Man. Utd. eykur forskotið í Englandi 30. desember 2006 17:01 Wayne Rooney sækir hér að leikmönnum Reading í leiknum á Old Trafford í dag. MYND/Getty
Manchester United vann 3-2 sigur á Reading í ensku úrvalsdeildinni í dag á meðan Chelsea tapaði stigum á heimavelli gegn Fulham. Forysta Man. Utd. á toppnum hefur því aukist enn frekar og er nú sex stig. Það var hinn sjóðandi heiti Cristiano Ronaldo sem reyndist maður dagsins á Old Trafford. Ole Gunnar Solskjær hafði komið Man. Utd. á 33. mínútu en varnarmaðurinn Ibrahima Sonko jafnaði fyrir Reading fimm mínútum síðar. Ronaldo tók hins vegar til sinna ráða í síðari hálfleik og skoraði tvívegis, á 59. og 76. mínútu. Leroy Lita minnkaði síðan muninn á 91. mínútu en lengra komust gestirnir ekki. Ronaldo fór útaf á 79. mínútu og var hylltur af stuðningsmönnum Man. Utd. Ronaldo hefur nú skorað 12 mörk í ensku deildinni. Ívar Ingimarsson og Brynjar Björn Gunnarsson léku allan leikinn fyrir Reading. Varnarleikur Chelsea er í molum í fjarveru John Terry og í dag skoraði Fulham tvö mörk á Stamford Bridge, sem gerist ekki oft. Carlos Bonenegra tryggði gestunum jafntefli með því að skora þegar fimm mínútur voru eftir en áður hafði Didier Drogba komið Chelsea í 2-1. Fulham komst yfir í leiknum með marki Moritz Volz á 16. mínútu en Liam Rosinor skoraði sjálfsmark á 35. mínútu og jafnaði metin. Manchester United er nú komið með 63 stig en Chelsea er með 57 stig. Liðin í 3. og 5. sæti, Bolton og Portsmouth, mættust á heimavelli fyrrnefnda liðsins í dag og höfðu heimamenn betur, 3-2, í frábærum leik. Með tapinu féll Portsmouth niður í 6. sætið því Liverpool vann góðan útisigur á Tottenham þar sem Luis Garcia skoraði eina mark leiksins. Liverpol er í fimmta sæti, Arsenal í því fjórða og Bolton í þriðja.
Enski boltinn Erlendar Fótbolti Íþróttir Mest lesið Guðmundur svekktur eftir sniðgöngu: „Finnst þetta skammarlegt“ Handbolti Skytturnar með forystuna en Garnacho stal þrumunni af Gyökeres Enski boltinn Ungverski línumaðurinn verður ekki með á EM Handbolti Hlaupabrettið kemst ekki upp í hraða Baldvins Sport Lindgren segir að þetta verði ár Íslands Handbolti Skotinn til bana í jarðarför móður sinnar Fótbolti Eitt félag hefur grætt mest á mistökum VAR Enski boltinn Skipti Orra inn og út á nokkrum mínútum: „Óásættanlegt“ Fótbolti Mætum „Napóleon“ og lærisveinum hans í fyrsta leik á EM í handbolta Handbolti Danir voru líka að hugsa um að ráða Dag Handbolti Fleiri fréttir „Þetta get ég og þarf að gera oftar“ Skytturnar með forystuna en Garnacho stal þrumunni af Gyökeres Guardiola segir að Haaland sé úrvinda Segir ósanngjarnt að kalla Arsenal „Set Piece FC“ Eitt félag hefur grætt mest á mistökum VAR Benoný kom inn á og breytti leiknum Carrick tekinn við Manchester United Hvað sagði verðandi þjálfari United í einkaviðtali við Sýn Sport? Samningur í höfn hjá Carrick og Manchester United Szoboszlai skoraði stórglæsilegt mark en var sakaður um vanvirðingu Í bann fyrir „gróft brot“ á kynfærum tveggja mótherja Liverpool áfram í bikarnum og mætir Brighton í næstu umferð Velur Tottenham fram yfir Aston Villa Mætir spútnikliðinu: Íslendingar í pottinum er dregið var í enska bikarnum Myndi ekki neita ef Carrick byði honum í sitt teymi Búast við því að Carrick verði kynntur hjá United innan tíðar Mátti ekki koma inn á vegna þess að hún var með eyrnalokk Fæstir leikir hjá Man Utd síðan í fyrri heimsstyrjöld Mætir Liverpool en fær gæsahúð þegar hann heyrir „You'll Never Walk Alone“ Carrick nú talinn líklegastur til að taka við Man Utd „Myndum að sjálfsögðu taka honum opnum örmum“ Mikel Arteta hrósaði Arne Slot Bruno Fernandes hakkaður í gærkvöldi Dagskráin í dag: Liverpool í bikarnum og síðasta lausa sætið í NFL Solskjær ekki lengur líklegastur Fletcher segir leikmenn Man. Utd viðkvæma Veik von Man. Utd um titil úr sögunni Loksins unnu Hamrarnir eftir framlengdan leik Martinelli og hornspyrnur hetjurnar Bradley frá út tímabilið | Fer Liverpool á markaðinn? Sjá meira