Sport

Fulham líklegast að landa Heiðari

Skjótt skipast veður í lofti í málum Heiðars Helgusonar sem í vikunni var sagður nær örugglega á leiðinni til nýliða Wigan í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Nýjustu fréttir frá Englandi herma nú að Fulham sé líklegast til að landa Heiðari en Chris Coleman þjálfari Fulham fundaði með Heiðari í gær. Fulham þarf þó að heyja hálfgert einvígi við West Ham um að landa Heiðari skv frétt á vefsíðunni thisislondon nú fyrir skömmu. Sunderland og Wigan eru einnig enn á eftir Heiðari sem er greinilega afar vinsæll hjá úrvalsdeildarliðunum þessa dagana. Ray Lewington fyrrverandi knattspyrnustjóri Watford er nýr í þjálfarateymi Fulham og þykir það benda eindregið til þess að Heiðar sé á leiðinni til Fulham en þeim tvemenningum er einstaklega vel til vina.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×