Innlent

Læknar boða miklu harðari aðgerðir
Læknar boða til vikulegra verkfalla samtímis á öllum vinnustöðvum lækna sem verkfall nær til frá 25. nóvember og fram að páskum. Aðra vikuna eru allir vinnustaðir lækna í verkfalli frá miðnætti til tólf á hádegi frá mánudegi til fimmtudags. Hina vikuna eru verkföll ýmist mánudag og miðvikudag eða þriðjudag og fimmtudag með sama fyrirkomulagi.

Sigurður Ingi þögull um búsetuúrræðin
Svandís Svavarsdóttir segir að Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins hafi ekki látið í ljósi neinar mótbárur þegar Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra talaði fyrir máli sem varðar lokuð búsetuúrræði hælisleitenda.

Formaður Kyndils lést í slysinu við Tungufljót
Karlmaðurinn sem lést við Tungufljót nærri Geysi í Haukadal í gær var á björgunarsveitaræfingu. Maðurinn hét Sigurður Kristófer McQuillan Óskarsson en hann var formaður björgunarsveitarinnar Kyndils í Mosfellsbæ. Hann var 36 ára.

Leituðu áfram undir ís vegna misræmis milli lista og leiðsögumanna
Óvissa leiðsögumanna um hversu margir lentu undir ís þegar banaslys varð í Breiðamerkurjökli í sumar varð til þess að leit var haldið áfram þrátt fyrir að enginn hefði reynst þar undir. Skráningarlisti ferðaþjónustufyrirtækisins reyndist réttur.

Yfirbuguðu konu með lítið barn og hníf í hendi
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og sérsveit ríkislögreglustjóra voru með mikinn viðbúnað í Sólheimum í Reykjavík í hádeginu eftir að tilkynning barst um konu þar í miklu ójafnvægi fyrir utan hús við götuna.

Sjálfstæðismenn vilja taka upp samræmd próf
Meðal aðgerða í menntamálum sem Sjálfstæðisflokkurinn kynnti í dag er að taka upp samræmd próf í grunnskólum á ný. Markmiðið með aðgerðunum er einfalt, að allir nemendur eigi að geta lesið og skilið texta við hæfi eftir yngsta stig grunnskólans í stað þess að stór hluti ráði ekki við það.

Sjónum beint til vinstri í kosningapallborðinu
Forystukonur hjá Vinstri grænum, Sósíalistum og Pírötum mæta í beina útsendingu í kosningapallborð fréttastofunnar klukkan 14.

Ríkið þrýsti læknum út í harðari verkfallsaðgerðir
Formaður Læknafélags Íslands segir ríkið þrýsta læknum út í harðari verkfallsaðgerðir en lagt var upp með, með því að lýsa því yfir að boðaðar aðgerðir séu ólöglegar. Stefnt er að því að hefja nýja atkvæðagreiðslu um verkföll lækna í dag, sem myndu hefjast seint í nóvember.

Aukaþingmaður leikur enn lausum hala
Prófessor í stjórnmálafræði segir hneyksli að enn einu sinni hafi Alþingi trassað að gera augljósar breytingar á kosningalögum til að tryggja að flokkar fái þingmenn í samræmi við atkvæðafjölda. Starfandi forsætisráðherra segir ekki hægt að gera þessar breytingar svo skömmu fyrir kosningar.

Baráttan í Bandaríkjunum á lokametrunum
Í hádegisfréttum okkar fjöllum við um bandarísku forsetakosningarnar sem haldnar verða á morgun.

Málið komið á „endastöð“ og rannsókn lokið
Rannsókn lögreglu á falsboði sem þeim barst í sumar, þegar tilkynnt var um að tveir ferðamenn væru fasti í helli, er nú lokið og er málið óupplýst. Lögreglan ræddi við nokkra einstaklinga í Bretlandi í tengslum við rannsókn málsins.

Bergþór hæðist að Bjarna og Sigurði Inga
Bergþór Ólason þingflokksformaður Miðflokksins hæðist að Bjarna Benediktssyni forsætisráðherra og Sigurði Inga Jóhannssyni fjármálaráðherra, formönnum Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins, í pistli í Morgunblaðinu í dag.

Enginn stjórnmálamaður á loftslagsráðstefnu
Í hátt í fimmtíu manna sendinefnd Íslands á loftslagsráðstefnu í Aserbaídsjan verður enginn kjörinn fulltrúi, hvorki ráðherra, þingmaður né sveitarstjórnarmaður. Ráðstefnunni lýkur átta dögum fyrir alþingiskosningar.

„Brottfararúrræði þurfa ekki að vera grimm eða harðneskjuleg”
Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra segir ómannúðlegt að vista hælisleitendur sem hafa fengið endanlega synjun um vernd hér á landi í fangelsi. Á þessu ári hafi 40 einstaklingar verið vistaðir í fangelsi í gæsluvarðhaldi á grundvelli útlendingalaga.

Enginn verið stuðaður með rafbyssu ennþá
Lögreglumenn hafa fimmtán sinnum dregið rafbyssur úr slíðri eða ræst þær eftir að þeir fengu þær fyrst í hendur í september. Enginn hefur enn verið skotinn með rafbyssu af lögreglumönnum. Hver rafbyssa kostar meira en milljón krónur.

Þétt skjálftavirkni í nótt en ekki nægur kraftur fyrir kvikuhlaup
Viðbragð Veðurstofunnar var virkjað í stuttan tíma í nótt vegna mögulegs kvikuhlaups. Almannavörnum var tilkynnt um málið. Um hálftíma síðar var þó komið í ljós að ekki var um kvikuhlaup að ræða. Nokkuð þétt skjálftavirkni var á milli tvö og þrjú við Stóra-Skógfell og Sýlingarfell.

