Innlent

Sex vilja stýra Jafnréttisstofu
Sex umsækjendur eru um embætti framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu sem forsætisráðherra auglýsti um miðjan júní. Umsóknarfrestur rann út 1. ágúst en stofan er staðsett á Akureyri.

Falsútköll, hvalreki og vígreift varaforsetaefni
Í hádegisfréttum verður fjallað um útkallið sem barst í fyrrakvöld þar sem fullyrt var að ferðamenn væru fastir í helli í Kerlingarfjöllum.

Steypireyður strandaði við Þorlákshöfn
Skíðishvalur strandaði við Þorlákshöfn fyrr í dag. Hún er um 12 til 13 metra löng. Málið er á borði Matvælastofnunar og mun viðbragðsteymi leggja mat á ástand dýrsins og hvort það sé í standi til þess að hægt sé að bjarga því. Talið er að um steypireyði sé að ræða.

Piltar undir sakhæfisaldri á bak við skemmdarverkin
Tveir ungir piltar reyndust á bak við umfangsmikil skemmdarverk sem unnin voru á Húnaskóla á Blönduósi í gærnótt. Vilhjálmur Stefánsson, lögreglufulltrúi á Norðurlandi vestra segir að piltarnir séu ljúfir, og þeir hafi ekki endilega ætlað sér að vinna skemmdarverk. Þeir séu mjög ungir.

Segist niðurlægður með 415 krónur í tímakaup
Sakborningur sem hlaut tíu ára fangelsisdóm í umfangsmiklu fíkniefnamáli segir að honum virðist sem það sé ætlun kerfisins að framleiða iðjuleysinga og glæpamenn. Það sé niðurlægjandi að fangar fái 415 krónur í tímakaup fyrir vinnu sína innan veggja fangelsisins. Sú upphæð dugi tæpt fyrir sígarettukaupum, hvað þá klippingu eða sálfræðitímum.

Fjögurra daga hraustur drengur hætti skyndilega að anda
Elías Andri Óskarsson, íbúi á Sauðárkróki, segir margar tilviljanir hafa orðið til þess að ekki fór verr síðastliðinn sunnudag þegar fjögurra daga gamall sonur hans hætti skyndilega að anda. Um tíma var óttast að hann væri að deyja, en sem betur fer heilsast honum vel í dag.

Enn rólegt á Reykjanesskaga þótt gosið gæti á hverri stundu
Óbreytt staða er enn á Reykjanesskaga þar sem áfram eru taldar auknar líkur á kvikuhlaupi eða eldgosi á næstu dögum. Skjálftavirkni fer áfram rólega vaxandi og mældist á sjötta tug jarðskjálfta í nótt.

Þjórfé eins og lúsmý: „Við viljum ekkert fá þetta“
Sigmundur Halldórsson, sérfræðingur hjá VR og Landssambandi verslunarmanna, segir verkalýðshreyfinguna á Íslandi vera alfarið á móti því að taka upp þjórfé.

Konur skipuleggi sig oft í marga mánuði áður en þær koma
Aukning hefur orðið í komum í Kvennaathvarfið síðustu mánuði og hafa rúmlega þrjátíu konur verið þar yfir sumartímann. Framkvæmdastýran telur aukningu í heimilisofbeldi ekki endilega skýringuna.

„Eðlilegt að blaðamenn og fjölmiðlar verðleggi vinnu sína“
Skessuhorn ákvað að taka áskorun Facebook og selja áskriftir á fréttavef sinn í fyrra. Ritstjóri héraðsfréttamiðilsins segir eðlilegt að blaðamenn og fjölmiðlar fái greitt fyrir vinnu eins og aðrir sem selji þjónustu. Lesendur hafi tekið áskriftarsölunni vel.

Sterkar vísbendingar um falsboð
Sterkar vísbendingar eru um að tilkynning um að tveir ferðamenn hafi fests í helli sem barst neyðarlínu í gærkvöldi hafi verið falsboð. Tilkynningin varð til þess að viðbragðsaðilar fóru í umfangsmikla leit sem ekki hefur skilað árangri.

Leit við Kerlingarfjöll og varaforsetaefni Kamölu Harris
Í kvöldfréttunum verðum við í beinni útsendingu frá Kerlingarfjöllum, þar sem umfangsmikil leit hefur staðið yfir síðan í gærkvöldi að tveimur erlendum feðramönnum, sem taldir eru sitja fastir í helli á svæðinu.

Telja bílinn ekki á vegum ferðamannanna
Bílaleigubíll sem fannst yfirgefinn á bílastæði við tjaldstæði í Kerlingarfjöllum er ekki talinn vera á vegum ferðamannanna tveggja sem tilkynntu að þeir væru fastir í helli.

Maður grunaður um tilefnislausa stunguárás í varðhaldi síðan í janúar
Landsréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur á hendur karlmanni á fimmtugsaldri sem er grunaður um tilraun til manndráps í janúar á þessu ári. Hann hefur verið ákærður fyrir að stinga annan mann af tilefnislausu á gatnamótum Hofsvallagötu og Hringbrautar í Reykjavík.

Hörður Torfason biður Samtökin 78 afsökunar
Hörður Torfason hefur beðið Auði Magndísi Auðardóttur og fyrrverandi stjórn Samtakanna 78 undir stjórn Hilmars Hildar Magnúsar afsökunar á ummælum sem hann lét falla í viðtali við DV árið 2018. Í viðtalinu talaði hann um að Samtökin hefðu sætt yfirtöku og verið rænt af hópi BDSM fólks.

