Ýmsar nýjungar í læknisfræði 14. mars 2007 05:15 Húsakynni Team eiga það sameiginlegt með húsnæði margra nýsköpunarfyrirtækja í Bretlandi að eldra og iðulega yfirgefið rými er nýtt undir starfsemina. Hús Team er öllu eldra en sambærileg húsakynni en það er hlaða frá miðöldum. Þegar dr. Andrew Fry kom að húsinu fyrir nokkrum árum til að skoða staðhætti voru útveggir uppistandandi en þakið lítið meira en ævagamlir og naktir bjálkar.
Helstu nýjungarnar í heilbrigðisgeiranum er einfaldur og léttur búnaður. Þetta segir dr. Andrew Fry, forstjóri breska ráðgjafafyrirtækisins Team sem staðsett er í iðagrænni sveit í nokkuð hundruð ára gamalli hlöðu um tíu kílómetra fjarlægð frá Cambridge. Hann segir helsta vandamálið við sprautur sem notaðar séu í dag þær að nálarnar geti stungist í þá sem ekki ætla að nýta sér þær, svo sem hjúkrunarkonur og lækna, auk þess sem sjúklingar sem þurfi á mörgum sprautum að halda geti átt í erfiðleikum með að finna æðar. Þá er hætt við að nálar brotni, að hans sögn. Ráðgjafafyrirtækið Team hannar og þróar tól og tæki fyrir lyfja- og heilbrigðisgeirann um allan heim. Tækin eru talsvert frábrugðin því sem flestir þekkja í dag en á meðal þeirra er nálalaus sprauta og augnskoðunartæki á stærð við penna sem hægt er að nota jafnt á menn sem dýr.Lyfjum skotið í fólkStoltur með nýjustu tækni Andrew Fry, forstjóri Team, heldur á augnskoðunartæki sem hann bindur miklar vonir við. Eins og sést er tækið á stærð við penna.Nálalausa sprautan samanstendur af hylki í tækinu neðanverðu sem hægt er að fylla á með venjulegu kveikjaragasi sem hægt er að kaupa á næstu bensínstöð. Lyfin eru að sama skapi nokkuð frábrugðin því sem við eigum að venjast í dag því þau eru í litlum hylkjum sem sett eru í rauf á sprautunni og þeim skotið inn undir húð sjúklinga á mun skemmri tíma en það tekur að nota hefðbundna sprautunál.Það er ekki nauðsynlegt að hitta á æðar, að sögn Frys, sem segir jafnt lærða sem leika geta nýtt sér sprautuna sem er nokkuð einföld í meðförum. Og möguleikarnir eru margir því sprautuna er hægt að nota jafnt á dýr sem menn, sem marga hverja óar við tilhugsuninni um beitta nál.Dr. Iain Simpson, einn af helstu ráðgjöfum Team, bendir á að hægt verði að bólusetja fjölda fólks með sprautu sem þessari, ekki síst á þeim svæðum þar sem faraldur hefur brotist út. Þá er bólusetning dýra mun einfaldari því allt ferlið tekur ekki nema eina mínútu. Þrátt fyrir þetta gat enginn svarað því til, hvort meiri sársauki fylgi því að skjóta lyfjum í líkama fólks en að stinga á húð þess með oddhvassri nál. Tækið er ekki komið á markað en tilraunir við bólusetningu á svínum hafa gefist vel, að sögn Simpsons.Innviði augans skoðað utanfráDr. Andrew Fry var sérstaklega stoltur af nýjasta tæki Team, augnskoðunartæki sem er á stærð við penna. Roger Armour, einn af forsvarsmönnum dótturfyrirtækis Team, sem hóf að þróa ýmsan tækjabúnað fyrir lækna eftir að hann fór á eftirlaun, á heiður að tækinu. Tækið samanstendur af lítilli AAA-rafhlöðu að neðanverðu en peru og agnarsmáum linsum að ofanverðu. Beri notandi tækið upp að augum sjúklinga sést vel inn fyrir ysta lag augans. Fry sagði tækið mjög einfalt í notkun og að það greindi augnsjúkdóma, svo sem gláku, mun fyrr en ella. Þá getur tækið ekki síður nýst dýralæknum, sem þurfa að skoða mörg dýr í einu.Tiltölulega einfalt er fyrir leikmenn að nota tækið, sem er létt í meðförum og margfalt ódýrara en sambærileg tæki á markaðnum í dag. Þá einfaldar það mjög skoðun á augum barna, sem kunna að vera hrædd við lækna. Að sögn þeirra Frys og Armour er reiknað með að betrumbæta tækið á næstu árum, meðal annars að bæta við stafrænni myndavél og litlum kubbi, sem skráir ýmsar upplýsingar um innviði augans.Stór markaður er fyrir tæki sem þetta, að sögn Fry, sem reiknast til að sala á því geti numið allt að 400 milljónum evra, jafnvirði 35,5 milljarða íslenskra króna. Markaðssetning á tækinu hófst í fyrra en samningar náðust við stóra dreifingaraðila í Bandaríkjunum um miðjan síðasta mánuð.
