Sektuð um 60,5 milljónir 23. febrúar 2005 00:01
Tryggingafélögin voru í gær sektuð um 60,5 milljónir af samkeppnisráði vegna ólöglegs verðsamráðs. Tryggingamiðstöðin hefur fallist á að greiða 18,5 milljónir í sekt og VÍS hefur fallist á að greiða 15 milljónir. Sjóvá-Almennar tryggingar eru sektuð um 27 milljónir, en tryggingafélagið hefur ákveðið að áfrýja þeirri niðurstöðu til áfrýjunarnefndar samkeppnismála og eftir atvikum til dómstóla. Það var niðurstaða samkeppnisráðs að sekt Sjóvá-Almennra skyldi vera hærri en sekt hinna tryggingafélaganna, þar sem VÍS og TM óskuðu eftir sátt og aðstoðuðu samkeppnisráð við að upplýsa brotin. Í tilkynningu frá Sjóvá-Almennum segir að fyrirtækið hafi ekki haft fjárhagslegan ávinning af samstarfinu og hafi samið um sjálfstætt verð. Samkeppnisráð segir að verðsamráðið hafi falist í því að félögin gerðu sameiginlega samanburð á Cabas-tjónamatskerfi áður en það var tekið í notkun árið 2002. Samkeppnisráð telur að með því hafi falist samráð um að meta hækkunarþörf á tímagjaldi verkstæða. Í kjölfarið er talið að félögin hafi komið sér saman um viðmiðunarverð sem þau ætluðu að nota í samningaviðræðum við bílaverkstæði. Þá er talið að félögin hafi haft samráð um kaupverð á viðgerðarþjónustu af P. Samúelssyni ehf. sem rekur eitt stærsta bifreiðaverkstæði landsins.
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Seinfeld og Friends-leikari látinn Erlent Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Innlent Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Erlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Innlent Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Fleiri fréttir Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Sjá meira