Viðskipti erlent
154 155 156 157 158 159 160 161 162 … 334 ›
Gjaldþrotum fyrirtækja fækkar í Danmörku Gjaldþrotum fyrirtækja fer fækkandi í Danmörku þótt efnahagslífið í landinu sé enn ekki að ná sér á strik eftir fjármálakreppuna sem hófst árið 2008. Viðskipti erlent 1.12.2012 13:44
Norski olíusjóðurinn fjárfestir fyrir yfir 1.300 milljarða Norski olíusjóðurinn hyggst fjárfesta í bandaríska fasteignamarkaðinum fyrir 11 milljarða dollara eða vel yfir 1.300 milljarða króna. Viðskipti erlent 1.12.2012 12:08
Moody´s lækkar lánshæfiseinkunn ESM Matsfyrirtækið Moody´s hefur lækkaði lánshæfiseinkunn Stöðugleikasjóðs evrusvæðisins (ESM) úr toppeinkunninni niður í AA1 með neikvæðum horfum. Viðskipti erlent 1.12.2012 09:23
Fjölgar um tæplega þrefaldan íbúafjölda Norðurlanda á ári Því er spáð að íbúa heimsins verði 9,6 milljarðar árið 2060, þar af verði 1,7 milljarður manna búsettur í Indlandi, sem þá verður langsamlega fjölmennasta ríki heimsins. Meðaltalsfjölgun íbúa á jörðinni nemur því 68,4 milljónum manna á hverju ári næstu 38 árin, eða sem nemur tæplega þreföldum íbúafjölda Norðurlandanna (Noregur, Svíþjóð, Danmörk, Finnland, Ísland, Fæeyjar, Frænland), en heildaríbúafjöldi þar er nú um 25,7 milljónir íbúa. Viðskipti erlent 30.11.2012 23:59
Hægir á í stærsta hagkerfi Suður-Ameríku Hagvöxtur í brasilíska hagkerfinu mældist 0,6 prósent á þriðja ársfjórðungi sem var mun minna en búist hafði verið við, að því er segir í frétt á vefsíðu breska ríkisútvarpsins BBC. Tölurnar eru sagðar hafa komið fjárfestum og stjórnvöldum í Brasilíu mjög á óvart, og segir greinandi hjá bankanum BES Investimento að tölurnar séu "hræðilegar“ og hljóti að hreyfa við stjórnvöldum, og jafnvel kalla á aðgerðir að hálfu þeirra til þess að örva hagkerfið. Viðskipti erlent 30.11.2012 15:57
Hagnaður Apple mun meiri en allra hinna tölvufyrirtækjanna Hagnaður Apple á þessu ári nemur um 5300 milljörðum íslenskra króna samkvæmt tekjuáætlun sem kynnt var á dögunum. Viðskipti erlent 30.11.2012 13:40
Frakkar minnka verulega léttvínsdrykkju sína Ný rannsókn sýnir að Frakkar hafa dregið verulega úr léttvínsdrykkju sinni á undanförnum árum og drekka ávaxtasafa í staðinn. Viðskipti erlent 30.11.2012 08:27
Bloomberg fær ekki gögn frá ECB um blekkingar Grikkja Evrópski seðlabankinn (ECB) þarf ekki að gera opinber skjöl sem sýna hvernig stjórnvöldum í Grikklandi tókst að blekkja Evrópusambandið um stöðu ríkisfjármála sinna fyrir hrunið 2008. Viðskipti erlent 30.11.2012 06:29
Gætu sparað hundruð milljarða á að skipta á seðlum fyrir myntir Bandaríkjamenn gætu sparað sér milljarða dollara eða hundruð milljarða króna með því að skipta út einsdollara seðli sínum fyrir mynt. Viðskipti erlent 30.11.2012 06:10
Ný og endurbætt útgáfa af iTunes komin Tæknirisinn Apple opinberaði í dag nýjustu útgáfuna af iTunes margmiðlunarforritinu. Þessi ellefta kynslóð iTunes státar af nýju notendaviðmóti þar sem höfuðáhersla er lögð á plötuumslög. Viðskipti erlent 29.11.2012 18:23