Verkfallið hafi mikil áhrif á fáar fjölskyldur og lítil áhrif á samfélagið
Móðir barns á leikskólanum Drafnarsteini segir erfitt að réttlæta verkfallsaðgerðir kennara í leikskólum sem nú standa yfir. Ótímabundin verkföll eru í fjórum leikskólum. Jóhanna Dröfn Stefánsdóttir segir í aðsendri grein á Vísi að aðgerðirnar séu mismunun og að betra væri fyrir kennara að leggja niður störf á fleiri stöðum til að ná fram kröfum sínum.

Umræða á Bylgjunni ekki ígildi stjórnvaldsákvörðunar
Formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar segir fokið í flest skjól ef orð hennar um víkkun vaxtarmarka í viðtali í Bítinu teljist sem stjórnvaldsákvörðun. Beiðni um færslu vaxtarmarka á höfuðborgarsvæðinu hafi ekki komið formlega inn á borð borgarstjórnar.

Selur íbúð sem hann gerði upp og flytur í ódýrari íbúð
Nýbúi frá Moldóvu hyggst selja íbúð sem hann hefur verið að gera upp síðastliðið eitt og hálft ár eins síns liðs og flytja í minni og ódýrari íbúð hinu megin við götuna. Ástæðuna segir hann vera til að borga niður lánið sitt og verða skuldlaus.

Banaslys við Tungufljót
Banaslys varð í dag þegar karlmaður á fertugsaldri féll í Tungufljót nálægt Geysi.

Íbúum fjölgar og fjölgar í Fjallabyggð
Íbúum Fjallabyggðar fjölgar og fjölgar enda mikil uppbygging í sveitarfélaginu því víða er verið að byggja og atvinnuástand er með allra besta móti. Ef eitthvað er, þá vantar fólk í hin ýmsu störf og nóg af húsnæði er fyrir alla.

E. coli-sýking á Mánagarði: „Hræðilegt að horfa upp á barnið svona veikt“
Amma barns af leikskólanum Mánagarði segir hræðilegt að horfa upp á veikindi barnsins, sem liggur á spítala vegna E. coli-hópsýkingar á leikskólanum. Foreldrar barnsins séu hræddir og bugaðir. Barn sem smitaðist fyrir fimm árum er enn að glíma við eftirköst af E. coli-sýkingu.

„Dæmi um hvernig rafræn skilríki geta verið útilokandi“
Skrifstofustjóri Sósíalistaflokksins segir að frambjóðendurnir þrír sem fengu framboð sín á lista flokksins ógild hafi lagt sig alla fram við að skila inn staðfestingu á samþykki með lögmætum hætti. Knappur tími og tæknileg vandræði hafi valdið því að samþykki þeirra fékkst ekki staðfest.

Fara með Intuens-málið fyrir dómstóla sem gæti reynst afdrifaríkt
Sjúkratryggingar Íslands hyggjast fara með niðurstöðu nýs úrskurðar, þar sem lögð var fjörutíu milljóna sekt á stofnunina vegna ólögmætra samninga við myndgreiningarfyrirtæki, fyrir dómstóla. Forstjóri stofnunarinnar segir að málið gæti reynst afdrifaríkt. Hann hafnar ásökunum um mismunun.

Fjölskyldan hrædd og brotin vegna sýkingarinnar á Mánagarði
Amma barns af leikskólanum Mánagarði segir hræðilegt að horfa upp á veikindi barnsins, sem liggur enn á spítala vegna E.coli-hópsýkingar á leikskólanum. Foreldrar barnsins séu hræddir og bugaðir. Barn sem smitaðist fyrir fimm árum er enn að glíma við eftirköst af E.coli-sýkingu. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30 í opinni dagskrá.

Maðurinn kominn upp úr fljótinu
Maður féll út í Tungufljót í Árnessýslu skammt frá Geysi síðdegis. Lögreglan á Suðurlandi var með töluverðan viðbúnað, straumvatnsbjörgunarmenn voru sendir á vettvang og þyrla landhelgisgæslunnar var ræst út.

Segir Bjarna ekki hafa ruglast og Pawel fari sjálfur með rangt mál
Pawel Bartoszek segir Bjarna Benediktsson hafa ruglast þegar hann sagði ágreining milli Kópavogs og Reykjavíkur um vaxtamörk. Ágreiningurinn væri í raun milli Kópavogs og Garðabæjar. Hildur Björnsdóttir andmælir Pawel og segir fulltrúa meirihlutans víst hafa skotið niður áform utan vaxtarmarka.

Risa vatnsrennibraut keypt í Þorlákshöfn fyrir 150 milljónir
Ein glæsilegasta og hæsta vatnsrennibraut landsins verður í sundlauginni í Þorlákshöfn en Sveitarfélagið Ölfus hefur fjárfest í tveimur braut fyrir 150 milljónir króna, sem verða settar saman í eina. Stigahúsið upp í brautina verður tólf metra hátt.

Þrír frambjóðendur detta út
Þrír frambjóðendur Sósíalistaflokks í Suður- og Suðvesturkjördæmi voru felldir af listunum tveimur vegna ólögmætra undirskrifta á úrskurðarfundi landskjörstjórnar í dag. Hinir listarnir 59 voru samþykktir án athugasemda.

Bein útsending: Landskjörstjórn tilkynnir um gild framboð
Úrskurðarfundur landskjörstjórnar um gildi framboða í kosningunum til Alþingis fer fram í Þjóðminjasafninu í dag klukkan þrjú. Fundinum verður streymt á Vísi.