Viðskipti
275 276 277 278 279 280 281 282 283 … 334 ›
Þurfa að afhenda skattrannsóknarstjóra gögn um erlent félag Landsréttur hefur staðfest úrskurð héraðsdóms Reykjavíkur um að innlendir aðilar þurfi að afhenda skattrannsóknarstjóra gögn um erlend félög. Viðskipti innlent 1.2.2021 23:24
Skelltu límmiða á Loft og fengu söluleyfið aftur Umbúðir bjórsins Lofts, sem Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hafði sett sölubann á vegna brots á lögum um tóbaksvarnir, hafa verið ritskoðaðar og leyfi fengist til að selja bjórinn í ÁTVR á nýjan leik. Bruggmeistari eyddi deginum í að útbúa nýjar umbúðir og gerir ráð fyrir að bjórinn fari í hillur á morgun. Viðskipti innlent 1.2.2021 22:19
Kynlífsverkafólki gert að yfirgefa Rauða hverfið Borgarstjórn Amsterdam hefur samþykkt tillögu um að miðstöð þeirra sem vinna kynlífsvinnu í borginni verði færð úr hinu svokallaða Rauða hverfi í miðborginni í annað hverfi fjarri miðbænum. Viðskipti erlent 1.2.2021 21:39
Kráareigendur kanna hvort jafnræðisregla hafi verið brotin Kráareigendur í miðbæ Reykjavíkur segja að það hafi komið berlega í ljós síðustu mánuði hversu fáránlegt sé að leyfa einni tegund veitingastaða að hafa opið og öðrum ekki. Verið er að kanna hvort jafnræðisregla hafi verið brotin með sóttvarnarreglum. Viðskipti innlent 1.2.2021 20:01
Fyrstu loðnunni landað á Íslandi eftir þriggja ára hlé Grænlenska skipið Polar Amaroq landaði tæplega 700 tonnum af frystri loðnu á Eskifirði um helgina. Þessi loðnulöndun markar tímamót því hún er sú fyrsta hér á landi í tæplega þrjú ár. Loðnan veiddist úr kvóta Grænlendinga á Íslandsmiðum. Viðskipti innlent 1.2.2021 18:32
Keypti í Högum fyrir 5,75 milljónir þegar hann byrjaði í nýju vinnunni Magnús Magnússon, sem hóf í dag störf sem framkvæmdastjóri stefnumótunar og rekstrar hjá Högum, hefur keypt hlutabréf í félaginu fyrir 5,75 milljónir króna. Viðskipti innlent 1.2.2021 16:50
Netárás olli truflunum á þjónustu Símans Netárás var gerð á Símann laugardagskvöldið 30. janúar og varð til þess að truflanir urðu á sjónvarpsþjónustu þess í rúma eina og hálfa klukkustund. Að sögn Símans var um að ræða svokallaða dreifða álagsárás eða DDoS-árás sem var gerð fyrirvaralaust á netkerfi fyrirtækisins. Viðskipti innlent 1.2.2021 13:55
Asos tekur yfir Topshop og skilur eftir sár í breskum verslunargötum Breska vefverslunin Asos hefur fest kaup á vörumerkjunum Topshop, Topman, Miss Selfridge og HIIT úr þrotabúi smásölurisans Arcadia. Auk þess að kaupa öll hugverk tengd fatakeðjunum mun Asos eignast vörubirgðir þeirra en stjórnendur hyggjast ekki taka yfir neinar verslanir. Viðskipti erlent 1.2.2021 13:36
Önnur lota Wall Street við netverja Wall Street undirbýr sig fyrir aðra viku þar sem gífurlegur fjöldi smærri fjárfesta lætur áfram til sín taka á mörkuðum og oft með því markmiði að koma höggi á Wall Street. Aðgerðir netverjar hafa komið harkalega niður á stórum fjárfestingarsjóðum en þeir beina nú sjónum sínum að öðrum hlutabréfum og vörum. Viðskipti erlent 1.2.2021 08:59
„Hvað átti ég að gera sem aðrir höfðu ekki þegar gert?“ „Ætli það hafi ekki verið þegar Berlínarmúrinn féll,“ svarar Sigríður Snævarr þegar hún er spurð um það, hvaða atburður eða minning standi helst uppúr þegar litið er yfir farinn veg. Sigríður hóf störf hjá Utanríkisþjónustunni árið 1978 og í dag eru þrjátíu ár frá því að hún var skipuð sendiherra, fyrst íslenskra kvenna. Atvinnulíf 1.2.2021 07:01