Óvíst hvort ferðamennirnir séu á yfirgefna bílaleigubílnum
Ekki er víst að bílaleigubíll sem fannst yfirgefinn á bílastæði við tjaldstæði í Kerlingarfjöllum sé á vegum ferðamanna sem tilkynntu Neyðarlínunni í netspjalli í gær að þeir væru fastir í helli.

Nýrnaveiki staðfest í sjókví í Arnarfirði
Nýrnaveiki hefur greinst í löxum í sjókví Arnarlax í Arnarfirði. Dýralæknir fisksjúkdóma hjá MAST segir smitið hafa borist í kvína úr villtum löxum, en þar sé nýrnaveiki útbreidd. Svona smit geti skilað sér í aðeins meiri afföllum en hafi engin alvarleg áhrif.

Leitarsvæðið torsótt og erfitt yfirferðar
Leitarsvæðið við Kerlingarfjöll er mjög torsótt og erfitt yfirferðar fyrir göngufólk, hjól og jeppa, en björgunarsveitir hafa sett mikinn kraft í leit með drónum. Landslagið er síbreytilegt vegna snjóa, rigningar og drullu. Leit hefur staðið yfir að ferðamönnum sem taldir eru fastir í helli við Kerlingarfjöll síðan í gærkvöldi.

Fórnarlamb stunguárásar útskrifað af sjúkrahúsi
Karlmaður sem stunginn var með hnífi á Akureyri um helgina var útskrifaður af sjúkrahúsi í gær. Einn hefur réttarstöðu sakbornings í málinu og miðar rannsókn ágætlega, að sögn lögreglu.

Fundu tóman bílaleigubíl og ræsa út leitarhunda
Björgunarsveitir hafa fundið það sem þau telja fyrstu vísbendinguna sem hægt er að vinna eftir, í leit að tveimur ferðamönnum sem talið er að séu fastir í helli nærri Kerlingarfjöllum. Bílaleigubíll sem skráður er á tvo ferðamenn fannst við tjaldstæði. Enginn á svæðinu kannast við að bera ábyrgð á bílnum. Kallað hefur verið til leitarhunda.

Ríkið komið um borð í milljarðaverkefni í Eyjafirði
Uppbygging líforkuvers á Dysnesi í Eyjafirði á að leysa þann vanda sem íslenska ríkið hefur staðið frammi fyrir við söfnun, móttöku og vinnslu dýraleifa. Ísland hefur um árabil fengið bágt fyrir að uppfylla ekki skyldur sínar í þeim efnum. Um milljarðaverkefni er að ræða sem gæti orðið fyrsti vísir að uppbyggingu stórhafnar á Dysnesi.

Víkka út leitarsvæðið án nokkurra nýrra vísbendinga
Leitin að ferðamönnunum sem gengið var út frá að væru fastir í helli nærri Kerlingarfjöllum hefur enn engan árangur borið. Búið er að leita á þeirri staðsetningu sem gefin var upp í upphaflegu tilkynningunni án þess að nokkrar vísbendingar hafi fundist. Nú er verið að víkka út leitarsvæðið.

Margir urðu brekkunni að bráð
Þrátt fyrir ansi slæmt veður skemmtu langflestir sér vel á Þjóðhátíð í ár að sögn formanns Þjóðhátíðarnefndar. Fimmtán þúsund manns voru í Vestmannaeyjum um helgina og lenti brekkan í Herjólfsdal illa í því sunnudagskvöldið.

Skjálftavirkni meiri en landris hægara
Skjálftavirkni á Reykjanesi hefur aukist en hægt á landrisi. Enn eru taldar líkur á kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi á svæðinu á næstu dögum.

Leitað að ferðamönnum í Kerlingarfjöllum
Í hádegisfréttum fjöllum við um viðamikla leit sem staðið hefur yfir í Kerlingarfjöllum frá því í gærkvöldi eftir að boð bárust um að ferðamenn væru fastir inni í helli á svæðinu.

„Ekki skemmtilegt að koma svona til baka fyrsta vinnudag eftir sumarfrí“
Umfangsmikil eignaspjöll voru unnin á Húnaskóla á Blönduósi í nótt. Allar rúður voru brotnar í eldhúsi og smíðastofu grunnskólans og þar framin töluverð skemmdarverk. Lögregla rannsakar nú málið.

Sendu skilaboð á Neyðarlínuna en enginn fundist á svæðinu
Ferðamenn sem leitað hefur verið að nærri Kerlingarfjöllum á miðhálendinu síðan í gærkvöldi höfðu samband við netspjall Neyðarlínunnar og gáfu upp staðsetningarhnit. Netspjallið lokaðist í framhaldinu og enginn hefur fundist nálægt þeirri staðsetningu sem gefin var upp.

Handleggsbrotnum bjargað af Baulu
Björgunarsveitir voru kallaðar út í gærkvöldi vegna slasaðs ferðamanns á Baulu. Aðstæður voru erfiðar og þrátt fyrir að búið væri að finna manninn um klukkan tvö í nótt tókst þyrlu ekki að koma að fyrr en um klukkan fjögur.

Ferðamennirnir ófundnir
Ferðamennirnir sem taldir eru fastir í helli nærri Kerlingarfjöllum eru enn ófundnir. Leit stendur yfir og um 135 björgunarmenn á vettvangi eins og er.

Björgunarsveitir sækja slasaðan ferðamann á Baulu
Björgunarsveitir voru kallaðar út fyrr í kvöld vegna ferðamanns sem hafði slasast á fjallinu Baulu í Borgarfirði.