
Golf

Komst ekki inn á Evrópumótaröðina
Haraldur Franklín Magnús náði ekki að tryggja sér sæti á Evrópumótaröðinni í golfi en úrtökumóti fyrir mótaröðina lauk í dag. Haraldur lauk keppni í 76. sæti.

Rory McIlroy sagði af sér
Norður-írski kylfingurinn Rory McIlroy hefur sagt sig úr hinni áhrifamiklu nefnd um stefnumál hjá bandarísku PGA-mótaröðinni, „PGA Tour policy board.“

Sex höggum frá Evrópumótaröðinni fyrir lokadaginn
Kylfingurinn Haraldur Franklín Magnús komst í gegnum niðurskurðinn á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina, DP World Tour í karlaflokki síðastliðinn mánudag. Lokadagur úrtökumótsins fer fram í dag og á Haraldur enn möguleika þó vonin sé veik.

Haraldur Franklín á enn möguleika
Íslenski kylfingurinn Haraldur Franklín Magnús komst í gegnum niðurskurðinn á lokaúrtökumótinu fyrir DP World atvinnumótaröðina í karlaflokki. Hann á því enn möguleika á að komast inn á mótaröðina og bætast í hópi fárra íslenskra kylfinga sem hafa náð því.

McIlroy kallar Cantlay fífl
Norður-írski kylfingurinn Rory McIlroy hefur lítið álit á Bandaríkjamanninum Patrick Cantlay og lét hann heyra það í nýlegu viðtali.

Ökklinn hættur að stríða Tiger en önnur meiðsli komið í staðinn
Tiger Woods kennir sér ekki lengur meins í ökklanum sem urðu til þess að hann þurfti að draga sig úr keppni á Masters-mótinu í vor. Önnur meiðsli hafa hins vegar komið í staðinn.

Tiger Woods og Rory McIlroy stofna saman nýja golfdeild
Við þekkjum liðakeppni í golfi helst í gegnum Ryder bikarinn sem fram fer á tveggja ára fresti. Nú hefur hins vegar verið stofnuð ný liðadeild í Bandaríkjunum og hún mun verða spiluð innanhúss.

Axel vann sig inn á Áskorendamótaröðina
Axel Bóasson, atvinnukylfingur úr Keili, tryggði sér í dag sæti á Áskorendamótaröðinni í golfi. Um er að ræða næst sterkustu mótaröð Evrópu.

Bandarísk kona ætlar að keppa við karlana á PGA mótaröðinni
Bandaríski kylfingurinn Lexi Thompson verður sjöunda konan sem spilar á PGA mótaröðinni í golfi en hún mun keppa á móti í Las Vegas í næstu viku.

Evrópska liðið hafi fengið að blómstra í fjarveru LIV-kylfingana
Rory McIlroy, einn besti kylfingur heims, segir að evrópska liðið hafi fengið að blómstra í Ryder-bikarnum í golfi sem fram fór um síðustu helgi í fjarveri stórra persónuleika sem færðu sig yfir á hina umdeildu LIV-mótaröð.

McIlroy segist ekki hafa hitt kylfusveininn eftir derhúfumálið
Rory McIlroy þvertekur fyrir að hafa hitt kylfusvein Patricks Cantley eftir að þeim lenti saman á öðrum keppnisdegi Ryder-bikarsins.

Athæfi manns í beinni útsendingu frá Róm vekur heimsathygli
Stuðningsmaður evrópska úrvalsliðsins á Ryder-bikarnum gat ekki hamið gleði sína er sigur liðsins á mótinu var ljós. Hann tók á rás og fagnaði á sérkennilegan hátt lík og sést í myndskeiði sem farið hefur eins og eldur um sinu á samfélagsmiðlum.

Setja stefnuna á sigur í Bandaríkjunum eftir ansi skrautlegan Ryder Bikar
Úrvalslið Evrópu bar sigur úr býtum gegn Bandaríkjunum í Ryder-bikarnum í golfi um nýliðna helgi á einu skemmtilegasta golfmóti ársins. Bandaríkjamenn áttu titil að verja á mótinu sem reyndist ansi skrautlegt.

Evrópa vann Ryder-bikarinn
Lið Evrópu vann Ryder bikarinn 2023. Bandaríkjamenn voru af mörgum taldir sigurstranglegri aðilinn en frá fyrsta degi var sigurinn aldrei í hættu Evrópuliðið.