Öskurherferðin hlýtur virt verðlaun Íslandsstofa hlaut í vikunni virt markaðsverðlaun hjá bandaríska fagtímaritinu Digiday fyrir öskurherferðina Let it Out síðasta sumar. Dómarar eru meðal annars frá bandarísku fjölmiðlunum CBS, New York Times, Bloomberg og Forbes. Viðskipti innlent 31.1.2021 20:00
„Það var við múrinn sem hugmyndin vaknaði“ Lífshlaup og starfsferill Sigríðar Snævarr sendiherra hljómar eflaust eins og eitt stórt ævintýri fyrir marga. Ráðherrar, forsetar, njósnir, ísjaki til Parísar, Páfastóll í Róm, núvitund og nýsköpun, Harvard, Björn í ABBA og svo mætti lengi telja. Fyrir þann sem hefur auga fyrir ævintýrum og segir sögu sína út frá þeim, er hvert ævintýrið á fætur öðru í sögu sem þó er hvergi nærri lokið. Atvinnulíf 31.1.2021 08:00
Fundu loðnu mjög víða við landgrunnsbrúnina Umfangsmestu loðnuleit til þessa á Íslandsmiðum lýkur í kvöld þegar rannsóknarskipið Árni Friðriksson klárar síðasta leitarlegg sinn á Víkurál, syðst á Vestfjarðamiðum, djúpt vestur af Kollsvík. Tvö rannsóknaskip Hafrannsóknastofnunar og sex fiskiskip frá útgerðum stefna síðan öll til lands og tvö þegar lögst að bryggju. Viðskipti innlent 30.1.2021 21:35
Kisurnar „sofa annað hvort ofan á mér eða límdar upp við mig“ Svanhildur Hólm Valsdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands, byrjar daginn á því að klappa kisunum sínum. Hún segir eiginmanninn sofa í gegnum fyrri hluta morgunrútínunnar en vakna við ófriðinn þegar hún fer að hafa sig til. Svanhildur segist mikil listakona í skipulagi og á það til að detta í einhver ofurgír á kvöldin. Atvinnulíf 30.1.2021 10:01
Hefja sölumeðferð á hlutum í Íslandsbanka Fjármála- og efnahagsráðherra hefur ákveðið að hefja sölumeðferð á hlutum í Íslandsbanka í samræmi við tillögu Bankasýslu ríkisins þann 17. desember síðastliðinn. Þetta kemur fram í bréfi sem ráðherra sendi Bankasýslunni í dag og greint er frá í tilkynningu á vef stjórnarráðsins nú síðdegis. Viðskipti innlent 29.1.2021 17:25
Áforma að ferja tvær Boeing 737 Max-þotur til Íslands í næstu viku Icelandair er byrjað að undirbúa endurkomu Boeing 737 MAX-véla félagsins inn í flugreksturinn eftir að Flugöryggisstofnun Evrópu aflétti kyrrsetningu vélanna síðastliðinn miðvikudag. Stefnt er að því að tveimur MAX-þotum verði flogið frá Spáni til Íslands í síðari hluta næstu viku. Viðskipti 29.1.2021 14:11
Fimm sagt upp og tugir í skert starfshlutfall Fimm manns hefur verið sagt upp stöðum hjá ríkisstofnuninni Íslenskar orkurannsóknir. Forstjóri ÍSOR segir aðhaldsaðgerðirnar nauðsynlegar vegna samdráttar á markaði. Viðskipti innlent 29.1.2021 14:07
Endurráðinn níu mánuðum eftir að hann hætti af persónulegum ástæðum Guðmundur Kristjánsson hefur verið endurráðinn sem forstjóri sjávarútvegsfyrirtækisins Brims en hann lét af störfum sem forstjóri í lok apríl á síðasta ári. Viðskipti innlent 29.1.2021 12:27
Marel kaupir 40% hlut í Stranda Prolog Marel hefur lokið kaupum á 40% hlut í Stranda Prolog, norskum framleiðanda hátæknilausna fyrir laxaiðnað. Þá hafa Marel og Stranda Prolog gert með sér samkomulag um stefnumótandi samstarf. Viðskipti innlent 29.1.2021 11:55
Tekjur jukust hjá Origo en hagnaður dróst saman Tekjur Origo árið 2020 voru 17,1 milljarður króna. Það er 14,9 prósenta aukning milli ára en hagnaður félagsins dróst þó saman. Heildarhagnaður félagsins 2020 var 408 milljónir króna. Árið 2019 var hagnaðurinn 456 milljónir króna. Viðskipti innlent 29.1.2021 11:14
Fjörutíu þúsund heimili með Stöð 2+ og áskriftarsala tvöfaldast Fjörutíu þúsund heimili landsins eru með aðgang að efnisveitunni Stöð 2+ (áður Maraþon) og áskriftarsala í janúar 2021 er tvöföld á við það sem hún var í fyrra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stöð 2. Viðskipti innlent 29.1.2021 10:27