Internet Explorer snýr aftur - gerir grín að nettröllum Microsoft reynir nú eftir mesta megni að endurvekja forna dýrð Internet Explorer netvafrans. Nýjasta útgáfa vafrans, IE10, var hleypt af stokkunum á dögunum en um leið birti Microsoft auglýsingu þar sem stríði er lýst yfir á hendur nafnlausum hatursmönnum. Viðskipti erlent 29.11.2012 14:23
Eftirlit með erlendum bönkum hert í Bandaríkjunum Eftirlitsstofnanir í Bandaríkjunum, ekki síst fjármálaeftirlitið í New York, ætla að óska eftir því við stjórnir erlendra banka sem eru með starfsleyfi í Bandaríkjunum, að þeir styrki lausafjárstöðu sína. Þetta er talið geta haft áhrif á stóra banka eins og Deutsche Bank og Barclays, að því er segir í umfjöllun New York Times í dag. Viðskipti erlent 29.11.2012 10:42
Nordea kosinn banki ársins í Vestur Evrópu Tímaritið The Banker, sem gefið er út af Financial Times, hefur kosið Nordea bankann sem banka ársins í Vestur Evrópu. Nordea er fyrsti norræni bankinn sem hlýtur þessa viðurkenningu. Viðskipti erlent 29.11.2012 06:47
Árið 2013 gæti orðið erfitt í ferðaþjónustu Samkvæmt spá The Economist fyrir árið 2013 þá eru væntingar hjá stærstu fyrirtækjum í ferðaþjónustu á heimsvísu um gott gengi á næsta ári ekki miklar. Því er spáð að ferðamönnum sem gista í það minnsta eina nótt í ferðalögum sínum muni fjölga um þrjú prósent á heimsvísu, en fjölgunin á þessu ári verður líklega um tvö prósent frá árinu 2011. Vitnað er til greiningar Tourism Economics, ráðgjafar- og rannsóknarfyrirtækis á sviði ferðaþjónustu. Viðskipti erlent 28.11.2012 23:23
Spá 8,2 prósent hagvexti í Írak á næsta ári Þrátt fyrir veika innviði og ófrið þá spáir The Economist því að hagvöxtur í Írak verði 8,2 prósent á næsta ári, sem er með því allra mesta af löndum Mið-Austurlanda. Sérstaklega er horft til þess að olíuframleiðsla og olíuþjónustugeirinn sé sífellt að verða betur skipulagður, og það gefi efnahagnum færi á að vaxa milli ára. Viðskipti erlent 28.11.2012 21:52
Rauðar tölur lækkunar á mörkuðum Hlutabréfavísitölur í Evrópu hafa víðast hvar lækkað í dag, og eru lækkanir raktar til erfiðleika í fjármálakerfi Spánar. Tilkynnt var um það í dag að stærsti banki Spánar þyrfti að draga saman seglin, segja upp sex þúsund starfsmönnum og selja eignir fyrir meira en 64 milljarða evra, eða sem nemur ríflega átta þúsund milljörðum. Viðskipti erlent 28.11.2012 15:38
Fréttaskýring: Áhrif og völd að færast til Asíu G20 ríkin ráða yfir 60 prósent af landi heimsins, standa undir 87 prósent af hagvexti og þar búa um 65 prósent af íbúum heimsins. Miklar sviptingar hafa þó einkennt áhrif einstakra ríkja innan þessa hóps undanfarin ár, og eru það helst risarnir í Asíu, Kína og Indland, sem eru farin að styrkja stöðu sína og auka áhrif sín. Viðskipti erlent 28.11.2012 15:30
Windows 8 selst betur en Windows 7 Rúmur mánuður er síðan nýjasta stýrikerfi Microsoft, Windows 8, fór í almenna sölu en nú þegar hefur þessi uppfærsla á mikilvægustu vöru tæknirisans slegið forvera sínum við. Viðskipti erlent 28.11.2012 14:31
Facebook að opna gjafaverslun Ríflega milljarður manna notra samfélagsmiðilinn í það minnsta einu sinni í viku, og nú hyggjast forsvarsmenn Facebook reyna að efla þjónustu sína enn frekar með því að opna fyrir kaup á gjöfum, t.d. handa þeim sem eiga afmæli. Viðskipti erlent 28.11.2012 09:43
