Innlent „
309 310 311 312 313 314 315 316 317 … 334 ›
„Réttlætinu er fullnægt“ Lögmaður Ingós veðurguðs, sem hafði í dag betur í meiðyrðamáli fyrir Landsrétti, segir að niðurstaðan komi ekki á óvart og dómurinn sé réttur. „Réttlætinu er fullnægt.“ Innlent 10.11.2023 14:35
Vegfarendum býðst að aka um Teigsskóg í mánuðinum Bundið slitlag er núna komið á allan vegarkaflann um hinn umdeilda Teigsskóg í Þorskafirði. Vegagerðin stefnir að því að hleypa umferð á veginn síðar í þessum mánuði. Innlent 10.11.2023 14:28
Nýtt útlit á kvöldfréttum frumsýnt í kvöld Nýtt fréttastúdíó verður frumsýnt í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30 í kvöld. Framleiðslustjóri fréttastofunnar segist vera spennt að sýna landsmönnum afrakstur síðustu mánaða. Innlent 10.11.2023 14:25
Hundruð kvenleiðtoga streyma til landsins Reiknað er með rúmlega fimm hundruð kvenleiðtogum frá áttatíu löndum á Heimsþing kvenleiðtoga sem hefst í Hörpu á mánudag og stendur í tvo daga. Þingið er haldið í sjötta skipti. Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, er sérstakur verndari Heimsþings kvenleiðtoga. Innlent 10.11.2023 14:08
Ingó hafði betur í Landsrétti gegn Sindra Þór Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó veðurguð, hafði í dag betur í meiðyrðamáli sínu á hendur Sindra Þór Sigríðarsyni Hilmarssyni í Landsrétti. Sindri Þór mátti ekki viðhafa ummæli á borð við „Skemmtikraftur sem hefur stundað það síðastliðin 12-13 ár að ríða börnum.“ Innlent 10.11.2023 14:08
Helgi segir „woke-æði“ ráða því að séra Friðriki er steypt af stalli Helgi Áss Grétarsson, varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, geldur varhug við því að styttan af séra Friðriki Friðrikssyni verði fjarlægð. Innlent 10.11.2023 14:06
Mótmæla breytingum á leikskólagjöldum á Akureyri Stéttarfélög á Akureyri saka meirihlutann í bænum um sjónhverfingar í leikskólamálum vegna breytinga á fyrirkomulagi leikskólagjalda fyrir árið 2024. Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu sem sjö stéttarfélög skrifa undir. Innlent 10.11.2023 13:40
Grunar að netverslun útskýri færri ferðir Íbúar í Reykjavík fara færri ferðir á dag en fyrir tuttugu árum síðan. Í febrúar 2002 fóru íbúar að meðaltali 4,1 ferð á dag en í nóvember í fyrra fóru íbúar að meðaltali 3,3 ferðir daglega. Gallup grunar að netverslun útskýri þessa fækkun ferða. Innlent 10.11.2023 13:39
Öflugur jarðskjálfti Nokkuð öflugur jarðskjálfti reið yfir á suðvesturhorninu um korter í eitt. Skjálftinn var af stærðinni 4,1. Innlent 10.11.2023 12:48
Venjuleg gella á hjóli með þrenn skýr skilaboð til bílstjóra Brynhildur Bolladóttir lögfræðingur segir lífið hafa breyst til hins betra þegar hún eignaðist rafhjól. Nú þýtur hún upp brekkur, kennir bílstjórum að umgangast hjólastíga og segir ekkert kappsmál fyrir henni að vera bíllaus. Hjólið veiti einfaldlega hamingju. Rafhjólin gætu orðið bylting millistéttarinnar. Innlent 10.11.2023 12:41
Öflug skjálftahrina hófst í morgunsárið eftir rólegheitin í nótt Fremur öflug skjálftahrina tók sig upp að nýju í morgun eftir tiltölulega rólega nótt á Reykjanesinu. Nokkrir stærri skjálftar hafa riðið yfir frá því um átta leytið í morgun, sjö þeirra voru yfir 3 að stærð. Náttúruvársérfræðingur segir að íbúar svæðisins megi áfram að búast við öflugum skjálftum allt að fimm að stærð. Innlent 10.11.2023 12:19
Leggja fram frumvarp um byggingu varnargarða Ríkisstjórn mun leggja fram frumvarp um byggingu varnargarða í Svartsengi. Frumvarpið er byggt á tillögu frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Næst fer málið fyrir þing. Rætt verður við formenn allra flokka í dag. Innlent 10.11.2023 12:13
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um ástandið á Reykjanesi og segjum frá ákvörðun ríkisstjórnarinnar frá því í morgun um að leggja fram frumvarp um byggingu varnargarða. Innlent 10.11.2023 11:38
Lögreglumaður ákærður fyrir að slá liggjandi mann ítrekað með kylfu Lögreglumaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir líkamsárás og brot í opinberu starfi vegna atviks sem átti sér stað í miðbæ Reykjavíkur í lok maí á þessu ári. Innlent 10.11.2023 11:22
Sjúklingar biðu í sjúkrabíl fyrir utan spítalann Sjúklingar sem fluttir voru með sjúkrabíl á slysadeild undanfarinn sólarhring þurftu á tímabili í gær að bíða fyrir utan slysadeild í rúmar þrjátíu mínútur í sjúkrabílunum, svo hægt væri að taka á móti þeim á deildinni. Innlent 10.11.2023 11:20