Mest ánægja með eldsneytissölu Costco en minnst með þjónustu Póstsins Pósturinn mældist með lægstu einkunn allra fyrirtækja sem tóku þátt í Íslensku ánægjuvoginni í fyrra, eða 56,6 stig af 100. Eldsneytissala Costco var aftur á móti hæst með 85,8 stig og er það í fjórða árið í röð sem viðskiptavinir eldsneytissölunnar mælast þeir ánægðustu á Íslandi með marktækum hætti. Neytendur 29.1.2021 10:18
Bein útsending: Úrslit Íslensku ánægjuvogarinnar Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar árið 2020 verða kynntar í dag og viðurkenningar veittar þeim fyrirtækjum sem mælast efst á sínum markaði. Viðburðurinn hefst klukkan 8:30 og verður sýnt frá athöfninni í beinni útsendingu hér á Vísi. Viðskipti innlent 29.1.2021 08:00
Orðsporið líklegasti hvatinn til aðgerða „Mér fannst áhugavert hvaða þættir það eru sem hafa mest áhrif á að fyrirtæki bregðist við. Niðurstöður sýndu að orðspor fyrirtækisins er sá þáttur sem hefur mest áhrif á að fyrirtæki bregðist við loftslagsbreytingum með aðgerðum en fjárfestar virðast hafa minnstu áhrifin. Þetta gefur vísbendingu um að margir íslenskir fjárfestar geri ekki miklar kröfur til stjórnenda um að bregðast við loftslagsbreytingum með aðgerðum og markmiðum,“ segir Rakel Sævarsdóttir sérfræðingur hjá Deloitte meðal annars um það, hvað henni finnst sérstaklega áhugavert í niðurstöðum nýrrar stjórnendakönnunar þar sem staða 300 stærstu fyrirtækja landsins var tekin á því hvar þau eru stödd í grænni vegferð. Atvinnulíf 29.1.2021 07:01
Verja tuttugu milljónum króna á dag í loðnuleit í von um tugmilljarða vertíð Átta skip leita nú ákaft að loðnu á Íslandsmiðum, tvö rannsóknaskip Hafrannsóknastofnunar og sex fiskiskip frá útgerðum, í umfangsmestu loðnuleit til þessa. Hver leitardagur kostar um tuttugu milljónir króna. Viðskipti innlent 28.1.2021 21:45
Birkir nýr markaðsstjóri Storytel á Íslandi Birkir Ágústsson hefur verið ráðinn markaðsstjóri Storytel á Íslandi. Hann hefur undanfarin ár stýrt markaðs- og kynningarmálum fyrir Sjónvarp Símans Premium og Enska boltann á Síminn Sport. Áður starfaði hann hjá 365 miðlum um árabil og stýrði þar kynningardeild Stöðvar 2 og Stöðvar 2 Sport. Viðskipti innlent 28.1.2021 15:41
Ingibjörg nýr forstöðumaður hjá Samtökum atvinnulífsins Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður samkeppnishæfnissviðs Samtaka atvinnulífsins (SA). Hún tekur við starfinu af Davíð Þorlákssyni en Ingibjörg starfaði áður sem verkefnastjóri hjá SA. Viðskipti innlent 28.1.2021 15:07
Magnús Magnússon framkvæmdastjóri stefnumótunar og rekstrar hjá Högum Magnús Magnússon hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri stefnumótunar og rekstrar hjá Högum og mun hefja störf þann 1. febrúar. Guðrún Eva Gunnarsdóttir mun samhliða því taka við sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs Haga. Viðskipti innlent 28.1.2021 12:15
Mettekjur hjá Apple: 14,4 þúsund milljarða tekjur sem raktar eru til sölu iPhone 12 Tekjur Apple á síðasta ársfjórðungi 2020 voru 111,4 milljarðar dala. Það samsvarar um 14.400 milljörðum króna (14.400.000.000), gróflega reiknað, og hækkuðu tekjurnar um 21 prósent, samanborið við sama tímabil 2019. Viðskipti erlent 28.1.2021 11:46
Skaut föstum skotum að Apple eftir 1.450 milljarða hagnað Forsvarsmenn samfélagsmiðlafyrirtækisins Facebook opinberuðu í gær nýtt ársfjórðungsuppgjör sem sýndi að fyrirtækið hagnaðist um 11,2 milljarða dala á síðasta fjórðungi 2020. Það samsvarar um 1.450 milljörðum króna, gróflega reiknað. Viðskipti erlent 28.1.2021 10:29