Heimsmarkaðsverð á áli aftur komið yfir 2.000 dollara Heimsmarkaðsverð á áli er aftur komið yfir 2.000 dollara á tonnið miðað við þriggja mánaða framvirka samninga á markaðinum í London. Viðskipti erlent 28.11.2012 07:55
Um 300 flugliðar í hópmálsókn gegn SAS flugfélaginu Um 300 flugliðar hjá SAS flugfélaginu hafa fengið leyfi borgardóms Kaupmannahafnar til þess að fara í hópmálsókn gegn félaginu. Viðskipti erlent 27.11.2012 06:29
Lars von Trier og Peter Aalbæk í vafasömu fasteignabraski Danski leikstjórinn Lars von Trier og framleiðandi hans Peter Aalbæk létu starfsmenn kvikmyndafélags síns vera í ábyrgð fyrir lánum sem þeir notuðu í fasteignabrask án þess að starfsmennirnir vissu af því. Viðskipti erlent 27.11.2012 06:21
Náðu samkomulagi um næstu greiðslur til Grikkja Fjármálaráðherrar evrusvæðisins náðu loksins samkomulagi í nótt um næstu greiðslur á neyðarlánum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Evrópusambandsins til Grikklands. Viðskipti erlent 27.11.2012 06:16
Fréttaskýring: Vesturlönd í vanda en Asía dregur vagninn Á meðan staða efnahagsmála á Vesturlöndum, þ.e. í Evrópu og Bandaríkjunum, einkennist af erfiðleikum og veikum eða neikvæðum hagvexti, er staðan að lagast víða í Asíu. Þetta sýnir ítarleg umfjöllun The Economist, en sérrit blaðsins um horfur í efnhagsmálum og stjórnmálum á alþjóðavísu fyrir árið 2013, kom út í vikunni. Viðskipti erlent 26.11.2012 21:31
Apple í hart við Samsung Barátta tæknirisanna Apple og Samsung virðist engan endi ætla að taka. Apple hefur nú bætt sex nýlegum spjaldtölvum og snjallsímum Samsung á lista yfir raftæki sem sögð eru brjóta á hugverkarétti. Viðskipti erlent 26.11.2012 13:11
Fyrsta stóra gasflutningaskipið siglir norðausturleiðina Stórt gasflutningaskip siglir nú norðausturleiðina meðfram norðurströnd Rússlands í átt til Japan. Þetta er fyrsta skip sinnar tegundar sem reynir að sigla þessa leið Viðskipti erlent 26.11.2012 06:40
Eignir 16 auðugustu kvenna í Danmörku nema 1.300 milljörðum Í úttekt sýnir að 16 danskar konur eru milljarðarmæringar í dönskum krónum og eiga þær samtals 59 milljarða danskra króna eða tæplega 1.300 milljarða króna í hreinum eignum en sú upphæð slagar hátt upp í landsframleiðslu Íslands. Viðskipti erlent 26.11.2012 06:17
Bandaríkjamenn berjast um snjallsíma á svörtum föstudegi Bandaríkjamenn gæddu sér á kalkúni, graskersbökum og öðru góðgæti í gær en þá gekk þakkargjörðarhátíð í garð. Um er að ræða stærstu ferðaviku ársins í Bandaríkjunum. Talið er að um 43 milljónir Bandaríkjamanna hafi verið á faraldsfæti í vikunni. Viðskipti erlent 23.11.2012 13:04
Danir halda áfram að auka við sparifé sitt Almenningur í Danmörku heldur áfram að auka við sparifé sitt. Nýjar tölur frá seðlabanka landsins sýna að sparnaðurinn jókst um 36 milljarða danskra króna eða um nærri 800 milljarða króna á síðustu 12 mánuðum. Viðskipti erlent 23.11.2012 10:17
Byggja hæsta skýjakljúf heimsins á aðeins 90 dögum Kínverski byggingaverktakinn BSB ætlar að byggja hæsta skýjakljúf í heiminum á aðeins 90 dögum. Viðskipti erlent 23.11.2012 06:51