við úr æsku, og Duck Hunt leikurinn virkar.

Bestu leikir ársins: Ævintýraleikir fyrirferðarmiklir á góðu ári
Árið 2023 var nokkuð gott þegar kemur að tölvuleikjum. Ansi margir góðir leikir litu dagsins ljós og nokkrir leikir sem fengu áður misjafnar móttökur bættu stöðu sína töluvert.

Avatar: Frontiers of Pandora - Einstaklega fallegur leikur en á köflum of einsleitur
Avatar: Frontiers of Pandora er mögulega fallegasti leikur sem ég hef spilað. Grafíkin og hljóðið er framúrskarandi en því miður má ekki segja það sama um söguna og þar að auki getur leikurinn verið frekar einsleitur.

Föruneyti Pingsins: Barist í Baldur's Gate
Föruneyti Pingsins heldur ferð sinni um Sverðsströndina áfram í kvöld. Um er að ræða nýjan þátt hjá GameTíví þar sem þau Marín, Aðalsteinn, Arnar og Melína spila sig í gegnum Baldur's Gate 3.

Hætta rekstri nokkrum dögum eftir útgáfu umdeilds leiks
Framleiðendur hins umdeilda leiks, The Day Before, hafa hætt rekstri innan við viku eftir að leikurinn var gefinn út. Fyrirtækið var í kjölfar útgáfunnar sakað um að svindla á fólki og segja ósatt um leikinn í gegnum árin.

Heita þremur sigrum í Warzone
Strákarnir í GameTíví stefna á þrjá sigra í Warzone í kvöld. Leikurinn hefur tekið nokkrum breytingum og er til að mynda barist á nýju korti.

Dælan í fullum gangi
Strákarnir í Dælunni ætla að skoða hinn nýja Lego Fortnite í streymi kvöldsins.

Skoða glænýjan Warzone
Stelpurnar í Babe Patrol ætla að kíkja á nýja Warzone í sérstökum jólaþætti í kvöld. Warzone var uppfærður í dag og fá spilarar nú að skjóta hvorn annan í nýju borði.

Fyrsta stikla GTA 6 lítur loks dagsins ljós
Starfsmenn Rockstar Games hafa loks birt fyrstu stiklu næsta leiks í Grand Theft Auto seríunni vinsælu. Til stóð að birta hann á morgun en honum var lekið á netið svo starfsmenn fyrirtækisins birtu hann í kvöld.

GameTíví: Barist um brotajárnið í Lethal Company
Strákarnir í GameTíví þurfa að taka á því til að ná kvótanum í Lethal Company í kvöld. Sá leikur hefur notið mikilli vinsælda að undanförnu en hann gengur út á að fjórir spilarar þurfa að safna brotajárni og öðru á mjög svo hættulegum plánetum.

Dælan í fullum gangi
Strákarnir í Dælunni ætla að verja kvöldinu í Fortnite, þar sem þeir munu skjóta mann og annan og berjast fyrir sigri.

Föruneyti Pingsins: Barist í Baldur's Gate
Föruneyti Pingsins heldur ferð sinni um Sverðsströndina áfram í kvöld. Um er að ræða nýjan þátt hjá GameTíví þar sem þau Marín, Aðalsteinn, Arnar og Melína spila sig í gegnum Baldur's Gate 3.

GameTíví: Strákarnir kveðja Warzone
Strákarnir í GameTíví ætla að kveðja Warzone í kvöld. Markmið þeirra er að ná heilum fimm sigrum í kvöld.

GTA-leikari „svattaður“ í beinni
Lögreglunni var sigað að heimili leikarans Ned Luke, sem lék glæpamanninn Michael De Santa í Grand Theft Auto 5, einum vinsælasta tölvuleik sögunnar, í gærkvöldi. Það var gert þegar hann var að streyma sig spila GTA 5.

Föruneyti Pingsins: Barist í Baldur's Gate
Föruneyti Pingsins heldur ferð sinni um Sverðsströndina áfram í kvöld. Um er að ræða nýjan þátt hjá GameTíví þar sem þau Marín, Aðalsteinn, Arnar og Melína spila sig í gegnum Baldur's Gate 3.

Föruneyti Pingsins: Heimurinn bjargar sér ekki sjálfur
Föruneyti Pingsins heldur ferð sinni um Sverðsströndina áfram í kvöld. Um er að ræða nýjan þátt hjá GameTíví þar sem þau Marín, Aðalsteinn, Arnar og Melína spila sig í gegnum Baldur's Gate 3.

GameTíví: Gunni og Steindi spila MW3
Strákarnir í GameTíví fá til sín góða gesti í kvöld. Það eru þeir Gunnar Nelson og Steindi, eða Steinþór Hróar Steinþórsson, sem munu spila nýjasta Call of Duty leikinn.

Sunnudagsmessa hjá Babe Patrol
Stelpurnar í Babe Patrol ætla að halda sunnudagsmessu í kvöld. Íslenskum Warzone-spilurum er boðið að mæta einnig í messuna og spila við stelpurnar.

Fortnite-dælan gangsett
Strákarnir í Dælunni ætla að verja kvöldinu í Fortnite og skoða nýja/gamla kortið. Þeir munu einnig væntanlega skjóta fullt af fólki.

Fyrsta stikla GTA 6 væntanleg í desember
Forsvarsmenn fyrirtækisins Rockstar Games tilkynntu í dag að fyrsta stikla Grand Theft Auto 6 yrði sýnd í næsta mánuði. Tíu ár eru síðan GTA 5, einn vinsælasti leikur sögunnar og arðbærasta skemmtanaafurð heimsins, var gefinn út.

Íslendingar berjast hjá Babe Patrol
Íslendingar munu berjast. Í kvöld geta áhorfendur barist við stelpurnar í Babe Patrol og aðra í leiknum Warzone.

Aftur til fortíðar í Fortnite
Strákarnir í GameTíví ætla að kíkja aftur til fortíðar í Fortnite í kvöld. Þeir eru ekki að fara langt heldur til 2018 en tilefnið er að gamla upprunalega kort leiksins er komið aftur.