Undir smásjánni Mest lesið Íslenskt sund í New York Viðskipti erlent Vikan sem vex og vex: „Magatilfinningin er jafnvel mikilvægust“ Atvinnulíf Útboðið fari vel af stað og allar líkur á að magnið aukist Viðskipti innlent Verslun Nettó í Glæsibæ opnar líklega á morgun Viðskipti innlent Útboðið á ríkishlutum í Íslandsbanka hafið Viðskipti innlent Áskriftir borist í 20 prósenta hlut í Íslandsbanka Viðskipti innlent Varar við framtíðarreikningum í nafni barnsins Neytendur Apple skoðar að stýra snjalltækjum með hugsunum Viðskipti erlent Jákvætt að almenningur njóti forgangs við söluna Viðskipti innlent Dregur úr tapi og notendum fjölgar um 66 prósent Viðskipti innlent Fleiri fréttir Útboðið fari vel af stað og allar líkur á að magnið aukist Jákvætt að almenningur njóti forgangs við söluna Áskriftir borist í 20 prósenta hlut í Íslandsbanka Verslun Nettó í Glæsibæ opnar líklega á morgun Dregur úr tapi og notendum fjölgar um 66 prósent Vonar að almenningur nýti forganginn í bankasölunni Ráðinn forstöðumaður Öryggislausna OK Útboðið á ríkishlutum í Íslandsbanka hafið Síðasti dropinn á sögulegri stöð Ráðuneytið ræður fjögur íslensk fjármálafyrirtæki vegna sölunnar á Íslandsbanka Sjóvá fundaði með PPP en afþakkaði þjónustu Svandís tekur við Fastus lausnum Ráðinn framkvæmdastjóri Starbucks á Íslandi Tæknin geti komið í veg fyrir þjófnað Hafa þegar skilað nettóbindingu en tafir á stærri föngunarstöð „Umbreyting í átt að velsældarhagkerfi krefst hugrekkis“ Salan á Íslandsbanka: Samið við fjóra erlenda söluaðila Til IDS á Íslandi frá Íslenskri erfðagreiningu Hagnaðist um rúma fimm milljarða á fyrsta ársfjórðungi Hundrað og fimmtíu manns unnu að opnuninni Samþykktu að bæta við leið fyrir stóra fjárfesta í sölu Íslandsbanka Gríðarlegt áhyggjuefni fyrir Norðurþing Ingunn ráðin framkvæmdastjóri Auðnu Rannsakendur og nemendur við HA fá aðgang að sérhæfðu gervigreindartóli Tæplega átta milljarða króna viðsnúningur milli ára Rekstrarstöðvun sé yfirvofandi á Bakka Til Samtaka atvinnulífsins eftir mánuð á auglýsingastofu Margrét hættir sem forstjóri Nova Sýkna í Samskipamálinu en Eimskip þarf samt að passa sig Ekkert fékkst upp í gjaldþrot upp á tugi milljóna Sjá meira