Mcllroy reiddist kylfusveini og elti hann út á bílaplan
Rory Mcllroy stóð í orðaskiptum við Joe LaCava, kylfusvein Patrick Cantlay, á síðustu holu dagsins í Ryder bikarnum. Atvikið átti sér stað eftir að Cantlay tókst að setja niður langt pútt og kylfusveinn fagnaði af mikilli innlifun.

Ryder bikarinn: Evrópumenn með sannfærandi forystu eftir daginn
Evrópumenn leiða með fimm stigum gegn Bandaríkjamönnum eftir annan dag Ryder Cup sem haldinn er á Marco Simone golfvellinum í Róm þessa dagana.

Ryder bikarinn: Ósætti innan bandaríska hópsins
Bandaríkjamenn hafa farið herfilega af stað í Ryder bikarnum en freista þess að rétta hlut sinn í seinni viðureignum dagsins. Til að bætu gráu ofan á svart berast fréttir af ósætti innan hópsins.

Ryder bikarinn: Hovland og Åberg með sögulegan sigur
Yfirburðir Evrópuliðsins halda áfram í Ryder bikarnum en þeir Viktor Hovland og Ludvig Åberg unnu sögulegan sigur í morgun þegar þeir kláruðu sinn leik á ellefu holum.

Ryder bikarinn: Jon Rahm hársbreidd frá sögulegri holu í höggi
Spænski kylfingurinn Jon Rahm var hársbreidd frá því að fara holu í höggi í Ryder bikarnum í dag en aðeins sex kylfingar hafa náð þessum sjaldgæfa árangri á mótinu.

Ryder bikarinn: Evrópumenn byrja með látum
Lið Evrópu fór í gegnum opnunardag Ryder bikarsins án þess að tapa viðureign. Bandaríkjamenn klóruðu þó í bakkann í seinni viðureignum dagsins og náðu í þrjú jafntefli en boðið var upp á mikla dramatík á Marco Simone vellinum í Róm.

Ryder Cup: Evrópa vann fyrstu fjórar viðureignirnar
Titilvörn Bandaríkjamanna á Ryder Cup hefst ekki vel. Lið Evrópu vann allar viðureignir í morgun og leiðir 4-0 eftir fyrstu fjórar keppnirnar þar sem spilaður var fjórmenningsleikur í holukeppni.

Ho(v)la(nd) í höggi
Lið Evrópu á von á góðu í Ryder-bikarnum ef marka má spilamennsku Viktors Hovland á æfingahring í dag.

Mun hata vin sinn meðan Ryder-bikarinn er í gangi
Justin Thomas segir að hann muni hata góðvin sinn, Rory McIlroy, á meðan Ryder-bikarinn er í gangi.

Djokovic: Tekur þú við korti eða pening?
Þeir Gareth Bale, fyrrum knattspyrnumaður, og Novak Djokovic, tennisspilari, áttu skemmtilegt augnablik í undirbúningi fyrir golfmót sem þeir tóku þátt í síðustu daga.

Evrópa hélt titlinum eftir dramatík í Andalúsíu
Lið Evrópu heldur Solheim bikarnum í tvö ár til viðbótar eftir að hafa haldið jöfnu gegn úrvalsliði Bandaríkjanna í dag.

Allt jafnt fyrir lokadaginn á Solheim Cup
Það er æsispenna fyrir lokadaginn á Solheim Cup mótinu í golfi þar sem úrvalslið Evrópu og Bandaríkjanna í kvennaflokki mætast. Evrópa vann þrjá af fjórum síðustu leikjum laugardagsins.

Opnar sig um veðmálafíknina sem hafi valdið miklum skaða
Bandaríski kylfingurinn Phil Mickelson segir að veðmálafíkn sem hann hefur glímt við undanfarin ár hafi valdið miklum skaða og erfiðleikum í samskiptum hans við vini sína og fjölskyldu. Hann segist þó í dag vera á réttri leið.

Ótrúlegt heppnishögg McIlroys
Lukkan var svo sannarlega í liði með Rory McIlroy á BMW PGA Championship í gær. Hann átti ótrúlegt högg á 18. holu Wentworth vallarins.

Bale í golftölvuleik
Gareth Bale, einn besti fótboltamaður sinnar kynslóðar, virðist ætla að öðlast nýtt líf eftir ferilinn sem kylfingur.

Segir heimskulegt að Sergio García hafi ekki verið valinn í Ryder-liðið
Spánverjinn Jon Rahm er afar ósáttur við þá ákvörðun Lukes Donald að velja landa sinn, Sergio García, ekki í Ryder-lið Evrópu og segir hann heimskulega.