Innlent

Segja ákvörðun Bjarkeyjar í berhöggi við stjórnarskrá
Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) telja leyfið sem Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra veitti fyrr í dag til veiða á langreyðum sé í raun aðeins gefið út til málamynda. Matvælaráðherra leggi á ólögmætan hátt stein í götu sjálfbærra veiða á langreyðum með ákvörðuninni í berhöggi við stjórnarskrárvarin atvinnuréttindi Hvals hf.

Ákvörðunin skref í rétta átt
Í dag var Hval hf. veit leyfi til að veiða 128 langreyðar við Íslandsstrendur í ár. Formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands segir innihald leyfisins skref í rétta átt þrátt fyrir að hann hafi viljað að veiðarnar yrðu bannaðar alfarið.

Loka vinnuskólanum og leikskólabörnum haldið innandyra
Vinnuskóla Kópavogs auk Vinnuskóla Reykjavíkur var lokað í dag og starfsmenn sendir heim sökum slæmra loftgæða af völdum gosmengunar. Þá verður leikskólabörnum í Kópavogi haldið innandyra og ekki send í útivist í dag af sömu ástæðu.

Óttast að enginn hvalur verði veiddur þrátt fyrir leyfið
Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambands Íslands, óttast að enginn hvalur verði veiddur á þessu ári þrátt fyrir leyfisveitingu matvælaráðherra.

Fækkar í Þjóðkirkjunni og fjölgar í Siðmennt
Skráðum einstaklingum í Þjóðkirkjunni fækkaði um 520 á tímabilinu 1. desember 2023 til 1. júní 2024. Mesta fjölgunin í trú- og lífsskoðunarfélögum var hjá Siðmennt, þar sem meðlimum fjölgaði um 121. Mesta hlutfallslega fjölgunin var hjá Samfélagi Ahmadiyya-múslima á Íslandi, eða um 28,6 prósent. Skráður fjöldi þeirra fór úr sjö í níu, og eru þeir þriðja fámennasta trúfélag landsins.

Hvalveiðar heimilaðar og gosmóða yfir höfuðborginni
Í hádegisfréttum fjöllum við um ákvörðun matvælaráðherra um hvalveiðar.

Bjarkey veitir Hval leyfi til að veiða 128 langreyðar
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra hefur veitt Hval hf. veiðileyfi til veiða á langreyðum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Matvælaráðuneytinu.

Siðanefnd sýknar Halldór og Vísi af kæru Arnars Þórs
Siðanefnd Blaðamannafélagsins hefur sýknað Halldór Baldursson teiknara og Vísi af kæru Arnars Þórs Jónssonar lögmanns og fyrrverandi forsetaframbjóðanda.

Rafmagnsleysi í Kópavogi og Fossvogi
Rafmagnslaust er í Kópavogi og Fossvogi vegna háspennubilunar. Þetta kemur fram á vef Veitna.

Landris hafið að nýju og má gera ráð fyrir öðru gosi
Landris er hafið á nýjan leik undir Svartsengi en það þýðir að það muni líklegast gjósa aftur á Reykjanesi. Áttunda eldgosið sem stendur yfir um þessar mundir mun því líklegast ekki verða það síðasta á svæðinu.

Þeim fjölgar sem kenna án kennsluréttinda
Skólaárið 2023-2024 voru 18,7% starfsfólks við kennslu í grunnskólum án kennsluréttinda og hefur hlutfallið ekki verið hærra frá árinu 2002. Réttindalausu starfsfólki við kennslu fjölgaði um 132 frá hausti 2022.

Einn stunginn þegar tveir hópar voru að útkljá sín mál
Einn maður var stunginn eða skorinn með hníf í Kópavogi skömmu fyrir miðnætti í gærkvöld. Hann var fluttur á slysadeild til aðhlynningar með áverka á hendi sem eru ekki taldir alvarlegir.

Vaktin: Bjarkey gefur grænt ljós á hvalveiðar
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra hefur gefið út leyfi til veiða á 128 langreyðum. Bjarkey kynnti ákvörðun sína á ríkisstjórnarfundi í morgun og ræddi að því loknu við fjölmiðla.

Kosningastjóri og áhrifavaldur aðstoða Bjarkeyju
Fyrrverandi kosningastjóri Vinstri grænna í norðvesturkjördæmi og samfélagsmiðlaáhrifavaldur hafa verið ráðnir aðstoðarmenn Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur, matvælaráðherra. Bjarkey tók við embætti í apríl.

Inga vill helst fjármálaráðuneytið
Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segir að hún myndi helst vilja fara í fjármálaráðuneytið fengi hún að velja á milli allra mögulegra ráðuneyta.

Skemmdarverk unnin á lögreglubílum
Lögreglan á Suðurnesjum óskar eftir upplýsingum um skemmdarverk sem hafa verið unnin á lögreglubílum.

Gosmóða yfir höfuðborgarsvæðinu í dag
Aðeins meiri virkni var í eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni í nótt en daginn áður og gígurinn ansi líflegur að sögn Bjarka Kaldalóns Friis, náttúruvársérfræðings hjá Veðurstofu Íslands.

