Fékk skilorð fyrir að skalla mann 16. desember 2004 00:01
Rúmlega tvítugur maður var í Héraðsdómi Norðurlands eystra dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás. Honum var gert að greiða þeim sem hann réðst á tæplega 300 þúsund krónur í skaðabætur. Maðurinn skallaði annan mann í andlitið þannig að hann féll í götuna í miðbæ Akureyrar í janúar árið 2003. Við árásina nefbrotnaði þolandinn auk þess sem hann brotnaði á litla fingri hægri handar. Árásarmaðurinn játaði brot sitt við þingfestingu málsins en sagði það hafa verið sjálfsvörn. Dómnum þótti hins vegar ekkert í framburði vitna benda til þess að þolandinn hafi ráðist á eða ógnað árásarmanninum sem var fundinn sekur um verknaðinn. Hann á að baki nokkurn sakaferil og hefur einu sinni áður verið fundinn sekur um alvarlega líkamsárás sem varðar við 218. grein almennra hegningarlaga. Manninum var gert að greiða allan sakarkostnað, þar á meðal 120 þúsund krónur í málsvarnarlaun verjanda síns.
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Inga Sæland hellti sér yfir Sigríði Andersen Innlent Logi fordæmir ummæli Jóns Gnarr um Vísi Innlent Kona réðst á pizzusendil sem vildi fá símann sinn aftur Innlent Telja sig vita hvernig maðurinn lést Innlent Létu Cassie lesa upp kynferðisleg skilaboð til Diddy Erlent „Algjört þjófstart á sumrinu“ Innlent Villta vestrið ríki á íþróttaviðburðum og kalla eftir reglum Innlent Hestamenn láta tæpa hálfa milljón stöðva sig Innlent Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Erlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Fleiri fréttir Villta vestrið ríki á íþróttaviðburðum og kalla eftir reglum Ísland geti orðið fyrirmyndarríki í fangelsismálum Setja rúma tvo milljarða í stækkun leikskóla Umfangsmeiri bankasala og áfengi á íþróttaviðburðum Fljúgandi trampólín fauk á bíla í Grafarvogi Borgin verði ítrekað af viðburðum vegna gjaldtöku Telja sig vita hvernig maðurinn lést Nýja göngubrúin yfir Sæbraut fer upp í næstu viku Logi fordæmir ummæli Jóns Gnarr um Vísi Vilja aðra tillögu í stað Völugötu sem átti að koma í stað Bjargargötu „Algjört þjófstart á sumrinu“ Úlfari var boðin staða lögreglustjóra á Austurlandi Yfirmaður herafla NATO á Íslandi Hestamenn láta tæpa hálfa milljón stöðva sig Inga Sæland hellti sér yfir Sigríði Andersen Lögreglustjórafélagið fjallar um starfslok Úlfars Enn þjarmað að Flokki fólksins vegna styrkjamálsins Hægir verulega á fjölgun erlendra ríkisborgara Borgin rukkar hestamenn og þeir hætta við reiðina Kaupa frekar gervigreindartónlist í þætti en frumsamið efni Laupur stelur senunni í Árbæjarlaug Bein útsending: Ísland og Norðurslóðir í nýjum heimi – Ógnir og öryggi, áskoranir og tækifæri Kona réðst á pizzusendil sem vildi fá símann sinn aftur Enn einn skjálftinn austan við Grímsey Vara við bikblæðingum á Bröttubrekku Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Verðhækkanir varpa skugga á grillsumarið mikla Isavia fær áheyrn um hvort reka hafi mátt mann vegna aldurs Laupur vekur mikla athygli sundlaugagesta í Árbæjarlaug Fórnuðu gömlu húsi fyrir slökkviliðsæfingu Sjá meira