Gagnrýni

Svona á að gera það
Hugljúf og fyndin sýning sem bregður upp eftirminnilegum myndum og gefur öllum sem sáu eitthvað til að spekúlera í.

Meinfyndinn Machete
Þrælskemmtileg hasarmynd af gamla skólanum, en missir dampinn eilítið í restina.

Þrír saman, enn meira gaman
Gylfi Ægisson, Rúnar Þór og Megas voru léttir og hressir og fóru á kostum í Austurbæ á fimmudagskvöldið.

Dúndur diskóeyja hjá Braga
Diskóeyjan er stuðplata og eiga Bragi Valdimar og Memfís-mafían eiga allan heiður skilinn fyrir hana.

Engin flugeldasýning
Sálin hans Jóns míns er ein fremsta hljómsveit íslenskrar dægurlagasögu. Um það verður ekki deilt. Sveitin hefur gert frábæra hluti. En hún hefur líka slegið sínar feilnótur. Eins og allir myndu gera á jafn farsælum ferli. Upp og niður stigann, fyrsta hljóðversplata Sálarinnar í fimm ár, fellur því miður í síðarnefnda flokkinn.

Allt smellur hjá Bjartmari
Bjartmar stígur aftur inn í sviðsljósið með sína bestu plötu í yfir 20 ár.

Biturt gjald draumanna
Mögnuð og listilega stíluð skáldsaga sem vekur spurningar og lifir lengi í huga lesandans.

Bókin um Bigga
Hér er vináttu og fræðum fléttað listilega saman. Þröstur Helgason varpar skýru ljósi á list Birgis Andréssonar í íslensku og alþjóðlegu samhengi og dregur upp innilega mynd af þeim einstaka manni sem hann hafði að geyma.

Heillandi hatur
Það er óvenjulegt að sækja heim sýningu þar sem helstu hughrifin eru hatur, áhorfandinn virðist jafnvel óvelkominn, ítrekanir um að snerta ekki listaverkin fá óhugnanlegan undirtón. Þetta kemur á óvart og markar listamanninum sérstöðu.

Allt sem prýða má einn krimma
Árni spinnur trúverðuga en margslungna fléttu um leið og hann varpar ljósi á samtíma okkar á óvæntan og hrollvekjandi hátt.

Litríkur kokkteill
Kimbabwe er skemmtilegasta plata ársins hingað til.

Hugljúf Dísa og kvakandi froskar
Dísa ljósálfur er sýning sem allir krakkar frá fjögurra ára ættu að sjá.

Síðasta sort
Takers er versta mynd ársins. Gæfi henni hauskúpu ef ég gæti.

Skilaboð að ofan
Þögli þjónninn er brokkgeng framan af en sækir í sig veðrið eftir hlé. Verk sem talar inn í íslenskan samtíma.

Tómas og dularfulla ljóðrænuhvarfið
Vel skrifaðar og skemmtilegar smámyndir úr borgarlífinu, en ljóðrænan er af skornum skammti.

Hugsanlega besta mynd Baltasars
Inhale er mjög vel heppnuð spennumynd sem spyr áleitinna siðferðisspurninga. Hugsanlega besta mynd Baltasars hingað til.

Tilþrifamikið táningadrama
Órói er vel heppnuð unglingamynd að mestu leyti, laus við tilgerð og Hollywood-stæla sem einkenna oft íslenskar myndir af þessu sauðahúsi.

Allir í gallana!
Brim er vel heppnað verk. Köld og blaut en gerð af ást og hlýju.

Stíllinn taminn
Ólöf Arnalds heldur áfram að fullkomna stílinn sinn á fínni plötu.

Þóra Einars stjarna sýningarinnar
Þóra Einarsdóttur var í hlutverki dóttur Rigolettos. Hjá henni fór allt saman, trúverðugur leikur og margbrotinn, forkunnarfagur söngur. Frammistaða hennar var einstök.

Kani í völundarhúsi
The American er falleg og djörf mynd sem tekur tíma að melta. Þeir sem vilja hasar verða vonsviknir.

Buddy Holly í Austurbæ
Frábær músík en brokkgengt grín inni á milli. Ingó kemst vel frá sínu hlutverki, sérstaklega söngnum.

Maður er konu úlfur
Blóðhófnir er besta ljóðabók Gerðar Kristnýjar. Meitlaður texti sem talar til lesandans á mörgum sviðum. Lestrarnautn.

Dulúð og drama
Heildstætt verk þar sem áhorfinn gleymir sér í heillandi goðsagnaheimi. Nokkrir hnökrar setja þó strik í reikninginn.

Launfyndin pappírsverk
Verk Jóns Laxdal leyna alltaf töluvert á sér. Þau eru mjög aðgengileg og þeir sem gefa sér smá tíma til að skoða verða ekki sviknir.

Einstök kvöldstund með Yoko Ono
Mæðginin Sean og Yoko og þétt skipað Plastic Ono bandið buðu upp á hráa og tilraunakennda tónlistarveislu í Háskólabíó á laugardagskvöldið.

Eins og fólk er flest
Með hangandi hendi virkar svo vel sem heild að vandséð er hvernig gera hefði mátt betur og ómögulegt annað en að gefa myndinni hæstu einkunn. Glæsilega að verki staðið.

Gott samnorrænt grín
Skemmtileg sýning með fyndnum grínistum. Sumir voru fyndnari en aðrir, en Ari Eldjárn, nýliðinn í hópnum, stóð sig best. Frímann hélt vel utan um sýninguna en endirinn var snubbóttur.

Hár og aftur hár
Flott nafn, fínt umslag og eitt gott lag. Wish You Were Hair er á heildina litið þokkaleg plata.

Brotakennd sýning ungra listamanna
Niðurstaða: Einstök listaverk eru áhugaverð, framtakið er lofsvert en niðurstaðan er brotakennd heild sem erfitt er að ná sambandi við.