Vilja skoða að gera RÚV aftur að hefðbundinni ríkisstofnun
Meirihluti fjárlaganefndar telur skynsamlegt að kannaðir verði kostir og gallar þess að Ríkisútvarpið verði gert að hefðibundinni ríkisstofnun að nýju. Þetta kemur fram í meirihlutaáliti um fjármálaáætlun fyrir árin 2025 til 2029 sem lagt var fram á þingi í gær.

Ók í gegnum grindverk heimahúss og fannst skammt frá
Lögreglunni var tilkynnt um hópslagsmál í Kópavogi í gærkvöldi í nótt. Einn var slasaður eftir slagsmálin og var sá fluttur á slysadeild. Einn var handtekinn vegna málsins, grunaður um alvarlega líkamsárás.

„Þessi kostnaður hverfur ekki“
Fyrstu umræðu um fjórðu fjáraukalög ríkisstjórnarinnar lauk á ellefta tímanum á Alþingi í kvöld. Frumvarpið fer nú í aðra umræðu og aftur til fjárlaganefndar. Þingmenn stjórnarandstöðu ræddu óvæntan kostnað og afleiðingar aukinna útgjalda í ræðum sínum á þingi í kvöld. Ráðherra vísaði í svörum sínum til ófyrirsjáanlegra aðstæðna vegna náttúruhamfara.

Þrettán ungliðahreyfingar fordæma breytingar á útlendingalögum
Þrettán íslenskar ungliðahreyfingar krefjast þess að ný útlendingalög verði samin í samráði við sérfræðinga í málaflokknum, mannréttindasamtök og hagsmunaaðila. Þau fordæma breytingarnar sem á að gera á útlendingalögunum og krefjast þess að allar lagabreytingar séu gerðar með mannréttindi að leiðarljósi.

Til skoðunar að færa Grindavíkurveg vestar
Framkvæmdir við Grindavíkurveg hefjast væntanlega í vikunni en til skoðunar er að færa veginn vestar eftir að hraun rann yfir hann um helgina. Vegurinn fór um helgina undir hraun í þriðja sinn síðan eldvirknin hófst við Sundhnúk.

Spáir sól um allt land í vikunni
Veðurfræðingur segir norðurheimskautaloftið sem reið yfir landið í síðustu viku með þeim afleiðingum að víða snjóaði vera loks á bak og burt. Hann spáir áframhaldandi góðu veðri næstu vikuna og ráðleggur sólþyrstum útilegumönnum að tjalda fyrir sunnan eða vestan næstu helgi.

800 nýjar íbúðir byggðar á Ásbrú
Um átta hundruð nýjar íbúðir verða byggðar á Ásbrú í Reykjanesbæ á næstu árum, auk þess sem nokkrir nýir grunn- og leikskólar verða byggðir, ráðstefnuhöll, verslanir, veitingahús og hótel svo eitthvað sé nefnt. Framkvæmdirnar munu kosta um 140 milljarða króna.

Fjárlaganefnd leggur til opnun sendiráðs á Spáni
Fjárlaganefnd hefur lagt til opnun sendiráðs Íslands á Spáni í nefndaráliti um tillögu til þingsályktunar um fjármálálaáætlun næstu fimm ár. Hingað til hefur Spánn verið umdæmisland sendiráðsins í París.

Ráðherra hafi ekki mátt láta rannsaka meðferðarheimilið
Barnamálaráðherra hafði ekki lagaheimild til að fela Gæða - og eftirlitsstofnun að rannsaka meðferðarheimili sem var á Laugalandi og Varpholti að mati Persónuverndar. Forstjóri stofnunarinnar segir miður þegar mál falla á formgalla.

Efast um heimild ráðherra til rannsóknar
Barnamálaráðherra hafði ekki lagaheimild til að fela Gæða - og eftirlitsstofnun að rannsaka meðferðarheimili sem var á Laugalandi og Varpholti að mati Persónuverndar. Forstjóri stofnunarinnar segir miður þegar mál falla á formgalla. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30.

Rænulaus maður á almannafæri reyndist ferðamaður í sólbaði
Lögreglu var í dag tilkynnt um mann sem var sagður liggja rænulaus á almannafæri í Reykjavík. Sá reyndist vera erlendur ferðamaður að sólbaða sig í góða veðrinu.

Stjórnvöld ætla að auka við mannúðarstuðning á Gasa
Íslensk stjórnvöld ætla að auka við mannúðarstuðning á Gasa. Utanríkisráðherra segir þó liggja á að tryggja að slík aðstoð berist til fólksins á Gasa en hjálparstofnunum eins og Sameinuðu þjóðunum hefur verið nánast ómögulegt að koma hjálpargögnum inn á svæðið síðustu mánuði. Hún segir stjórnvöld hafa talað skýrt um að þau telji alþjóðalögum ekki fylgt og kallað eftir tafarlausu vopnahléi.

Kynna nýtt kerfi veiðistjórnunar
Umhverfisstofnun hefur boðið á opinn rafrænan kynningarfund vegna nýrrar stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir rjúpustofninn.