Sport

Mikilvægur sigur Blika í botnslagnum

Blikar lyftu sér úr fallsæti með sigrinum í Eyjum
Blikar lyftu sér úr fallsæti með sigrinum í Eyjum Mynd/E.Stefán

Breiðablik lyfti sér í kvöld úr fallsæti í Landsbankadeild karla þegar liðið vann gríðarlega mikillvægan 1-0 sigur á ÍBV í Eyjum. Það var Marel Baldvinsson sem skoraði sigurmark Blika strax aftir fjórar mínútur. Víkingur og Keflavík skildu jöfn 1-1 í Fossvogi. Guðmundur Steinarsson skoraði mark Keflvíkinga en Viktor Bjarki Arnarsson jafnaði metin fyrir heimamenn. Þá gerðu Grindavík og Fylkir 1-1 jafntefli í Grindavík þar sem Ray Anthony Jónsson og Páll Einarsson voru á skotskónum.

FH er sem fyrr í efsta sæti deildarinnar þegar 11. umferð er lokið með 26 stig, Fylkir í öðru með 17, Valur hefur 16 stig,  Keflavík og Víkingur hafa 15 stig, Grindavík og Breiðablik hafa 14 stig í 6. og 7. sætinu, KR er í 8. sæti með 13 stig og í botnsætunum sitja ÍA með 12 stig og ÍBV með 11 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×