Ferðin er nýhafin og langt í leiðarlok 29. júlí 2006 00:01 Uppgjör skráðra fyrirtækja í Kauphöll Íslands birtast nú eitt af öðru. Afkoma þeirra sem þegar hafa birt uppgjör fyrir annan ársfjórðung hefur verið betri en spár gerðu ráð fyrir. Afkoman nægir hins vegar ekki til þess að lyfta gengi þeirra á markaði. Svona lætur markaður. Í upphafi árs var á það bent að hækkanir eins og þær sem urðu í upphafi árs væru varasamar. Þá hækkuðu bréf félaga skart, án þess að nokkrar fréttir lægju þar að baki. Slíkar hækkanir eiga alla jafna að hvetja menn til varfærni á markaði. Nú er andinn annar og góðar fréttir megna ekki að kæta markaðinn. Á þessu eru að sjálfsögðu nokkrar skýringar. Við erum að ljúka mikilli uppsveiflu og fram undan eru varasamir tímar í hagkerfinu. Stýrivextir Seðlabankans hafa náð þeim hæðum að þeir eru gott betur en samkeppnishæfir við vænta ávöxtun á hlutabréfamarkaði. Óvissan í efnahagsmálum varpaði líka skugga sínum á fjármálafyrirtækin sem guldu hennar í oft á tíðum ósanngjörnu mati á því hvernig þau eru rekin. Hættan af fjármálakreppu er ekki mikil, en neikvæð umræða í kjölfar óvissu í efnahagsmálum hefur skapað bönkunum vanda sem enn er ekki fyllilega að baki. Eftir á að hyggja má segja að gott sé að umræðan hófst þetta snemma, þegar afkoma og styrkur var nægur til að takast á við hana. Sá lærdómur sem af umræðunni má draga er margvíslegur og ágætt veganesti inn í framtíðina. Tvennt virðist vera afar brýnt ef takast á að hleypa lífi í markaðinn á ný. Uppgjör fjármálafyrirtækja þetta árið verða að sýna styrkar tekjustoðir og öruggan rekstur. Í annan stað þurfa bankarnir að ná að sýna alþjóðamarkaði að þeir hafi tryggt framtíðarfjármögnun sína. Engin sérstök ástæða er til þess að draga það í efa að þessi markmið náist. Vel hefur tekist til í uppbyggingu bankanna og þótt um hægist í bili meðan siglt er gegnum brimgarðinn er ekki séð fyrir endann á glæsilegri vegferð. Eftir á að hyggja má segja að gott sé að umræðan hófst þetta snemma, þegar afkoma og styrkur var nægur til að takast á við hana. Sá lærdómur sem af umræðunni má draga er margvíslegur og ágætt veganesti inn í framtíðina. Sú athygli sem viðskipti Íslendinga höfðu fengið erlendis hlaut á endanum að verða annað en lofsöngur. Nú hljómar margraddaðri kór, þótt einhverjir virðist syngja falskst. Íslendingar hafa reynst slyngir í að kaupa fyrirtæki og erlendis virðist nú horft til þess af áhuga hvernig takist til við rekstur þeirra eigna sem keyptar hafa verið undanfarin misseri. Þegar hafa íslenskir fjárfestar sýnt að rekstur keyptra eigna er með miklum ágætum. Bankarnir verða undir sérstakri smásjá um hvernig til tekst. Ef vel gengur að sýna fram á skynsamlegan rekstur og að kaupin hafi verið góð verður fátt til að stöðva framrásina. Útrás varð á tímabili tískuorð í viðskiptalífinu. Umræðan hefur horfið frá hylli á hugtakinu upp á síðkastið. Það skiptir engu máli hvað vöxtur og viðgangur íslensks viðskiptalífs er kallaður. Útrásin er nýhafin og langt í að henni ljúki. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Hafliði Helgason Skoðanir Mest lesið Óvelkomnar alls staðar Kristín Davíðsdóttir Skoðun Við elskum pizzur Herdís Magna Gunnarsdóttir Skoðun Grafið undan grunnstoð samfélagsins Skoðun Furðuleg meðvirkni með fúskurum Jón Kaldal Skoðun Þegar viska breytist í vopn Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Hæfniviðmið eða tölulegar einkunnir, hvað segir okkur meira um nám? Bryngeir Valdimarsson Skoðun Gætum eggja og forðumst náttúruleysi! Pétur Heimisson Skoðun Fjölbreytt líf í sjónum Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir,Jóhanna Malen Skúladóttir,Laura Sólveig Lefort Scheefer Skoðun Vindorkuvæðing í skjóli nætur Kristín Helga Gunnarsdóttir Skoðun Hinsegin samfélagið á heimili í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun
Fjölbreytt líf í sjónum Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir,Jóhanna Malen Skúladóttir,Laura Sólveig Lefort Scheefer Skoðun
Fjölbreytt líf í sjónum Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir,Jóhanna Malen Skúladóttir,Laura Sólveig Lefort Scheefer Skoðun