Slepptu einum úr haldi en vilja halda fimm lengur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sleppti einum, sem handtekinn var í tengslum við skotárás í Úlfarsárdal, úr gæsluvarðhaldi í gær. Eftir hádegi verður gerð krafa um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir fimm sem grunaðir eru um aðild að árásinni. Innlent 10.11.2023 11:01
Enn skelfur jörð með fjórum skjálftum yfir þremur Ný skjálftahrina hófst í morgun á Reykjanesi. Fjórir skjálftar yfir þremur að stærð hafa mælst síðan klukkan sjö. Náttúruvásérfræðingur býst við að staðan verði eins næstu daga. Innlent 10.11.2023 10:58
Fræðadagur skerðir þjónustu heilsugæslunnar Fræðadagur heilsugæslunnar fer fram í dag. Þar af leiðandi verður skert þjónusta hjá heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu, en öllum verkefnum sem hún telur brýn verður sinnt. Innlent 10.11.2023 10:48
Slökkviliðið losaði fingur stúlku með kúbeini Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hefur haft mikið að gera síðasta sólarhring og undanfarna daga, þar sem eitt verkefna var að losa fingur átján mánaða stúlku úr lukt. Innlent 10.11.2023 10:31
Wok On sver af sér tengsl við lagerinn Talsmaður veitingastaðakeðjunnar Wok On segir sárt að heyra að búið að sé að bendla veitingastaðinn við ólöglegan matvælalager í Sóltúni í Reykjavík. Eigandi lagersins komi ekki að daglegum rekstri Wok On en eigi þó hlut í tveimur útibúum keðjunnar og sjái Wok On fyrir húsnæði. Innlent 10.11.2023 10:05
Út af veginum í fljúgandi hálku og tók ljósastaur með Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll með tengivagn fór út af Reykjanesbrautinni sunnan við Kúagerði á níunda tímanum í morgun. Enginn slasaðist. Innlent 10.11.2023 09:59
Bein útsending: Léttum á umferðinni 2023 Opinn fundur borgarstjóra í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur um samgöngur á höfuðborgarsvæðinu fer fram í dag klukkan 9-11:30. Innlent 10.11.2023 08:16
Fundu sand af seðlum og svo fíkniefni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í gærkvöldi ökumann vegna gruns um sölu og dreifingu fíkniefna, þar sem mikið magn reiðufjár var í bifreiðinni. Innlent 10.11.2023 07:48
Sérsveit kölluð til vegna minniháttar rifrildis Lögreglu barst í gærkvöldi tilkynning um hóp manna að veitast að einum manni. Einn var sagður hafa haldið hníf upp að árásarþola. Lögregla fór þegar á vettvang ásamt sérsveit en málið reyndist minniháttar rifrildi. Innlent 10.11.2023 07:31
Rólegt yfir mælum í nótt og enginn skjálfti yfir 2,0 stig eftir miðnætti Það var rólegt yfir mælum Veðurstofunnar í nótt og enginn skjálfti verið yfir 2,0 stig eftir miðnætti. Innlent 10.11.2023 07:02
Biðja Unni Eddu afsökunar „Þetta gefur manni svolítinn auka kraft til að halda áfram baráttunni við þetta ljóta mein sem einelti kann að skilja eftir í sálinni manns,“ segir Unnur Edda Björnsdóttir. Hún steig fram í viðtali á Vísi síðastliðinn miðvikudag og greindi frá hrottalegu einelti sem hún varð fyrir í grunn- og framhaldsskóla. Innlent 10.11.2023 07:00
Hefur enn ekki fengið svör um byssukaup Þingmaður Pírata furðar sig á því að sér hafi ekki borist svör frá dómsmálaráðherra við fyrirspurn sinni um vopnakaup lögreglu. Fyrirspurnin var lögð fram í maí og svo aftur á nýju þingi. Ráðuneytið segir svara að vænta 15. nóvember, degi eftir sérstaka umræðu um málið á þingi. Innlent 10.11.2023 06:45
Kvartar til Umboðsmanns Alþingis vegna framgöngu ráðuneytisins Huginn Þór Grétarsson bókaútgefandi hefur kvartað til Umboðsmanns Alþingis vegna framgöngu menningar- og viðskiptaráðuneytisins í tengslum við nýja útgáfu af Dimmalimm Guðmundar Thorsteinssonar. Innlent 10.11.2023 06:33
Norðurljósavegi við Svartsengi lokað fyrir almennri umferð Lögreglan á Suðurnesjum hefur tekið þá ákvörðun að loka Norðurljósavegi við Svartsengi, þar sem Bláa lónið og Northern Light Inn hótelið eru til húsa, fyrir almennri umferð. Innlent 9.11.2023 22:10
Siglingatími yfir Breiðafjörð styttist með nýjum Baldri Siglingatími yfir Breiðafjörð styttist með nýjum Baldri, sem áformað er að hefji áætlunarsiglingar milli Stykkishólms og Brjánslækjar í næstu viku. Ferjan fór í reynslusiglingu síðdegis eftir endurbætur í Hafnarfirði. Innlent 9.11.2023 21:48